Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1987, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1987.
57
Bílar
1986 „sprengiár" í bílainnflutningi til íslands:
Subaru mest seldi einstaki bíllinn
- Bífreiðar og landbúnaðarvélar með flesta selda bíla eða alls 2526
Innflutningur bíla sló öll fyrri met
á síðasta ári. Alls voru fluttir inn
13.352 nýir fólksbílar á árinu á móti
5.655 á árinu 1985. Ef heildarfjöldi
nýrra og notaðra bíla er lagður sam-
an kemur út samkvæmt skýrslu
Hagstofú Islands að heildarinnflutn-
ingur bíla til landsins nam 15.851 bíl
á árinu 1986 á móti 7.167 á árinu
áður.
Hlutur innflytjendanna af kök-
unni er misstór. Bifreiðar og land-
búnaðarvélar (Lada og UAZ) áttu
stærstu sneiðina, 2526 bíla eða
18,38%. Næstir komu Ingvar Helga-
son h.f. (Nissan - Subaru - Trabant
- Wartburg) með 1967 bíla eða
14,31%. Þriðju i röðinni komu síðan
Hekla h.f. (Mitsubishi - Volkswagen
- Audi - Leyland) með 1679 bíla eða
12,22%. Fjórðu eru P. Samúelsson
(Toyota) með 1460 bíla eða 10,62%.
I fimmta sæti á hæla þeim kemur
Sveinn Egilsson (Ford - Suzuki -
Fiat) með 1361 bíl eða 9,90%. í sjötta
sæti er Bílaborg (Mazda - Hino -
Lancia) með 978 bíla eða 7,12%. Sjö-
undu er Brimborg (Daihatsu - FSO),
883 bílar, 6,43% og áttundu er Veltir
(Volvo) með 506 bíla, 3,68%.
Subaru mest seldi einstaki
bíllinn
Þegar tölumar eru skoðaðar nán-
ar kemur í ljós að sú einstaka gerð
bfla, sem mest er seld, er Subaru
1800, alls 861 bíll. Næst honum kem-
ur svo Lada 2108 (Samara), alls 810
bílar. Þessi mikla sala Subaru er
sérstæðari fyrir þær sakir að hér er
um að ræða helmingi dýrari bíl en
Löduna. Næstir einstakra gerða
koma svo nánast hnífjafnir, Toyota
Corolla, 624 bílar, og Daihatsu
Charade, 622 bílar. Þar á eftir kemur
svo Mazda 323, 587 bflar.
Aukning í innflutningi notaðra
bíla
Mikil aukning hefur einnig orðið
í innflutningi notaðra bíla á árinu,
og er þá yfirleitt um að ræða tveggja
til þriggja ára bfla. Alls voru fluttir
inn 1.666 notaðir fólksbílar á árinu.
Langmest ber þar á Mercedes Benz
en alls voru fluttir inn 330 notaðir
bílar af þeirri gerð. Athygli vekur
sá kippur sem innflutningur þeirra
tók í lok ársins, því á tímabilinu
okt.-des. voru alls fluttir inn 162 bfl-
ar eða helmingur þess sem flutt var
inn á öllu árinu. Ford-bflar frá
Þýskalandi voru einnig stór hluti
af innfluttum notuðum bílum á síð-
asta ári, aðallega Sierra og Escort,
en alls voru fluttir inn 211 bílar og
þar af 128 síðustu þrjá mánuðina.
Þessar tölur gefa til kynna að inn-
flutningur notaðra bíla fer greini-
lega vaxandi og verður án efa stór
hluti heildarbflainnflutnings á þessu
ári ef svo heldur sem horfir.
Fjórhjólin ryðjast inn á mark-
aðinn
Fjórhjólin svokölluðu hafa heldur
betur tekið við sér í sölu á síðasta
ári. Þessi fjórhjóla ökutæki, sem
lentu utanveltu í gömlu umferðar-
lögunum og var bætt inn í þau nýju
á síðustu stundu í efri deild Alþing-
is, náðu miklum vinsældum þótt
enginn gæti ákveðið hvemig skyldi
skrá þau og hvaða ökuréttindi þyrfti
til að aka þeim. Alls voru flutt inn
225 slík farartæki og ekki virðist
vera neitt lát á eftirspuminni. Ekk-
ert slíkt tól var flutt inn á árinu 1985.
Þrátt fyrir góðæri - engin bíla-
sýning
Sjaldan hefur einn aðili fengið
annað eins upp í hendumar og raun-
in varð á fyrir íslenska bílainnflytj-
endur þegar verð á bflum lækkaði í
kjölfar kjarasamninganna á síðasta
ári. En þrátt fyrir augljóst góðæri í
þessari grein virðist það ekki skila
sér á öllum vígstöðvum. Ráðgert
hafði verið að halda alþjóðlega bíla-
sýningu hér á landi 3. til 14. apríl
næstkomandi, og raunar er enn ver-
ið að segja frá þeirri sýningu í
erlendum þflablöðum sem út koma
þessa dagana. Reyndin er hins vegar
sú að íslenskir bílaáhugamenn fá
ekki tækifæri til að sjá það nýjasta
sem er að gerast í bílaheiminum á
einum stað hérlendis að sinni þar
eð Bílgreinasambandið hefur horfið
frá því að halda þessa sýningu. Opin-
bera skýringin á þessu er sú að ekki
hafi fengist heppilegt húsnæði fyrir
sýninguna, en það heíúr einnig
heyrst að raunverulega ástæðan sé
að sum stærstu umboðanna hafi ekki
viljað eða séð sér fært að taka þátt
í slíkri sýningu og þar með hafi hún
fallið um sjálfa sig. Skemmtilegra
hefði verið að bflainnflytjendur
hefðu getað sameinast um að sýna
það helsta sem þeir hafa upp á að
bjóða eftir eitt mesta „sprengiár"
sem enn hefur komið í innflutningi
bíla til Islands.
Austin Mini
enn í fullu fjöri
eftir 27 ár
Gamli góði Austin Mini, sem fram
kom á sjónarsviðið árið 1959, er enn
í fullu fjöri og gerir það gott. Allar
sögusagnir um væntanlegt fráfall hans
eru sem sagt stórlega ýktar.
Það eru nú liðin 27 ár síðan hann
skaust fram í heimi bílaiðnaðarins og
þótti þá algjör bylting með þverstæðri
vélinni, kassalaga yfirbyggingu og
framhjóladrifi. I dag nýtur Mini enn
mikilla og endumýjaðra vinsælda að
sögn framleiðandans.
Graham Day, sem tók við sem stjóm-
arformaður Austin Rover í maí á
síðasta ári, sagði fyrir skömmu að
hann hefði orðið skelfingu lostinn er
hann frétti af ráðagerðum um að hætta
framleiðslu á Mini á þessu ári. Þessi
áform lét hann leggja snarlega á hill-
una.
„Ég fékk hundmð bréfa. Sumir vom
að spyrja hvar þeir gætu náð í notað-
an Mini, ég svaraði þeim með því að
segja að við værum enn að framleiða
bílinn," sagði hann.
Margir hafa líkt eftir þessum sívin-
sæla bfl, eftirlíkingamar em í dag
fjölmargar. Salan á þessum bfl, sem
eitthvert það stysta pils, sem enn hefúr
sést á mannfólkinu, dró nafri af, er nú
komin yfir fimm milljónir.
Þrátt fyrir þröngt innanrými, sér-
kennilega aðstöðu ökumanns í akstri
- sem einu sinni var lýst á þann veg
að að aka bílnum væri eins og að sitja
á neðri hæð hinna frægu strætisvagna
i London, þá er eftirspumin enn slík
að Austin Rover sendir frá sér á milli
500 og 650 bíla frá verksmiðju sinni í
Longbridge í Mið-Englandi.
Mini táknar það sama fyrir Bretland
og hin eilífa „bjalla" - nú framleidd í
yfir 20 milljón eintökum á 40 árum -
þýddi fyrir Vestur-Þýskaland og Citro-
en 2CV, „bragginn", sem enn er í
framleiðslu, hefur þýtt fyrir Frakk-
land.
Ekki er það svo að bíllinn, sem i dag
selst á 228.000 krónur á heimamark-
aði, gefi Austin Rover svo mikið í aðra
hönd. „Þótt hann sé hlutfallslega
ódýrari en þegar hann kom fyrst á
markað og sé fyrir löngu búinn að
borga upp allan hönnunarkostnað, þá
er ekki mikill gróði af framleiðslu
hans,“ segir einn talsmanna Austin
Rover. „I raun er það ímyndin sem er
gróðinn - því ef við reyndum að hætta
framleiðslu á bflnum þá rækju margir
upp ramakvein," bætti hann við.
Nú þegar Mini er „nauðsyn" fyrir
sumar konur í París og hefur nánast
orðið að trúaratriði í Japan, landi hins
ódýra smábfls, þá er hann enginn ný-
græðingur hvað tískuna varðar.
Hann kom fram á sjónarsviðið 1959,
mitt í mikilli hringiðu breytinga, á
tímum er London var miðpunktur nýs
frjálslyndis í lífsháttum og þá lenti
Mini í miðju þeirrar hringiðu.
Hippamir máluðu á hann blóma-
myndir. Unglingamir skrúfúðu á hann
breiðar felgur, beinan útblástur fiá
vélinni, settu á hann aragrúa stórra
aukaljósa og þóttust vera að vinna
Monte Carlo rallið.
Ýmsar gerðir sáust skjótast fram á
sjónarsviðið. Allt frá grunngerðinni
með 850 cc vélinni upp í lúxus Rad-
ford-útgáfuna með leðursætum,
mælaborði úr valhnotu, rafdrifiium
rúðum og að sjálfsögðu með verðmiða
við hæfi.
Það er kaldhæðnin sjálf uppmáluð
að mestu mistökin í framleiðslu Mini
hefðu getað orðið grunnurinn að
mestu velgengninni. Hálfgerð ,jeppa-
gerð“, kölluð Mini-Moke, með
segldúksþaki og lágmarks útbúnaði,
náði ekki hylli þeirra sem honum var
ætlað, fólks í landbúnaðinum, vegna
þess hve veghæð bílsins var lítil.
En það var tískufólkið á Kings Road
i Chelsea í London, sem féll fyrir þess-
arri gerð og það urðu mikil læti þegar
British Leyland, en svo nefndist fyrir-
tækið í þá daga, hætti framleiðslu
þessarar gerðar. I dag má kaupandi
teljast heppinn að finna einn slíkan
notaðan fyrir um 9o þúsund krónur.
Mini náði því á árunum eftir 1960
að leika aðalhlutverkið í kvikmynd -
þrír Mini-Cooper bflar léku þá aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni „The Ital-
ian Job“, ásamt þeim Michael Caine
og Noel Coward.
Þá var það sú della sem geisaði á
árunum í kringum 1970, hve margir
gætu troðið sér inn í einn Mini. Sam-
kvæmt heimsmetabók Guinness þá
tókst 33 námsmönnum við skóla í
London að troða sér inn í bíl sem ætl-
aður var fyrir fjóra árið 1970.
Á síðari árum hefur Austin Rover
ekki einu sinni haft fyrir því að aug-
lýsa mest selda fjöldaframleidda bíl
sem enn hefur verið framleiddur á
Bretlandi - yfir fimm milljónir bíla
seldir á 27 árum.
„Þegar við fórum í smá auglýsinga-
herferð fyrir síðustu jól tók salan
mikinn fjörkipp. Salan á síðasta ári í
Frakklandi var 6.719 bílar, aukning
um 15%. I Japan seldust á síðasta ári
2.280 bflar eða 100% aukning frá árinu
á undan," sagði talsmaður Austin
Rover. '
Mini á sér marga „foreldra". Hönn-
uður hans, Alec Issigonis, vann fyrir
British Motor Corporation (BMC),
þegar hann sá fyrst dagsins ljós. En í
tímans rás hefur nafri foreldranna
breyst. Fyrst breyttist það í British
Leyland, þá í BL og loks í Austin
Rover.
En það var einn hópur sem ekki lifði
það að sjá á bak Mini. Graham Day
sagði nýíega í viðtali við BBC að líf
Mini myndi örugglega teygjast fram á
árið 1991. Þegar hann var spurður um
það hvað orðið hefði af þeim stjóm-
endum fyrirtækisins sem fyrirskipuðu
andlát hans á sínum tíma þá varð stutt
þögn og svo kom svarið: „Þeir vinna
ekki lengur fyrir fyrirtækið." (Reuter)
Þrátt fyrir þröngt innanrými, skritna akstursaðstöðu og úrelt útlit er Miniinn
sprellifandi, þrátt fyrir sögusagnir um að hætta ætti framleiðslu hans. Eftirspum-
in er enn næg til að framieiddir eru á milli 500 og 650 bilar á viku. Á efri
myndinni er sú gerð sem sá fyrst dagsins Ijós árið 1959 og kallaðist þá Aust-
in Seven. Á neðri myndinni er 1987 árgerðin sem nefnist Mini Mayfair.
Nýr sýningarsalur hjá Toyota
Fyrir skömmu opnaði Toyota-
umboðið P. Samúelsson og Co nýjan
glæsilegan sýningarsal í húsakynn-
um fyrirtækisins að Nýbýlavegi 8 í
Kópavogi. Gefst þar nú gott tæki-
færi til að skoða það helsta sem
fyrirtækið býður upp á af nýjum bfl-
um. Við opnunina var kynnt ný gerð
af Toyota Camry en nánar verður
sagt frá henni hér á bflasíðunni á
næstunni.
Við síðustu áramót urðu þær
breytingar á rekstri fyrirtækisins að
frá þeim tíma er Páll Samúelsson
forstjóri en Bogi Pálsson er fram-
kvæmdastjóri. Deildarstjóri mark-
aðsdeildar er Hannes Strange og
þjónustudeildar Jóhannes Jóhann-
esson.