Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1987. Neytendur Hunang og blómafrævlar Flestum er eflaust í fersku minni, æsingurinn sem varð fyrir nokkrum árum þegar byijað var að selja blóma- frævla hér á landi. Frævlamir áttu að vera allra meina bót. Svo kom kvöld- vorrósarolían og allt ætlaði af göflun- um að ganga. Síðan höfum við fengið alls konar heilsubótarefiii en erum hætt að kippa okkur upp við það. Landinn er jafnvel kominn að þeirri niðurstöðu að gamla góða lýsið sé miklu betra heldur en ýmislegt inn- flutt heilsubótarefni. Eitt af því sem er flutt er til landsins og stendur til boða á „heilsubótar- markaðinum" er sambland af bý- flugnahunanginu royal jelly og blómafrævlum. Þetta eru belgir sem eru með 100 mg af royal jelly og 500 mg af blómafrævlum. Belgir þessir eiga að vera sérlega góðir fyrir konur sem náð hafa miðjum aldri. Pakkning með 30 hylkjum kostar um 700 kr. en það svarar til mánaðarskammtar. Einnig er til blanda sem er frekar ætluð karlmönnum en það er hin margrómaða ginsengrót, E vítamín og blómafrævlar, allt saman í einu hylki. Þau eru til í tveimur styrkleikum, 250 mg og 500 mg. Þriggja mánaða skammtur af þessum efhum kostar 650 kr. af því fyrrtalda og um 700 kr. af hinu. -A.BJ. í þessum stauk eru 30 belgir, mánaðarskammtur. DV-mynd Brynjar Gauti Nafnaruglingur á heimilisfræðikennurum Þegar við sögðum frá heimsókn í heimilisfræðikennslutíma í Seljaskóla í síðustu viku varð nafnaruglingur. Kennarinn var ranglega neíhdur Að- alheiður Auðunsdóttir en heitir réttu nafiii Aðalbjörg Sigtryggsdóttir. Aðal- heiður er hins vegar námsstjóri í heimilisfræðum. Við biðjum hlutað- eigendur afsökunar á mistökunum. -A.BJ. Upplýsingaseðill til samanburðar á heimiliskostnaði Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Nafn áskrifanda j Heimili j Sími ! Fjöldi heimilisfólks i Kostnaður í janúar 1987: 1 Matur og hreinlætisvörur 1 Annað kr kr. Alls kr. Dæmi: Vesturgata - Garðastræti. Eins og sjá má er verulega þrengt að umferðinni á Vesturgötunni og ekki er útsýnið gott fyrir ökumenn sem koma akandi eftir Garðastræti. í umferðinni Hvemig ekur þú yfir gatnamót? Sum gatnamót era hættulegri en önnur Það eru mörg götuhomin í Reykjavík sem eru hættuleg. Stund- um verður að aka aðeins út í götuna, sem veríð er að fara inn á, til þess að sjá hvort bílar eru að koma eða ekki. Einkum er þetta bagalegt í gamla miðbænum, en þó skiljanlegt, þar sem götumar í þeim bæjarhluta vom ekki gerðar fyrir umferðina eins og hún er í dag. Þó em sum götuhomin beinlínis gerð hættuleg með nútíma fram- kvæmdum þó sum þeirra séu það til bráðabirgða. Það em ein gatnamót sem ég vil sérstaklega nefna í þessu tilefni. Það em gatnamótin Vestur- gata - Garðastræti. Miklar bygg- ingaframkvæmdir hafa staðið þar yfir síðustu misseri. Svæðinu var vandlega lokað með hárri bámjáms- girðingu sem nær út á götuna. Utan með henni var síðan lagt fyrir gang- andi vegfarendur og girðing þar fyrir utan. Þarna er búið að þrengja vem- lega fyrir umferðina um Vesturgötu. En hættan er samt enn meiri á ofan- greindum gatnamótum. Vesturgatan liggur í boga við byggingarsvæðið og er því vonlaust fyrir ökumenn, sem koma Garðastrætið og ætla út á Vesturgötu, að sjá hvort bílar em á ferð þar. Ekki er hægt að sjá það fyrr en ökumaður hefur ekið bíl sín- um alveg inn á gatnamótin. Ætla mætti að þama væm einhver viðvö- runarmerki eða eitthvað sem drægi úr hraða þeirra sem koma upp Vest- urgötuna, en svo er ekki. Þama á að vera hámarkshraði 30 km/klst en svo er ekki að sjá á mörgum þeirra bíla sem þama aka um. í umsjá Bindindisfélags ökumanna Vissulega mætti bæta ástandið á þessum gatnamótum, og reyndar á mörgum öðrum í Reykjavík, en eitt verðum við að hafa í huga. Gatna- mótin em til staðar og meðan ástand þeirra er svo lélegt sem raun ber vitni er það okkar ökumannanna að haga akstri eftir aðstæðum. Flest umferðaróhöpp verða við gatnamót og því eigum við, kæm ökumenn, að vera vel á verði og haga akstri okkar eftir aðstæðum. Það sem á hinn bóginn gæti hjálpað okkur væri ef umferðaryfirvöld merktu sérstaklega hættulegustu gatnamót- in til að minna okkur á. Við megum aldrei aka samkvæmt því sem við höldum að aðrir bregðist við í um- ferðinni því þeir sjá umferðina ekki frá sama sjónarhorni og við. Það er ekki svó sjaldan sem lesa má í skýrslum um umferðarslys: „Ég hélt að hann ætlaði að stöðva!“ eða „Ég bjóst ekki við að hann myndi aka út á götuna!“ Við verðum að geta tekið ábyrgð á okkar ákvörðun- um og okkar akstri, það getur enginn gert það fyrir okkur. Kæri ökumaður, næst þegar þú leggur af stað á bílnum, hafðu stöð- ugt í huga að þú verður að geta tekið ábyrgð á eigin aksturslagi, mundu að þegar við mætumst, get ég verið óútreiknanlegur og þú verður að treysta á þig. Aktu því varlega yfir gatnamót. Þannig eykur þú öryggi meðbræðra þinna í umferðinni og stuðlar að bættri umferðarmenn- ingu. Nýjasta andlitskremið er búiö til úr blöndu af drottningarhunangi og ginsengrót. DV-mynd Brynjar Gauti Ginseng nú í andlits- kremið Komið er á markaðinn hér and- litskrem sem m.a. er búið er til úr royal jelly og ginsengrót. Þessi blanda hefiu' hingað ti) verið notuð í belgi til inntöku en nú er farið að framleiða krem úr þessum hollustuefnum. Krem þetta, sem er frá belgíska fyrir- tækinu Ortis, er sagt gefa góða vöm gegn kulda og einnig sól, vera mjög græðandi og hægt að nota bæði sem dag- og næturkrem. 50 g krukka kost- ar um 800 kr. -A.BJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.