Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1987, Page 40
FRÉTT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er * notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 1987 Svona var biðröðin i Heimilistækjum í gær þegar fólk var að biða eftir af- greiðslu á „afruglurum" til sjónvarpsmóttöku eða „sjónvarpssálfræðingum" eins og sumir kalla tækin. Allt frá því að Stöð 2 tók til starfa hefur vart verið hægt að anna eftirspurn þessa merkilega tækis og virðist litil breyt- ing ætla að verða þar á. DV-mynd KAE Lögreglan í Reykjavík var kölluð út að Hamarshúsinu í gærdag en þar hafði kona stungið mann þrisvar í brjóstið með hnífi. Var maðurinn talinn hættulega slasaður og blæddi mikið úr sárum hans. V ar hann flutt- ur á sjúkrahús en mun nú úr lífs- milli þeirra af þessum sökum sem endaði með því að konan greip búr- hníf og stakk manninn með honum. Rannsóknarlögreglan hefur nú mál þetta til meðferðar. -FRI hættu. Konan, sem á heima í húsinu, fékk manninn í heimsókn en hann er fyrr- um sambýlismaður hennar. Mun henni hafa verið lítt um heimsókn- ina gefið og vildi að maðurinn yfirgæfi íbúð sína. Kom til ósættis Maðurinn borinn út úr húsinu mikið slasaður. DV-mynd S Stefán vill J Jcm G. Hauksscm, DV, Akureyii Stuðningsmenn Stefans Valgeirssonar ræddu um það í gær að kalla sérfram- boðið Samtök um jafhrétti og félags- hyggju. Ræddu þeir um að taka fyrsta táknræna stafinn, J, og óska eftir að hann yrði notaður á listann í komandi kosningum. „Við ræddum jafhframt um úrsagnir manna úr Framsóknarflokknum, hvort og þá hvemig skyldi standa að þeim og hvaða tilgangi það þjónaði," sagði sr. Pétur Þórarinsson á Möðm- völlum en hann skipar 2. sæti listans. „Niðurstaðan varð sú að það yrði að vera persónulegt mat hvers og eins hvað hann gerði.“ Pétur sagði ennfremur að menn teldu rétt að sýna flokksforystu Fram- sóknarflokksins, þar sem þeir hefðu ekki fengið að koma fram undir merki flokksins, að þeir væm óánægðir. Tíu tékkhefti voru í skápnum í peningaskáp þeim sem stolið var úr fiskverkuninni Hafrifirðingi -Ahf. í Hafnarfirði í fyrrinótt vom tíu ónotuð tékkhefti en engir aðrir fjármunir. Ekki hefúr tekist að hafa uppi á þjófinum eða heftun- um. Málið er í rannsókn hjá RLR. -FRI SKREYTINGAR við öll tækifæri Opið frá kl. 10-19 alla daga vikunnar. GARÐSHORNÍÍ Suðurhlíð 35 sími 40500 ^ við Fossvogskirkjugarðinn. Krafa hestaeigenda: Ljósmyndara í sláturhúsin Fræðslustjóramálið: Sverrir rtrekar fýrri tillögur Jón G. Hauksson, DV, Akureyri: „Það hefur engin breyting orðið á afstöðu minni í málinu. í bréfi því sem ég sendi frasðsluráðinu ítrekaði ég þær tillögur sem ég hafði sett fram í fyrra bréfi mínu, svo og óskir mín- ar um að ráðið endurskoði afstöðu sína og taki málefhalega á málinu,“ sagði Sverrir Hermannsson við DV í morgun. Sverrir sagði að málið væri nú niðri í Alþingi sem væri æðsta ráðið. Sturlumálið yrði tekið fyrir þar næstkomandi mánudag. Taldi hann víst að framkomin tillaga yrði felld með frávísunartillögu. Aðspurður um hvort ríkislögmað- ur og lögmaður Sturlu væru fkmir að ræða málið kvað Sverrir svo ekki vera „enda ekki von að þeir ræði saman, meðan málið er hjá æðsta ráðinu, sem er Alþingi". „Það hlýtur að vera krafa okkar hestaeigenda að sláturhús í landinu komi sér upp spjaldskrá með lýsingu eða mörkum þeirra gripa sem er slátr- að. Ég hef sjálfur orðið fyrir þeirri ógæfu að missa besta reiðhest minn í sláturhús fyrir misskilning og aldrei fengið bætur,“ sagði hestamaður í samtali við DV, einn fjölmargra sem hafa haft samband við blaðið í kjölfar frétta af hugsanlegum hestaþjófnaði í Öxarfirði og starfeaðferðum í slátur- húsum. Eins og fram hefur komið í DV eru hestaþjófar allt að þvi boðnir vel- komnir þegar þeir birtast með feng sinn í sláturhúsum. Engra skilríkja um eignarrétt er krafist og innleggið greitt án refja. „Ef spjaldskrá með lýsingu dugir ekki held ég að tími sé kominn til að ljósmyndarar verði ráðnir að slátur- húsunum til að mynda þá hesta sem komið er með til slátrunar. Ég tel að samtök hestamanna í landinu ættu að beita sér fyrir þessu máli. Núverandi ástand er óviðunandi," sagði hesta- maðurinn. -EIR Félagsmálaráðuneytið: Farið verði að lögum Deila félagsmálaráðuneytisins og borgarstjórnar Reykjavíkur vegna LOKI Fær maður þá ekki Ijós- myndarabuff- með lauk? Veðrið á morgun: Austan- og norð- austanátt Á fostudaginn verður austan- og norðaustanátt, víðast 2-4 vindstig. Dálítil él við norður- og austur- ströndina en annars þurrt, hiti -1 til -8 stig. fræðsluráðs Reykjavíkur og skóla- málaráðs heldur áfram. Eftir að félagsmálaráðuneytið hafði úrskurðað að þau verkefni sem færð höfðu verið frá fræðsluráði til skóla- málaráðs skyldu færð aftur til fræðs- luráðs og að ráðin gætu ekki starfað saman hlið við hlið með sama verk- sviði, svaraði borgarráð því til að ábending félagsmálaráðuneytisins væri óþörf. Nú hefúr félagsmálaráðuneytið enn skrifað borgarstjóra, Davíð Oddssyni, bréf og ítrekað fyrri kröfur. Þar segir meðal annars að borgarstjóm bresti heimild að lögum að færa lögbundin verkefni fræðsluráðs til skólamaála- ráðs. í lok bréfeins segir: „Væntir ráðu- neytið þess að borgarstjórn Reykja- víkur hlíti þessari niðurstöðu og sjái svo um að framvegis verði farið að lögum í þessu efni.“ -S.dór Stakk mann þrisvar í brjóstið með hnífi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.