Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Blaðsíða 36
36
FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Jack Nicholson
segist ekki vera nema örlítið
brjálaður þegar hann er
spurður út í andlegt heilsufar
þessa dagana. Allmargir
hafa þá skoðun að kappinn
hljóti að vera eitthvað keim-
líkur klikkhausunum sem
hann er vanur að túlka á
hvíta tjaldinu en því fer víst
víðs fjarri. Þó er samband
hans við nágrannann -
Marlon Brando - talsvert
nærri mörkunum því hatrið
á milli sykursnúðanna
tveggja er svo mikið að í
skjóli nætur eiga þeir til að
brjótast inn - hvor hjá öðr-
um. Til hvers? Jú, ferðin er
til þess að eyðileggja sem
allra mest og reyna svo að
sleppa óséður heim í sæng
aftur.
Silvia Svía-
drottning
hefur ekki farið í andlitslyft-
ingu ef marka má yfirlýsingu
sem gefin var út frá kóngs-
höllinni fyrir skömmu. Bras-
ilísk blöð skýrðu frá því að
drottning hefði mætt til Rio
de Janeiro og látið tísku-
lækninn Ivo Pitanguy
strekkja skinnið í réttar áttir.
Svo mun ekki vera, sagði í
harðorðri fréttatilkynningu
frá höllinni og nú er bara
spurningin - er flugufótur
fyrir fréttum brasilísku blað-
anna? Kannski Karl Gústaf
birtist innan tíðar hrukkulaus
og slétthærður - hver veit!
Kate Bush
er ný og bjartari manneskja
á videoinu sem gert var í
tengslum við skífuna The
Whole Story. Hún birtist á
skerminu með platínuljóst
hár og brúðarsiör - ímynd
sakleysisins sem einmitt er
að verða topptískan á þess-
um síðustu og verstu eyðnit-
ímum. Nú eiga jafnvel
grimmustu rokkpíurnar að
vera blúndulegar með af-
brigðum - hver veit nema
þær- hugsi allar í hring að
auki.
■a
Það hressir, Hlíðarfjallið.
DV-mynd JGH Akureyri
"l
Fyrst
r
1
fjallið
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Það hressir, Hlíðarfjallið á Akur-
eyri. Þar er ævinlega líf og fjör
þegar fjöldi fólks rennir sér á góð-
viðrisdögum. Færið núna er mjög
gott. Þessir krakkar voru fyrst í
fjallið um daginn. Þau mættu á
mínútunni 13 en þá opnar fjallið á
virkum dögum. Fyrst í fjallið - vel
gert.
Jacqueline Stallone er ekki á því aö leggja upp laupana.
Mamma Sylvester Stallone:
Engu minna hörkutól
en sjálfur Rambo
Jacqueline Stallone, 65 ára, er mamma súperstjömunnar Sylvester Stallone
sem þekktur er fyrir hnefaleikamyndir og nú síðast sem hörkutólið Rambo.
Mamman stelur þó stundum senunni vegna uppátækja sem hún stendur fyr-
ir og svo hefur hún mjög ákveðnar skoðanir varðandi það að eldast.
„Þegar þú ert orðin 65 ára finnst þér þú enn vera 25 ára en þá vill svo til
að enginn hefur þörf fyrir þig lengur,“ segir hún.
„Þessari lítilsvirðingu ætla ég að vinna á móti.“
Eitt af uppátækjum hennar er að hún ákvað að framleiða myndband með
leikfimisæfingum fyrir fólk yfir fimmtugt. Hún gróf upp hóp af foreldrum
frægs fólks eins og mömmu Farrah Fawcett, 73 ára, pabba Dustin Hoffmans,
79 ára, og fleiri og nefhdi hópinn Silfur-refina. Hún vinnur nú að dreifingu
og markaðssetningu á myndbandinu.
Hún er þrígift og alltaf hafa það verið ítalimir sem hafa heillað hana en
nú er hún ein á báti og ætlar að halda því áfram. Jacqueline Stallone segir
það alltof tímafrekt að eiga eiginmann og þar að auki sé hún ekkert fyrir
matargerð og húsverk. Hún segist jafnframt njóta lífsins og halda góðu sam-
bandi við hörnin sín þrjú, búa yfir mikilli lífsorku og ekki hafa yfir neinu
að kvarta.
Sylvester og Brigitte. Mamman skýtur þeim þó stundum ref fyrir rass og
kemst á forsiður blaðanna.
Ný mynd
væntanleg meö
Sylvester Stallone
Um þessar mundir standa yfir upptökur á mynd með Sylvester
Stallone í aðalhlutverki og kemur myndin til með að bera naf-
nið „Over the top“ og verða ein af þessum trukkamyndum.
Stallone leikur sama hörkutólið og venjulega en verður núna
í hlutverki vörubílstjóra.
Fyrir leik sinn í myndinni fór hann fram á litla tólf milljón
dollara og ku hafa fengið það í gegn vegna vinsælda sinna í
myndunum Rocky og Rambo. Sýningar hefjast á komandi sumri.