Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1987, Side 19
LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 1987.
61
Bob í bobba
Bob Geldof á við ramman
reip að draga. Sólóplatan
hans, Deep in the Heart
of nowhere, hefur fengið fremur
dræmar viðtökur, að minnsta
kosti í Bretlandi. Lögunum This
is the World Calling og Love
Like a Rocket, sem hafa komið
út á smáskífum þar í landi, hefur
heldur ekki vegnað vel.
Hverjar svo sem ástæður þessa
eru er Geldof sjálfur sáróánægð-
ur. „Ef þessi plata vekur ekki
athygli þá gengur ekkert sem ég
geri. Deep in the Heart of now-
here er líklega besta plata sem
ég hef nokkurn tíma unnið að,“
sagði hann rétt áður en platan
var gefin út.
Sala á plötunni hefur ennfrem-
ur farið hægt af stað í Bandaríkj-
unum. Það gæti þó hugsanlega
átt eftir að breytast enda stutt
síðan hún kom út þar í landi.
Bob hefur látið hafa eftir sér að
hann vonaðist til að platan yrði
metsöluplata í Bandaríkjunum.
„Þeir hafa aldrei hlustað á neitt
sem ég hef sent frá mér,“ segir
hann, vansællar minningar um
viðtökurnar sem Boomtown Rats
fengu þar vestur frá á sínum
tíma.
Tónleikum aflýst
Vandræði Bob Geldofs eru hins
vegar mest heima fyrir. I vikunni
neyddist hann til að aflýsa fyrir-
hugaðri hljómleikaferð um Bret-
land vegna lélegrar forsölu. Fyrstu
tónleikarnir áttu að vera í Glasgow
um næstu helgi. Forráðamenn
Phonogram útgáfunnar, sem sér
um mál Geldofs, sögðu hins vegar
að ástæða frestunarinnar væri end-
urskipulagning á tónleikum hans
um allan heim. Talsmaður fyrir-
tækisins sagði að tónleikaferðin
um Bretland yrði farin síðar á ár-
inu.
Á meðan þessu fer fram selst
sjálfsævisaga Geldofs, Is that it,
eins og heitar lummur. Og enn er
verið að heiðra hann fyrir framlag
sitt í þágu hungraðra í Afríku.
Nýlega var hann sæmdur verð-
launum þriðja heimsins fyrir störf
að mannúðarmálum. En að höfuð-
verkur hans í dag skuli vera
tónlistin er nokkuð sem engan gat
órað fyrir. Allra síst hann sjálfan.
F orboðinn ástardúett
Breski dúettinn Commun-
ards hefur vakið verulegra
athygli í poppheiminum.
Þeir sendu á síðasta ári frá sér sína
fyrstu breiðskífu sem innihélt
meðal annars lagið Dont leave me
this way. Það var reyndar upp-
runalega vinsælt í flutningi
Thelmu Houston (móður Whit--
hney), en útgáfa Commundars var
ekki síðri. Fleiri lög af þessari
fyrstu, plötu dúettsins hafa náð
vinsæidum, sérstaklega í Bret-
landi. Má þar nefna So cold the
nigth og nú síðast You are my
world.
Tónlist Communards er einskon-
ar sambland af diskói og djassi, í
mjög frjálslegri skilgreininu þeirra
hugtaka. Reyndar ber tónlistin
mikinn keim af Bronski Beat enda
fyrrum driffjöður þeirrar sveitar,
Jimmy Somerville, annar liðs-
manna Communards. Hinn heitir
Richard Coles og er menntaður í
klassískum píanóleik.
Helgaipopp
Þorsteinn J. Vilhjálmsson
Forboðin ást
Sommerville og Coles eru báðir
hommar og draga enga dul á það.
Textagerð Sommerville hefur reynd-
ar alla tíð einkennst af tjáningum
eigin tilfinninga. Er skemmst að
minnast lagsins Smalltown boy sem
Bronski Beat gerðu feikivinsælt. Þar
sagði frá ungum einmana homma
sem hraktist að heiman. Á breiðskífu
Communards eru yrkisefnin af svip-
uðum toga. í laginu Forbidden love
segir meðal annars: „Ást okkar er
hinn forboðni ávöxtur. Við tökum
hvern bita með stolti."
Communards fara í mikla tónleika-
ferð til Bandarikjanna í vor. Önnur
breiðskífa er í deiglunni á þessu ári.
Þessi sérstæði dúett virðist til alls
líklegur. Eða eins og blaðamaður
New Mucical Express komst að orði.
„Þetta eru piltar sem reikna má
með.“
Y?.:' .
Steve Jones snúinn aftur, i sömu
gallabuxum og siðast.
Meðlimir Sex Pistols snúa
aftur í tónlistarheima
hver af öðrum, lífs eða
liðnir. Jonny Rotten er með PIL,
Sid Vicious er afturgenginn á
hvíta tjaldinu og nú er gítarleikar-
inn Steve Jones kominn aftur til
starfa. Hann stjórnar upptökum á
væntanlegri plötu fyrrum Duran
Duran liðsmannsins Andy Taylor.
Hann samdi nokkur lög í félagi við
Iggy Pop á sólóplötu þess síðar-
nefnda, Blah -Blah -Blah. Auk þess
hefur Steve Jones lagt til lög í
kvikmyndirnar Something Wild,
Miami Vive 2 og síðast en ekki
síst myndina Sid & Nancy. Sóló-
plata er væntanleg frá honum á
þessu ári.
„Hún verður í flestu frábrugðin
Never Mind the Bollocks plötu Sex
Pistols,“ sagði hann nýlega í
blaðaviðtali. Eins og aðrir núlif-
andi meðlimir þessarar harð-
skeyttu pönkhljómsveitar er hann
illur út í þá sem standa að gerð
myndarinnar um Sid Vicous og
Nancy vinstúlku hans. „í mynd-
inni lítum við út eins og algerir
hálfvitar. Það vorum við alls
ekki.“
Jones sér þó einn ljósan punkt
við myndina ella hefði hann ekki
lagt henni lið. „Myndin lýsir eitur-
lyfjaneyslunni i kringum hljóm-
sveitina mjög nákvæmlega.
Þannig var þetta. Ég er hins vegar
hættur öllu slíku. Ég hef ekki snert
á eiturlyíjum í tvö ár. Ef ég væri
ennþá í vitleysunni væri mér
ómögulegt að gera nýja plötu,"
segir Steve Jones.
Popp
Bob Geldof. Ahyggjufullur yfir tonlistarferli sínum.
Eftirlæti
Andy W arhol
Listamaðurinn Andy War-
hol er maður óútreiknan-
legur. Nafn hans hefur til
dæmis verið skráð í poppsöguna.
Hann stóð á bak við hljómsveit-
ina Velvet Underground á sínum
tíma sem frægt er orðið. Og enn
kemur nafn hans upp á vfirborð-
ið í poppheiminum. Að þessu
sinni heldur Warhol upp á tón-
list fjögurra tvítugra pilta sem
ættaðir eru frá suðurhluta Lund-
únaborgar.
Fjórmenningarnir kalla sig
Curiosity Killed the Cat. Þeir
eiga lagið Down to Earth sem
þessa dagana er ofarlega á
breska vinsældalistanum. Ef hin
leitandi og nýstárlega tónlist
Velvet Underground er borin
saman við tónlist þeirra. eru and-
stæðurnar algerar. Tónlist
Curiositv... er dæmigert dægur-
popp. að vísu í sinni bestu mynd.
Að því levti er ómögulegt að
segja nokkuð til um hvað veldur
velþóknun Warhol á hljómsveit-
inni. Svona er hann bara.
Skemmtanasýki?
„Hann er okkar einlægasti aðdá-
andi." staðfestir basspleikarinn
Nick Thorp. Skýringuna á því telja
hljómsveitarmeðlimir vera þá að
þeir séu ein af hugdettum lista-
mannsins. „Hann fær víst svona
dellu á fimm ára fresti." segir Nick.
Fundum Warhol og fjórmenning-
anna bar fvrst saman á myndlistar-
sýningu. „Þarna var allt uppfullt
af listamönnum og allskonar fræð-
ingum. Honum hundleiddist
greinilega. Við vorum hins vegar
þarna einungis til að skemmta okk-
ur og hann leitaði þess vegna eftir
félagsskap okkar."
Curiositv piltarnir hafa reyndar
lýst því yfir að þeir séu í hljóni-
sveit til að skemmta sjálfum sér.
Kannski leiðindi séu ástæðan fyrir
hrifningu Warhol.
Curiosity Killed the Cat i uppáhaldi hjá Andy Warhol,