Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Page 5
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987. 51 Þegar Giorgio Armani ákvað að hætta í læknisfræði og leggja fyrir sig störf á sviði tískunnar var það mikið áfall fyrir fjölskyldu hans. Föðurafi hans tók fréttun- um verst og þótti sárt að sjá þennan efnilega sonarson fara í hundana með svo hörmulegum hætti. Afinn var læknir í litlu sveitaþorpi á Norður-Italíu og þar var reiknað með því að Giorgio tæki við eftir hans dag. Starfið þótti gott og tryggði þeim sem því gegndi örugga framfærslu fram á elliárin. En læknanámið átti ekki við Giorgio Armani og hann stóðst ekki mátið lengur þegar hann var um það bil hálfnaður í háskólanum. Fyrsta skrefið var að láta sig hverfa og Giorgio tókst að troða sér í vinnu hjá vefnaðarvöruframleiðanda. Eftir það tók við starf hjá Nino Cerrruti sem hafði talsverða trú á hæfileikum hins uppgjafa læknanema. En það var honum ekki nóg til lengdar og þegar Armanitískuhúsið varð að veruleika áttu fáir von á því að fyrirtækið myndi bera sig í framtíð- inni. Hugmyndir Armanis þóttu byltingar- kenndar því hann boðaði einföld snið og fyrst og fremst ættu föt að vera þægileg íveru. Hann hataði sjálfur hefðbundin karlmannajakkaföt sem þrengdu að á alla vegu og hannaði fyrsta blaserjakkann til þess að leysa mörg vandamál í einni flík. Þar með voru Armanijakkar komnir á Jafnvel kjólar hafa harðan svip frá Armani og hreinar linur i fyrirrúmi. Faldurinn er tvöfaldur og meö hinu nýja óreglulega yfirbragði en húfa og skór minna á striðsárastilinn. blað sem eitthvað mjög merkilegt - hönn- unin orðin heimsfræg og jafnframt möguleikar á fi-ekari stílbrigðum. Stakir jakkar urðu tískubóla og einkum ef þeir voru frá þeim eina sanna jakkameistara - Giorgio Armani. Konurnar létu svo ekki jakka eigin- manna, bræðra, feðra og elskhuga í friði og frá þeim kom svo tískusveiflan þegar herrajakkar voru það eina sem gilti á kvenmannsherðar. Þeim þótti mun þægi- legra að klæðast slíkum fatnaði og létu ekki lengur bjóða sér þröngar og illa sniðnar dragtir. Síðar fór svo Armani út íað hanna séi'staka kvenlínu því þörfin var svo sannarlega fyrir hendi og í dag er þessi yfirlætislausi ítali talinn konung- ur tískunnar á Ítalíu. Sem aðrir tískukóngar er Giorgio Armani þekktur fyrir að vera vinnudýr hið mesta. Hann þolir illa margmenni, drekkur ekki né reykir og býr í stórri íbúð í Mílanó ásamt tveimur köttum. Næturlífið freistar hans ekki og vinnan er áhugamál rnírner eitt, tvö og þrjú. Og fiölskyldan getur an- dað léttar því ljóst er að tískubólan sem náði tökum á honum fyrir allmörgum ármn hefur skilað allnokkiaim krónum í kassann - jafnvel þótt læknisstaða afans hafi gegnið úr höndum fiölskyldunnar með þessum hætti. Giorgio Armani hefur tryggt sér fiárhagslegt öryggi það sem hann á eftir ólifað — og gott betur. 6m'SS’ - andl i samsiæöuna. ^ • • A Giorgio Armam: Herrai akkar á karla og konur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.