Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
53
ekki trú á að verfall sé á næsta leiti
en neitar því ekki að „menn séu farn-
ir að gerast órólegir".
En þessi óróleiki stafar ekki aðeins
af háu verið heldur einnig því að
listaverkasalar óttast að kaupæði
auðkýfinganna komi óorði á lista-
verkasölu því þeir nýríku líti á
listaverkin sem hverja aðra vöru og
gleymi allri fagurfræði.
Listaverkasalinn Richard Feigen
segir að hugmyndir manna um fagrar
listir séu greinilega að breytast. Fari
svo fram sem horfi þá verði fræg
listaverk innan skamms komin á
stall með dýrum veðhlaupahestum.
Þetta er þó ekkert nýtt og því til
sönnunar er vitnað til kínversks
spekings sem skrifaði fyrir 800 árum
að „það væri tímanna tákn að lista-
verk væru notuð sem verslunarvara
og jafnvel sem mútur en virðingin
fyrir þeim engin“.
Ástæðan fyrir verðsprengingunni á
síðustu árum er einföld, að mati
margra sérfræðinga. „Þetta gerist
alltaf á tímum verðbólgu," er haft
eftir Gowrie lávarði, forseta Sothe-
bys uppboðsfyrirtækisins í Lundún-
um. „Það leynir sér ekki að til eru
fleiri dollarar en listaverk."
Verðið á eftir
að hækka
Og svo virðist sem verðið hækki
meira en nokkur óraði fyrir þegar
það tók fyrst að stíga. „Eftirspurnin
fer vaxandi og framboðið minnk-
var verk eftir Jasper Johns selt á 120
milljónir á síðasta ári og hafði þá
hækkað um 1600 prósent frá árinu
1960. Ný verk eftir þekkta banda-
ríska málara kosta nú ekki undir
einni milljón króna.
Ný kynslóð
Safnararnir, sem nú hafa sig mest
í frammi, þykja í mörgu ólíkir þeim
sem áður hafa verið stórtækastir.
„Við þekkjum ekkert þetta fólk sem
nú eyðir háum upphæðum í listaverk
og margt af því er að kaupa í fyrsta
sinn,“ segir Philippe Gamer, yfir-
maður deildar nútímaverka hjá
Sotheby í Lundúnum. Margir þess-
ara nýgræðinga hafa komist í álnir
með skjótum hætti og eru nú í leit
að stöðutáknum til að auka virðingu
sína.
„Þessi listaverkakaup hafa fyrst
og fremst félagslega þýðingu," segir
Rees-Moog, fyrrverandi ritstjóri.
„Kaupendurnir vonast til að fá í
krafti fágætra listaverka aðgang að
þjóðfélagshópum sem þeim hafa áður
verið lokaðir. Fagurfræðin kemur
þarna hvergi við sögu og stundum
slysast þetta fólk til að kaupa dýru
verði verk sem eru lítils virði.“
En þrátt fyrir háðstóninn í orðum
þeirra gamalreyndu þá hafa sumir
nýgræðinganna snúið sér að lista-
verkasöfnuninni af fullri alvöru og
aflað sér staðgóðrar þekkingar ■ á
greininni. Einn þeirra er Banda-
ríkjamaðurinn Alfred Taubman sem
Listaverkasafnararnir óttast alltaf falsanir og hafa þvi sérfræðinga á sínum
snærum til að koma í veg fyrir óhöpp.
andi. Það getur ekki þýtt neitt annað
en hækkandi verð,“ segir John Lum-
ley, sem til skamms tíma veitti
forstöðu deild nútímaverka hjá
Christies. „Verðið, sem nú er greitt
fyrir dýrustu listaverk, á eftir að
þykja lágt eftir nokkur ár,“ spáir
Lumley. Ef miða á við þróunina á
síðustu árum þá bendir allt til þess
að spá Lumleys standist. Almennt
er verð á listaverkum nú helmingi
hærra en það var fyrir tveim til þrem
árum.
Til þessa hefur verð á listaverkum
frá öllum tfmum og af öllum stefnum
hækkað. Mest er hækkunin þó á
verkum „gömlu meistaranna" og
impressjónistanna. Þegar þessir hóp-
ar eiga í hlut virðist engu skipta
hver listamaðurinn er og ekki heldur
hvaða álit listfræðingar hafa haft á
verkunum.
Þá hefur það vakið athygli að mik-
il eftirspurn er eftir verkum banda-
rískra málara frá síðari hluta 19.
aldar og upphafi þeirrar tuttugustu.
Nú eru sérfræðingamir sammála um
að þessi verk hafi til skamms tíma
verið vanmetin. Nú í janúar var verk
eftir Bandaríkjamanninn George
Caleb Bingham, málað árið 1846, selt
á 230 milljónir sem er met þegar
bandarísk verk eiga í hlut.
Síðari tíma bandarísk verk hafa
einnig.hækkað mikið í verði. Þannig
fyrir þrem árum gekk meira segja svo
langt að hann keypti meirihlutann í
Sothebys uppboðsfyrirtækinu og
fæst nú eingöngu við verslun með
listaverk.
Aðrir kaupa bara til að kaupa.
Þannig er það haft eftir auðjöfrinum
Seijiro Matsuoka að hann komi
verkunum fyrir í geymslu þegar hann
hefur eignast þau. Seijiro er þekktur
fyrir að fara í innkaupaleiðangra um
heiminn og kaupa þá nánast allt sem
í boði er. Seijiro hefur þó bætt nokk-
uð álit sitt með því að opna safn í
Tokýo.
Söfn auðmanna
Fleiri auðmenn hafa farið að dæmi
hans og opnað almenningi söfn þar
sem úrval verka er til sýnis. Breski
aulýsingakóngurinn Charles Saatchi
er einn þeirra. Hann á mjög verð-
mætt safn nútímalistaverka og hefur
það nú almenningi til sýnis í Lund-
únum. Annar er vestur-þýski súkku-
' laðijöfurinn Peter Ludvig sem hefur
verk sín til sýnis í fjórum Evrópu-
löndum.
Þeir sem fara sér hægar í söfnun-
inni kjósa heldur að láta minna á sér
bera og fara leynt með söfn sín af
ótta við þjófa. Þessir koma líka
sjaldnast á uppboðin sjálfir en láta
umboðsmenn sína þess í stað um að
Þessi mynd var seld nú í byrjun árs fyrir um 230 milljónir króna og þótti lítiö.
bjóða. Til að þóknast þesgum hæ-
versku söfnurum bjóða uppboðsfyrir-
tækin upp á símaþjónustu á
uppboðunum þannig að kaupendur
sem eru fjarstaddir geta fylgst með
þróun mála.
Stóru uppboðsfyrirtækin Christies
og Sotheby hafa öðrum fremur notið
góðs af kaupæði síðustu ára. Bæði
fyrirtækin kynna uppboð sín vel og
setja meiriháttar verk á sýningar
áður en þau eru boðin upp. Sólblóm
van Goghs voru sýnd í Tokýo, New
York og Zúrich áður en á uppboðið
í Lundúnum kom. Sothbys hafði
sama háttinn á þegar verið var að
kynna skartgripi hertogaynjunnar
af Windsor en þeir voru boðnir upp
í síðustu viku. Þetta kynningarstarf
hefur skilað sér vel og á sinn þátt í
aukinni ásókn í listaverk.
Opinber söfii
í svelti
Nú, eftir að verð á listaverkum tók
að hækka, hafa forráðamenn opin-
berra safna víða um lönd kvartað
sáran. Það fé, sem þau hafa til lista
verkakaupa, nýtist nú stöðugt verr.
Þá hefur það verið venja að fjalla
ítarlega í stjórnum safnanna um inn-
kaup áður en ákvarðanir eru teknar.
Nú ganga kaupin hins vegar oft svo
fljótt fyrir sig að enginn tími er til
að velta málunum fyrir sér mánuðum
saman. Því verða söfnin oft af feitum
bitum vegan seinagangs.
Þetta þýðir þó ekki að hin frægu
söfn í Evrópu séu að gefast upp á
samkeppninni. Þau búa nú þegar að
svo mörgum frægum verkum að þau
hafa ekki tök á að sýna þau öll. Því
hefur það borið við að fræg söfn hafa
hafnað höfðinglegum listverkagjöf-
um vegna þessa að geymslur þeirra
eru þegar fullar.
„Stóru opinberu söfnin eiga í erfið-
leikum með að varðyeita og sýna það
sem þau eiga nú þegar af listaverk-
um,“ er haft eftir listaverkasala í
Róm. „Það er því óþarfi að gera sér
reliu út af því þó þau geti ekki keypt
meira.“ Safnverðirnir eru engu að
síður áhyggjufullir vegna þess að
þeim gengur stöðugt verr að láta
innkaupaféð duga.
Tatesafhið biður
um aðstoð
Tatesafnið í Lundúnum hefur t.d.
aðeins 100 milljónir til að spila úr
árlega. Safnstjómin hefur mikinn
hug á að eignast frægt verk eftir
John Constable en nú er borin von
að þessi upphæð öll dugi fyrir mynd-
inni. Eigandi myndarinnar hefur þó
boðist til að láta safnið hafa for-
kaupsrétt að myndinni takist því að
öngla saman litlum 230 milljónum til
að gefa íyrir hana. Safnstjómin hefur
þegar ákveðið að efna til söfnunar
meðal almennings til að afla þessa
fjár.
. Mistakist að safna fénu þá er lík-
legast að myndin verði seld úr landi.
þar með er þó ekki öll von úti fyrir
Tatesafnið þvi það hefur samkvæmt
breskum lögum enn rétt til að kaupa
myndina en því aðeins að því takist
að reiða fram jafnmikið fé og myndin
seldist á. Þessi regla gilti einnig þeg-
ar myndin eftir Manet var seld í
haust en kom fyrir lítið því verðið
var alltof hátt. Sömu sögu er að segja
af Sólblómum van Goghs. Engar lík-
ur eru á að bresku safni takist að
safna hálfu öðmm milljarði á sex
mánuðum til að kaupa myndina.
Önnur Evrópuríki hafa svipaðar
reglur til að koma í veg fyrir að lista-
verk hverfi úr landi. Það reynist þó
oftast gagnslítið og verkin enda í
söfnum Bandaríkjamanna eða Jap-
ana sem hafa margföld fjárráð á við
virðuleg söfn í Evrópu.
Verð á
ódýrum verkum
gæti fallið
Spurningin, sem nú brennur hvað
heitast á listaverkasöfnurum, er
hvenær verðið hefur náð hámarki
og það tekur að falla á ný. Síðast
varð verðfall á listaverkum í olíu-
kreppunni á ámnum 1973 til 1974.
Þá féllu ódýrari verk mest í verði en
þau dýrustu héldu sínu. Komi aftur
til verðfall er búist við að það sama
verði upp á teningnum. Upphafið að
v jrðfalli gæti orðið þegar einhverj-
um af stórukaupendunum ofbýður
verðið og hættir að kaupa. Þá má
búast við að margir af minni spá-
mönnunum haldi einnig að sér
höndum.
Þegar er farið að bera á verðfalli
á sumum gerðum mynda. T.d. hafa
myndir úr villta vestrinu fallið í verði
eftir að tekjur olíukónga í Texas
tóku að minnka á síðasta ári. En
sérfræðingarnir segja að myndir af
vísundum jafnist hvort eð er ekki á
við myndir van Goghs. Því verði að
teljast að sá sem keypti mynd van
Goghs fyrir metverð - hver hann er
veit enginn - hafi gert góð kaup.
Byggt á Newsweek/GK
£ S'S5ööö“ L01
* 1314950
D« 332180Ö
SF 2738700
YEN 30600
UppboösfyrirtækiA Christies i Lundúnum er annar af risunum á uppboðsmarkaðnum. Reksturinn hefur aldrei
gengið betur.