Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1987, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1987, Qupperneq 12
54 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1987. Björgunarsveitir eða aðrir sem þurfa á öflugum bíl að halda Til sölu Volvo Lapplander árg. 1981. ekin 15.000 km. Bifreiðin er sérútbúin fyrir björgunar- og leitar- störf og getur sá búnaður fylgt. Upplýsingar í síma 93-7296 (Björn) á daginn, 93-7346 á kvöldin. VEGAGERÐIN UTBOÐ Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í verkið: Tunguvegur í Svarfaðardal (Lengd 2,6 km, fylling 18.000 rúmmetrar, burðarlag 6.000 rúmmetrar). Verki skal lokið eigi síðar en 1. október 1987. Útboósgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 23. febrúar nk. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 9. mars 1987. Vegamálastjóri. Sgl Frá Borgarskipulagi * (r Kynning á deiliskipulagi Tillögur að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Gróf- inni, Vesturgötu, Norðurstíg og Tryggvagötu (staðgr. r. 1.132.1) verða til kynningar í Byggingarþjón- ustunni að Hallveigarstíg 1 frá mánudeginum 23. febrúar til mánudagsins 16. mars nk. Athugasemdum eða ábendingum sé komið til Borgar- skipulags, Borgartúni 3, 105 Reykjavík, innan sömu tímamarka. Einnig er minnt á kynningu áður auglýstra reita í Þing- holtum og á skipulagi Kvosarinnar á sama stað. Framhaldsnám í sérkennslufræðum við Kennaraháskóla íslands Kennaraháskóli íslands býður fram eftirfarandi fram- haldsnám til B.A. prófs í sérkennslufræðum sem hefst haustið 1987: 1. áfangi (30 einingar), hlutanám. 2. áfangi (30 einingar), hlutanám. Hvor áfangi tekur tvö ár í hlutanámi þannig að unnt er að stunda það samhliða kennslu. Kennarar sem Ijúka báðum áföngum ásamt verklegu námi (15 ein.) hljóta B.A. gráðu í kennslu barna með sérþarfir. Til að hefja fyrsta áfanga námsins þurfa umsækjendur að hafa full kennararéttindi (skv. lögum 48/1986) og a.m.k. tveggja ára kennslureynslu. Umsækjendur um annan áfanga skulu auk þess hafa lokið fyrsta áfanga eða samsvarandi viðurkenndu námi í sérkennslufræðum (30ein.). Kennaraháskóli íslands áskilur sér rétt til að velja úr hópi umsækjenda á grund- velli skriflegra umsókna, meðmæla og viðtala. Nánari upplýsingar um nám þetta, ásamt umsóknar- gögnum, fást á skrifstofu Kennaraháskóla íslands, Stakkahlíð, 105 Reykjavík. (Sími 688700). Umsóknarfrestur er til 15. mars 1987. Rektor V - drátthagur Vestur-Islendingur Tom Bjarnason heitir einn þekkt- asti teiknari og bókaskreytinga- maður Kanadamanna og, eins og nafnið bendir til, er hann af ís- lenskum ættum, upprunalega frá Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Ekki er vitað til þess að hann hafi komið hingað til íslands. Foreldrar hans bjuggu í Winnipeg þar sem Tom Bjarnason ólst upp og gekk i skóla ásamt Lauru systur sinni. Á unglingsá- rum sínum afréð hann að læra grafíska hönnun en þar sem engan listaskóla var þá að finna í Winnipeg innritaðist hann í slíkan skóla í Detroit, Michigan. Að því loknu sneri Tom Bjarna- son aftur til Kanada í leit að frægð og frama en eftir tíu ára þrældóm á auglýsingastofum þar ákvað hann árið 1958 að freista gæfunnar í lausamennsku. Til þessa hefur Tom Bjarnason ekki haft ástæðu til að iðrast þeirr- ar ákvörðunar. Hann hefur gert teikningar fyrir öll helstu tímarit í Kanada, þar á meðal Toronto Life, Readers Digest, Canadian Business og The Canadian Magaz- ine. Þar að auki hefur hann oft- sinnis unnið fyrir blöð og tímarit í Bretlandi, Þýskalandi, Svíþjóð og Suður-Afríku. Tom Bjarnason hefur forðast að sérhæfa sig heldur hefur hann kappkostað að ná valdi á alls kyns tæknibrögðum og taka að sér margháttuð verkefni. í grein um hann, sem birtist í kanadíska tíma- ritinu „The Studio" árið 1985, er farið lofsamlegum orðum um pa- steltækni sem hann hefur þróað fyrir sjónvarpsupptökur. Frímerki af skipum Verkefnin spanna yfir auglýsing- ar, þar á meðal risastór auglýsinga- spjöld, myndskreytingar fyrir greinar, smásögur, ljóð, bókakáp- ur, sjónvarpsþætti, og fyrir nokkr- um árum teiknaði Tom Bjarnason 21 frímerki af skipum fyrir kana- dísku póstþjónustuna. Nokkur sýnishorn af myndræn- um úrlausnum hans eru hér við hliðina. Tom Bjarnason segist fá flestar bestu hugmyndir sínar á ferðalög- um og hefur raunar búið bæði í Englandi og annars staðar í Evr- ópu. Meðal annars fékk kanadíska ríkisstjórnin honum það verkefni að fjalla í myndum um kanadísku hersveitirnar sem enn eru staðsett- ar í Þýskalandi. Verk þau, sem hann gerði af því tilefni, eru nú í kanadíska hersafn- inu í Ottawa. Raunar virðist Tom Bjarnason vera í essinu sínu við að teikna alls kyns uppákomur þar sem vél- ar, bílar, flugvélar eða skip koma við sögu. Sjálfur segist hann vera með flug- og bíladellu og hefur átt marga merkilega bíla um dagana. Iþróttamyndir hans eru einnig eftirsóttar, bæði af tímaritum og söfnurum. í greinum um Tom er einnig minnst á áhuga hans á að túlka starfsemi ýmiss konar fyrirtækja í teikningum, og hefur hann tekið að sér að búa til „prófíla" af bönk- um, framleiðslufyrirtækjum og verslunarmiðstöðvum í Kanada. Mjúkhentur „Með þessum hætti fá fyrirtæki mun persónulegri meðferð heldur en ef ljósmyndari væri fenginn til að skrásetja það sem fram fer innan veggja þeirra," segir Tom Bjarna- son. „Um leið bera þau úr býtum litríkar frummyndir sem hægt er að hengja á veggi, starfsfólkinu til augnayndis." Cubby Marcus, forstjóri Enter- prise Advertising Associates, sem er ein stærsta auglýsingastofa í Kanada lýsir teikningum Tom Bjarnason á eftirfarandi hátt: „Myndir hans eru bæði lausar í sér og lausar við öll óþarfa smáatriði. Samt gefa þær gífurlega mikið til kynna.“ James Helzer, forstjóri Unicover fyrirtækisins, sem sérhæfir sig í alþjóðlegum fyrstadagsumslögum, segir ennfremur um stíl Tom Bjarnason: „Sumir listamenn nota mýkt og lauslega teikningu til að fela vanþekkingu sína. Tom veit allt um það sem hann er að teikna hverju sinni en tekst samt að fara mjúkum höndum um það.“ Sjálfur segist Tom Bjamason vera rómantíker í sér, sífellt á hött- um eftir því sem ekki er hægt að teikna. Annað áhugamál hans er vöxtur og viðgangur grafískrar hönnunn- ar í Kanada. Hann hefur vakið athygli á framlagi ýmissa gleymdra kanadískra teiknara í greinum og fyrirlestrum og var meðal þeirra sem stofnuðu samtökin CAPIC (The Canadian Association of Pho- tographers and Illustrators in Communications). Síðasta orðið um þennan drátt- haga Vestur-íslending á . Ken Rodmell, einn af forsvarsmönnum Creative Key Publishers í Kanada: „Tom Bjamason er einfaldlega sí- gildur teiknari og grafískur hönnuður." -ai Nokkrar teikningar Tom Bjarnason af þjóðhöfðingjum og stjórnmála- mönnum viða um heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.