Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Page 14
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
60
Kvikmyndir
Dennis Hopper og Gene Hackman
Tónabíó/Hoosiers
Körfuskot að
Tónabíói er ætlunin að halda úti
kvikmyndasýningum um páskana,
svo framarlega sem bíóið verður ekki
selt í millitíðinni, en Tónabíó er nú
á sölulista. Ef af sýningum verður
verður sýnd myndin Hoosiers sem
er nýleg bandarísk kvikmynd. í aðal-
hlutverkum eru þeir Dennis Hopper
og gamla brýnið Gene Hackman.
Hopper, sem hefur vakið mikla at-
hygli að undanförnu fyrir leik sinn
í Blue Velvet, þykir standa sig stór-
vel í þessari mynd sem fjallar uih
körfuknattleikslið eitt sem hefur
glngið slaklega að undanförnu.
Hopper fékk óskarsverðlaunaút-
nefningu í aukahlutverki fyrir
túlkun sína á bæjarfyllibyttunni í
Hoosiers þó að margir hafi reyndar
tekið það sem sárabót fyrir að Hop-
per var ekki tilnefndur fyrir Blue
Velvet sem fer víst fvrir brjóstið á
siðprúðu fólki. Hopper er nú talinn
einn af athyglisverðustu leikurum
vestanhafs þó að fráleitt sé að tala
um hann sem einhvern nýliða, enda
er hann nýorðinn fimmtugur. Hann
hefur verið lengi að; lék t.d. með
James Dean í Rebel Without a Cause
og Giant. Þá leikstýrði hann mynd-
inni The Last Movie sem var reyndar
kolfelld í Hollywood eftir að hún
vestan
hafði unnið til verðlauna í Feneyj-
um.
Bandaríski körfuknattleikurinn
hefur verið í mikilli sókn að undan-
förnu hér á landi og ættu því margir
að vera forvitnir um efni þessarar
myndar. Bandaríkjamenn hafa verið
iðnir við gerð kvikmynda um íþróttir
og oft, en ekki alltaf, farist það vel
úr hendi.
Leikstjóri er David Anspaugh en
Barbara Hershey, sem átti mjög góð-
an leik í mynd Woody Allen um
Hönnu og systur hennar, leikur aðal-
kvenhlutverkið.
-SMJ
Hvað veldur svona miklum hneykslunarsvip? Það skyldu þó ekkl vera naktir karlmenn að hlaupa fyrir framan fólkið?
Regnboginn/Herbergi með útsýni
Listrænt herbergi
Myndin Herbergi með útsýni (A
Room with a View), sem verður aðal-
myndin í Regnboganum yfir hátíð-
imar, er byggð á klassískri
skáldsögu eftir breska höfundinn
E.M. Forster. Sagan er nokkurs kon-
ar þjóðfélagsdrama með hörðum
ádeilutón þar sem fjallað er um líf
breskra þegna, heima og heiman, í
upphafi aldarinnar. Myndin gerist
bæði í Flórens og enskri sveitasælu.
Og fjallar um ungt par sem gefur sig
a vald ástríðnanna á Ítalíu en vakn-
ar síðan upp við vondan draum
heima í viktoríönsku umhverfi Eng-
lands.
Lucy Honeychurch (Helena Bon-
ham Carter) er ung ensk stúlka af
góðum ættum. Hún ferðast til Flór-
ens í fylgd frænku sinnar, Charlotte
Barlett (Maggie Smith). Þær búa á
gistiheimili þar en í leit sinni að
herbergi með útsýni kynnast þær
sérkennilegum feðgum. Ástir takast
með þeim Lucy og George (Julian
Sands) en þau neyðast til að skilja
þegar hún heldur til Englands. Þar
ber fundum þeirra saman aftur með
óvenjulegum hætti.
Þessi mynd er enn ein afurð sam-
starfs svokallaðs Merchant-Ivory
hóps. Þessi hópur samanstendur af
framleiðandanum Ismail Merchant
og leikstjóranum James Ivory asamt
nokkrum dyggum fylgismönnum.
Þeir félagar hafa haft mikinn áhuga
á að taka fyrir bókmenntaverk E.M.
Forster en David Lean varð á undan
þeim að kvikmynda Ferðina til Ind-
lands svo að þeir félagar einbeittu
sér að þessu verki Forsters. Áður
hafa þeir gert myndir eins og Heat
and Dust, sem var sýnd í sjónvarpinu
um síðustu helgi, og Bostonians sem
var sýnd í Regnboganum fyrir tveim
árum en fæst nú á myndbandaleig-
um. Myndin kom ágætlega út á
óskarsverðlaunahátíðinni. Þar fékk
hún verðlaun fyrir listræna hönnun,
besta handrit eftir öðru efni (Ruth
Prawer Jhabvala) og bestu búninga
(Jenny Bevan og John Bright). Það
var aðeins Maggie Smith, sem fékk
tilnefningu fyrir aukahlutverk, sem
missti af verðlaunum.
í neðri sölum Regnbogans eru
myndir eins og Hjartasár, stórmynd-
in Trúboðsstöðin, Hanna og systur
hennar, Skyttumar hans Friðriks,
sem á skilið betri aðsókn en hún
hefur fengið til þessa, og síðast en
ekki síst er frönsk kvikmyndavika
sem lýkur nú um helgina. -SMJ
DV
Háskólabíó/Guð gaf mér eyra
I hljóðlát-
um heimi
Háskólabíó verður að öllum lík-
indum ekki mikið opið yfir hátíðirn-
ar en á þeim sýningum sem verða
verður verðlaunamyndin Guð gaf
mér eyra (Children of a Lesser God)
sýnd. Þessi mynd uppskar þokkalega
við óskarsverðlaunahátíðina nýlega
og ber þar hæst verðlaun Marlin
Matlin sem fekk óskar fyrir besta
kvenhlutverk og vakti sú veiting
verðskuldaða athygli enda er hér um
frumraun þessarar mállausu stúlku
að ræða. Alls fékk myndin fimm til-
nefningar.
Varla þarf að fara mörgum orðum
um efni myndarinnar hér enda hefur
hún nú verið sýnd í þessum stærsta
bíósal landsins um hálfs mánaðar
skeið. Þetta er hugljúf mynd - tilval-
in fyrir fjölskylduna ef hún vill
sameinast í bíóferð yfir hátíðirnar.
-SMJ
William Hurt gantast hér við einn af nemendum sínum en hann fékk
sína aðra óskarsverðlaunaútnefningu i röð fyrir leik sinn í myndinni.
Laugarásbí ó/T vífarinn
Tvífari
á tjaldinu
1 aðalsal Laugarásbíós verður
sýnd myndin Tvífarinn (The Wrath)
sem er nokkurs konar yfirskilvitleg
unglingamynd með ofbeldisfúllum
undirtóni. Myndin segir frá pilti ein-
um sem kemur til smábæjar í
Bandaríkjunum. Enginn veit neitt
um hann eða fortíð hans en fljótlega
eftir að hann kemur til bæjarins fara
einkennilegir hlutir að gerast.
Spurningar vakna: Er hann dauður
eða lifandi eða er hann yfirleitt þessa
heims? Er hann kominn til að hefna
og mun hefnd hans snúast gegn ungl-
ingaklíku bæjarins?
Mikið unglingalið kemur fram í
myndinni og athyglisvert er að flest-
ir lelkarar myndarinnar eiga ætt-
ingja sem hafa náð því að „slá í
gegn“ í heimi kvikmyndanna.
Charlie Sheen fer með eitt aðalhlut-
verkið en hann er sonur hins fræga
Martin Sheen. Þá fer sonur Johns
Cassavetes og Gene Rowlands, Nick,
með stórt hlutverk. Einnig leikur
sonur Ryans O’Neal í myndinni og
yngri bræður þeirra Rons Howards
og Dennis Quaid birtast á tjaldinu.
I sal 2 verður síðan auðvitað páska-
mynd 2 og er þar einnig um að ræða
nýlega bandaríska biómynd, Soul
Man. Hún fjallar um dálítið óvenju-
legt efni, nefnilega hvítan pilt sem
dulbýst sem svertingi til að fá skóla-
styrk í bandarískum lagaskóla.
Hefur þetta atriði að sögn vakið tölu-
verðar deilur þar vestra, enda ávallt
um viðkvæmt mál að ræða þar sem
eru samskipti hvítra og svartra. Með,
aðalhlutverkið fer C. Thomas How-
ell sem orðinn er nokkuð þekktur
fyrir leik sinn í myndum eins The
Hitcher og Fríið hans Ferrys Bull-
ers. Einnig kemur Rae Dawn Chong
fram í myndinni en leikstjóri er Steve
Miner. -SMJ
Unglingar og ofbeldi koma dálítiö við sögu I páskamynd Laugarásbíós.