Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1987, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1987, Qupperneq 16
58 LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1987. Morðinginn beið þolinmóður eftir fórnardýrinu. Hann faldi sig í myrkr- inu neðst við stigann í íbúðarhúsinu i París. Svo skaut hann fyrirvara- laust á manninn sem kom niður stigann. Skotin voru þrjú og maður- inn lést samstundis. Jaques Perrot Jaques Perrot hét maðurinn sem var myrtur. Hann var þrjátíu og niu ára og dauða hans bar upp á 27. des- ember 1985. Hann var kunnur maður í Frakklandi og morðið vakti þegar í stað mikla athygli. Þó er þáð skoð- un margra sem við rannsókn málsins hafa unnið að aldrei muni takast að upplýsa hver var að verki. Er þó ástæða til að ætla að ýmsir lögreglu- menn hafi lagt sig fram um að reyna að upplýsa morðið þvi Jacques Per- rot var náinn vinur Laurents Fabius sem var þá forsætisráðherra. Dáður og öfundaður Perrot var kunnur maður eins og fyrr segir. Hann var lögfræðingur með alþjóðaviðskipti og fjármál sem sérgrein og hafði góða framkomu. Þá hafði hann verið kvæntur einni kunnustu íþróttakonu í Frakklandi, Darie Boutboul, en hún var þekkt fyrir dugnað sinn sem knapi á veð- hlaupabrautinni og fyrir fegurð sína. Um tíma benti því allt til þess að Jaques Perrot væri sólarmegin í líf- inu. En Perrot var ekki aðeins dáður. Hann var líka öfundaður og undir lokin vafalítið einnig hataður því annars hefði hann vart verið ráðinn af dögum á þann hátt sem sagt hefur verið frá. Kúlunum þremur sem urðu honum að bana var skotið úr riffli með mikilli nákvæmni. Ein hitti hann í hjartað, önnur í mitt ennið og sú þriðja í annað augað. Líktist hefndardrápi á Sikiley Aðferðin, sem beitt var við morðið, líktist mjög því sem stundum hefur þekkst þegar glæpasamtök eins og mafían eða vissir aðilar á Sikiley hafa verið að verki en þó efast lög- reglan mjög um að mafían eða Sikileyingar hafi verið að verki. í fyrstu stóð lögreglan uppi án nokkurrar vísbendingar því henni var ekki kunnugt um að Perrot hefði Hjónin með syni sínum, Adrian. Á innfelldu myndinni má sjá bankastjórann Calvi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.