Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Blaðsíða 19
65 LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987. Sérstæð sakamál útur að komast til torgsins á ný. 1 örvæntingu sinni ók hann út af aðal- veginum og inn á afleggjara. Svo kom hann að stað þar sem rusli var kastað. Þar voru þá fyrir tveir aðrir bílar, vörubíll og fólksbíll. Lou Nic- hols átti ekki um annað að velja en bíða þar til þeir færu. Fólksbíllinn fór eftir nokkrar mínútur en það liðu tuttugu mínútur þar til vörubíllinn fór. Þá flýtti Lou sér út, opnaði far- angursgeymsluna og dró líkið út. Hann dró það svo inn í lítinn runna. Hann vissi að það myndi vafalaust finnast áður en langt um liði en það var ekki um neinn annan stað að velja. Staðinn að verki Það var þegar kominn óþefur af líkinu. Það var heitt í veðri þennan ágústdag og því var líkið þegar tekið að rotna. Lou var þó ekki á því að gefast upp við að koma líkinu fyrir þarna en á meðan hann var að draga það kom bíll að. Þetta var einn af bílum lögreglunnar í Norfolk. Undir stýri sat Alex Cherry lögregluþjónn. Hann virti fyrir sér langferðabílinn og sá í fætur Lous handan við hann. Alex Cherry vissi ekki að neitt væri að og hafði aðeins í huga að spjalla við langferðabílstjórann. Hann gekk því að hinni hlið bílsins. Þá sá hann fætur hverfa á bak við runnann. Augnabliki síðar kom hann að Lou Nichols og sagði: „Hvað í ósköpun- um ertu að gera?“ , Lou Nichols hrökk við. Honum var ljóst að hann hafði verið staðinn að verki með líkið. Það yrði nú erfitt að blekkja lögregluna. Játningin Alex Cherry setti handjárn á Lou en leiddi hann síðan að lögreglubíln- um og lét hann setjast í aftursætið. Svo fór hann í talstöðina og bað um hjálp. Á meðan hann beið eftir félög- um sínum lagði hann nokkrar spumingar fyrir Lou en hann virtist Runninn sem kemur svo mjög við sögu í frásögninni. hafa fengið einhvers konar áfall eða lost og gat fáu svarað. Staðreyndir málsins komu svo fram á næstu tveimur sólarhringum. Erfitt var að fá Lou til þess að segja frá því hvað búið hefði að baki morðinu og um tíma vildi hann ekki játa að það hefði verið hann sem réð Edith Chalmers af dögum. Hann var hins vegar ekki í aðstöðu til þess að bera brigður á þær fullyrðingar lögregl- unnar að hann yrði að gefa fullnægj- andi skýringar á framferði sínu við ruslahauginn. Loks fór því svo að Lou játaði að hafa kyrkt Edith Chal- mers. Leit heima hjá honum leiddi svo í ljós 970 pund en það var afgang- urinn af því fé sem hann hafði stolið kvöldið áður á skrifstofu fyrirtækis- ins. Máli Lou Nichols er enn ekki lokið fyrir dómstólum en talið er víst að dómurinn yfir honum leiði til þess að hann verði á bak við lás og slá í langan tíma. Alfred Chalmers. ÍBR KRR REYKJAVÍKURMÓT /WjA MEISTARAFLOKKUR ( Sunnudag kl. 20.30. ÞRÓTTUR - KR Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL Ætlarðu að ruþvottui, pvöttui og þuirkun a aöeins fer. 390.- • i ____ krSLÍ'S meo níösterka Mjattarva^ Bón- o vottastöðin Klöpp - Sími 20370 V/Umferðarmiðstöðina - Sími 13380 Höfðabón Höfðatúni 4 - Sími 27772 ALÞINGISKOSNINGAR 1987 í HÁSKÓLABÍÓI ÞRIÐUDAGINN 14. APRÍL KL. 203Q. TALSMENN FRAMBOÐSLISTANNA ERU = BANDALAG JAFNAÐARMANNA SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR ALÞÝÐUBANDALAG FLOKKUR MANNSINS ANNA KRISTJÁNSDÖTTIR PÉTUR GUÐJÖNSSON FRIÐRIK SOPHUSSON ALFHEIDUR INGADÚTTIR BORGARAFLOKKUR SAMTOK UM KVENNALISTA FUNDARSTJÓfíl Magnús Bjarnfreðsson DAGSKRÁ 1. Tatsmenn framboðslistanna halda 10 mínútna framsöguræður. 2. Fundarstjóri ber upp skriflegar fyrirspurnir frá fundarmönnum. 3. Stutt ávarp hvers framsögumanns í fundarlok. Á fundinum verður tekið við skriflegum spurningum til ræðumanna < § t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.