Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1987. Stjómmál Köpuiyrði um ágreiningsmál vericalýðsleiðtoga út í hött segir Kawel Pálmason „Samþykktin sýnir að köpuryrði á pólitískum vettvangi um ágreinings- mál verkalýðsleiðtoga á Vestfjörðum eru út í hött,“ sagði Karvel Pálmason, alþingismaður og formaður Verka- lýðs- og sjómannafélags Bolungarvík- ur. Samskiptaörðugleikar hafa verið á milli verkalýðsleiðtoga íyrir vestan. Bréf sem verkalýðsfélagið í Bolungar- vík sendi til Alþýðusambands Vest- fjarða og aðildarfélaga þess hefur valdið úlfúð. Samþykktin, sem Karvel vísar til og óskar að verði birt, var gerð i stjóm Alþýðusambands Vestfjarða síðastlið- inn sunnudag. Segir Karvel að hún hafi verið samþykkt samhljóða eftir ítarlegar umræður um ágreiningsmál- in. Hún hljóðar svo: „Stjóm sambandsins ræddi ítarlega samstarf og samskipti innan ASV, hvemig efla megi og auka enn frekar þann árangur sem stjómin er sammála um að hafi náðst í gegnum árin og verið varanlegur í hagsmuna- og kjaramálum verkafólks á Vestfjörð- um. Stjómin er sammála um að með meira og nánara samstarfi félaganna og nýbreytni í starfi sé hægt að ná frekari árangri. Er forseta og varafor- seta falið að leita eftir tillögum aðild- arfélaganna með þetta í huga.“ -KMU Karvel Pálsson Stuðnmgsmenn Stefáns í kaffi. Stuðningsmenn í tíu dropum Jón G. Haúkssom, DV, Akuieyii Stuðningsmenn Stefáns Valgeirs- sonar opnuðu kosningaskrifstofu við Glerárgötu 20 á Akureyri á dögun- um. Margt var um manninn við opnunina, tíu droparnir vom í boll- um, brauð á borðum og menn ræddu kosningabaráttuna framundan. Kempan sjálf var að sjálfsögðu mætt ásamt öðrum efstu mönnum listans. Vantraustið á Sverri á mánudag Frumvarp framsóknarmannanna Ingvars Gíslasonar og Guðmundar Bjamasonar, alþýðubandalagsmanns- ins Steingríms J. Sigfússonar og kvennalistakonunnar Kristínar Halldórsdóttur um skipan rannsókn- amefhdar utanþingsmanna í Sturlu- málinu, deilu menntamálaráðherra við fræðsluyftrvöld í Norðurlandsum- dæmi eystra, verður líklega tekið til umræðu á Alþingi á mánudag. Málið var á dagskrá neðri deildar í gær en var ekki tekið fyrir. Sjálfstæðismenn líta á frumvarpið sem vantrauststillögu á menntamála- ráðherra og hafa boðað frávísunartil- lögu. Bíða menn spenntir eftir atkvæðagreiðslu um frávísunartillög- una. -KMU Sektir teknar upp fyrir að spenna ekki bílbeltin - og bílnúmerakerfinu breytt Þeir ökumenn og framsætisfarþegar sem ekki aka með bílbeltin spennt verða sektaðir hljóti umferðarlaga- frumvarp samþykki Alþingis. I umræðum um umferðarlögin í efri deild Alþingis í gær lýsti Jón Kristj- ánsson, formaður þingnefhdar þeirrar sem fjallaði um frumvarpið, því yfir að samþykkt þess þýddi að undan- þáguákvæði um viðurlög við að nota ekki bílbeltin féllu niður. Jón upplýsti ennfremur að samþykkt frumvarpsins þýddi að gamla bílnúm- erakerfið yrði lagt niður, hætt yrði að umdæmisskrá bíla en landið yrði eitt skráningarumdæmi. Þá kom fram í máli þingmannsins að þingnefhdin væri að undirbúa til- lögur að reglum um svokölluð fjórhjól. -KMU í dag mælir Dagfari Við kjosum ekki Þá hafa Súgfirðingar ákveðið að láta til skarar skríða gegn þing- mönnum Vestfjarða. Aðgerðimar. sém framundan eru, em á þá lund að nú skuli ekki kjósa. Undirskrift- arlistar ganga um þorpið hvar menn eiga að rita nafn sitt undir heit- strengingu þess efnis að eigi skuli koma á kjörstað þá næst skal kjósa til Alþingis. Hreppstjóri þeirra Súg- firðinga breiddi úr sér á baksíðu DV í gær og var hinn versti. Hér verður ekkert kosið fyrr en þingmenn okkar hafa tekið sig á. Og hver er svo ástæðan fyrir reiði þeirra þorpsbúa? Jú, hún er sú að það hefur láðst að malbika 9 kílómetra vegarspotta sem liggur inn í þorpið. Afleiðingin er sú að Volvoamir og Range Roverarnir þeiira þorpsbúa em að hristast í sundur á grjóthnullungum sem vegagerðinni varð á að setja þar niður fyrir nokkrum árum en gleymdi svo framhaldinu. Þetta hef- ur valdið hreppstjóranum og öðrum þorpsbúum slíku hugarangri að nú skulu þingmennimir fá að finna til tevatnsins. Sem sagt stræka á kjör- degi og láta þessa asskota eins og Matta Bjama og hann Karvel far vel finna það að Súgfirðingar mæla sína þingmenn í kílómetrum vega. Einkum er spjótum.beint að Matta þar sem hann er nú einu sinni sam- gönguráðherra og það er hart að eiga ráðherra samgöngumála sem ekki getur beitt sér fyrir því að mal- biki sé slett á nokkra kílómetra svo kjósendur eigi greiðari brottfor úr þorpinu þegar þeir ákveða að flytja á mölina fyrir sunnan. Auðvitað verður að steypa fyrir þá flótta- mannaveginn og helst að leggja þar rauðan dregil á kostnað alþjóðar svo lúxuskerrumar verði ekki alltof skítugar þegar komið er í hlað fyrir- heitna landsins. Það er svo sannar- lega skaði fyrir Súgfirðinga að Steingrímur skrifaði sig aldrei bú- settan þar áður en hann lagði á flótta á Reykjanesið. Sá hefði nú ekki verið í vandræðum með að hella sjóðheitu malbiki á nokkra kíló- metra til að hafa atkvæðin ánægð. En nú er sem sagt skarð fyrir skildi og ekkert á Ólaf Þórðarson að treysta í malbikunarmálum frekar en öðrum málum. En auðvitað er þetta framtak hreppstjórans fyrir vestan og sveit- unga hans til fyrirmyndar. Hvað ef við hér í Reykjavík tækjum jafnein- arða afstöðu. Það vantar malbik hér og þar í borginni og auðvitað gjör- samlega út í hött að ljá þingmönnum atkvæði meðan ekki hefur verið úr þvi bætt. Auk þess er ekki losað nógu oft úr ruslatunnum hér og þar í borginni og engin ástæða til að mæta á kjörstað nema Albert bæti úr því. Og sama gildir um öll kjör- nema... dæmi landsins. Við bara komum ekki nema þið, þessir sem hafa ákveðið að bjóða ykkur fram til þings, komið heim og þvoið þvottinn fyrir mig og frúna, strauið og setjið inn á skáp. Til hvers haldið þið eigin- lega að þið séuð kosnir á þing? Til að setja þjóðinni lög? Ó, nei og aftur nei. Þið eigið að malbika hér og malbika þar, þvo þvotta og hvaðeina sem okkur háttvirtum kjósendum dettur í hug. Þess á milli skuluð þið, þingmenn góðir, snattast fyrir okkur í bönkum og lánastofnunum sem þið hafíð búið til svo okkur megi líða vel. Embættismennirnir geta sett lög áfram eins og hingað til en við viljum fá níu kílómetra hér og þrjá kíló- metra þar í malbiki og steypu. Okkur kemur ekkert við hvað vegagerðin áætlar og segir. Málið er að hér skal malbika fyrir kosningar og hér skal byggja flugvöll og hér skal risa heilsugæslustöð. Ef þið getið ekki lofafð þessu, skammirnar ykkar, höf- um við ekkert að gera á kjörstað og ég skal hundur heita ef ég kýs þig, kæri þingmaður, nema þú lofir að fara í einu og öllu eftir þeim kröfum og óskum sem ég set fram. Ef ég nenni ekki framúr einhvern morg- uninn þá vil ég geta treyst því að þú farir út í búð fyrir mig og kaupir bindi eða gallabuxur. Og svo má líka malbika bílastæðið fyrir mig á kostnað ríkisins, annars mæti ég ekki á kjörstað. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.