Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Page 5
ea» FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1987. 5 Fréttir Stór skákviðburður á laugardaginn: Sextán sterkustu skákmenn landsins tefla í DV-húsinu Sextán sterkustu skákmenn land§ins munu etja kappi í veit- ingasal DV-hússins, Þverholti 11, á laugardaginn. Skákmótið er haldið í framhaldi af kjöri manns ársins 1986 hér á DV en sá heiður féll sem kunnugt er í skaut íslensku ólympíuskáksveitinni. Á skákmóti DV munu allir tefla við alla og verður umhugsunartími í hverri skák 7 mínútur á mann: „Þetta verður mjög sterkt mót, nokkurs konar upphitun fyrir IBM-mótið sem hefst á fimmtudaginn í næstu viku,“ sagði Jón L. Árnason stór- meistari í samtali við DV. íslenska ólympíuskáksveitin mætir að sjálfsögðu til leiks á DV-mótið en hana skipa sem kunnugt er þeir Helgi Ólafsson, Margeir Pétursson, Guðmundur Sigurjónsson, Jóhann Hjartarson, Karl Þorsteins og Jón L. Árnason. Aðrir keppendur verða: Friðrik Ólafsson stórmeistari. Sævar Bjarnason og Ingi R. Jó- hannsson, báðir alþjóðlegir meist- arar. Hannes Hlífar Stefánsson og Þröstur Þórhallsson sem gátu sér gott orð í skólaskákinni í Noregi um síðustu helgi. Elvar Guðmunds- son, Benedikt Jónasson, Ásgeir íslenska ólympíuskáksveitin veitir viðtöku nafnbótinni „Menn ársins 1986“ úr hendi Ellerts B. Schram ritstjóra. Á myndina vantar Margeir Pétursson en sveitin öll mun taka þátt i DV-mótinu á laugardaginn ásamt flestum öörum sterkustu skákmönnum þjóðarinnar. DV-mynd KAE Þór Árnason, Björgvin Jónsson og Mótsstjórar á DV-mótinu verða Páll Skúlason en Skáksamband ís- Ingvar Ásmundsson. þeir Ólafur Ásgrímsson og Georg lands sér um almenna mótsstjórn. Friðrik Olafsson stórmeistari og skrifstofustjóri Alþingis mun sýna listir sínar á DV-skákmótinu á laugardag. Vegleg peningaverðlaun verða í boði á DV-mótinu, alls 65 þúsund krónur og að auki mun DV styrkja Skáksambandið sérstaklega. Fyrstu verðlaun eru 25.000 krónur, önnur verðlaun 18.000 krónur, þriðju verðlaun 12.000 krónur og fjórðu verðlaun 10 þúsund krónur. Allir eru velkomnir að fylgjast með skákmótinu í DV-húsinu á laugardaginn klukk-an 14. -EIR Ökukennslu og prófdæmingu mjög ábótavant: Jafhvel helmingur nemendanna fellur Hjá einstaka ökukennurum féllu yfir 50% nemenda í fræðilegum próf- um á árinu 1985. Hjá sumum féllu yfir 30% í verklegum prófum. í um- ferðarslysaúttekt sinni undrast Jón Baldur Þorbjörnsson verkfræðingur að aldrei hafi verið gripið til svipt- ingar kennararéttinda og ekki einu sinni verið áminnt fyrir svo slakan árangur kennslunnar. DV hefur að undanförnu birt fréttir úr skýrslu Jóns Baldurs. Jón Baldur fjallar ítarlega um öku- kennsluna og prófdæmingu sem hvort tveggja reyndist mjög misjafn- lega af hendi leyst í hinum ýmsu lögsagnarumdæmum. Vísar verk- fræðingurinn til ökukennslu annars staðar á Norðurlöndunum og í Vest- ur-Þýskalandi. Hann segir endur- bætur á ökukennslu þar einkum felast í lágmarks kennslustunda- Gatnaframkvæmdir Reykjavíkurborgar gagnrýndar: Skortur á fagmennsku við hönnun gatnanna „Þegar á heildina er litið bera gatnaframkvæmdir borgarinnar vott um skort á fagmennsku við hönnun og útfærslu gatna,“ segir Jón Baldur Þorbjömsson bílaverkfræðingur i um- ferðarslysaúttekt sinni. „Sérstaklega hefúr hingað til skort á næga yfirsýn í sambandi við umferðartæknileg efni. „Annað atriði, sem setur mark sitt á gatnaframkvæmdir borgarinnar, er ófullgerðar götur og ófrágengin gatna- mót,“ segir Jón Baldur ennfremur. Hann gagnrýnir einnig umferðar- merkingar við gatnaframkvæmdir, segir raunar ekkert samræmi í upp- setningu þeirra og gagnsemi þeirra mjög takmarkaða. Verkfræðingurinn gerir tillögur um nauðsynlegar úrbætur í þessum efh- um. Meðal annars leggur hann áherslu á að sérfróður verkfræðingur í umferðartæknilegum efnum fjalli imi gatnagerðina og að upplýsingar frá svonefndum slysabanka verði nýttar með sjálfvirkri tölvuúrvinnslu. Þannig verði jafnan brugðist við til úrbóta þar sem sérstakar hættur komi í ljós. -HERB fjölda og aukinni menntun ökukenn- ara. Núna gilda engar reglur um lág- marksfjölda kennslustunda, aðeins óljós tilmæli dómsmálaráðuneytisins um um það bil 14 „viðmiðunartíma" samkvæmt kennsluvottorði. Jón Baldur leggur til að lágmarkskennsl- an standi í 20 tíma. Hann bendir á vandaða kennsluskrá danska dóms- málaráðunevtisins sem fvrirmvnd að skipulagi ökukennslunnar hér. Verkfræðingurinn gerir ráð fyrir að ökumenn fái fyrst bráðabirgða- skírteini til tveggja ára. Minnst fjórum mánuðum síðar fái þeir æf- ingakennslu við erfiðar aðstæður og hljóti ekki endanlegt ökuskirteini eftir tvö ár nema þeir hafi mætt í slíkar æfingar. -HERB LUKKUGETRAUN: Einu sinni í mánuði drögum við úr nöfnum kaupenda og seljenda um 5 daga ferð til Hamborgar með ferðaskrifstofunni Sögu. VERÐUR ÞÚ SÁ HEPPNI í FEBRUAR? bílatorg IM: I bílatorg MMC Pajero, langur, árg. 1985, blásans., ekinn 37.000 km. Verð kr. 850.000,- Honda Civic S 1.5, árg. 1984, gull- sans., lallegur bill, ekinn 35.000 km. Verð kr. 390.000,- Ford Escort XR3i, árg. 1984, svart- ur, ekinn 46.000 km. Verð kr. 470.000,- BÍLATORG fT'X JÍLATÖRG Mercedes Benz 190 E árg. 1983, Toyota Tercel 4x4, árg. 1985, blá- Mercedes Benz 280 SE, árg. 1984, hvítur, ríkulega útbúinn, ekinn sans., ekinn 38.000 km. Verð kr. Ijósgrænsans., mjög fallegur bill, 490.000,- 70.000 km. Verð kr. 830.000,- ekinn 72.000 km. Verð kr. 1.450.000,- Allar gerðir bíla vantar á söluskrá - mikil sala. Opið laugardaga kl. 10-18. BÍLATORG NOATUN 2 - SIMI 621033

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.