Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1987, Page 15
LAUGARDAGUR 11. APRÍL 1987.
61
Goðsögwa
ven Spi^Yberg 1
i naennynd 1
bls. 3 1
Kiffl'-
Fseða
íiamtiðaiiimai
bls. 13
Giænii to9UI
hjónabandsms
Kvikmyndir
Bíóhöllin/Litla hryllingsbúðin
Engin páskalilj a
Það hafa án efa margir beðið eftir
mynd þeirri er verður aðalmyndin í
Bíóhöllinni um páskana. Þetta er að
sjálfsögðu myndin um Litlu hryll-
ingsbúðina (Little Shop of Horrors)
sem var frumsýnd í Bandaríkjunum
í haust. Efni myndarinnar ætti varla
að þurfa að kynna fyrir neinum en
samnefnt sviðsverk var sýnt hér fyrir
tveim árum í Gamla bíói við fádæma
vinsældir. Þó ætti að vera hægt að
fullyrða að þeir sem sáu leikritið
ættu einnig að hafa gaman af mynd-
inni því auðvitað er hægt að fram-
kvæma flóknari tæknibrellur á
tjaldinu.
Þar að auki er næstum því allt „gam-
anleikaralandslið" Bandaríkjanna
mætt í myndinni og hefur frammi-
staða margra þeirra verið lofuð mjög.
Sérstaklega þykir Steve Martin stór-
kostlegur í hlutverki tannlæknisins
sem hefur meira gaman af því að
kvelja en lækna sjúklinga sína. Hef-
ur Martin verið líkt við Ladda í þessu
hugljúfa hlutverki! Þarna er einnig
mættur Rick Moranis sem vann hug
og hjarta kvikmyndaunnenda fyrir
frábæra túlkun á hinum dæmigerða
bandaríska „loser“ í Draugabönun-
um (Ghostbusters). Moranis hefur
einnig komið nálægt myndum eins
og Streets of Fire og Club Paradise.
Ellen Greene leikur hana Auði en
auk þess koma fram leikarar eins og
John Belushi, John Candy, Christop-
her Guest og Bill Murray. Nú,
leikstjóri myndarinnar er síðan eng-
inn annár en Frank Oz sem er
þekktastur sem faðir Prúðu leikar-
anna.
í stuttu máli má segja að myndin
fjalli um litla blómaverslun sem í
upphafi myndar má svo sannarlega
muna sinn fífil fegri. Blómaverslun
Mushniks er satt best að segja virki-
lega ógeðsleg enda hefur varla sést
þar viðskiptavinur í áraraðir. Því
ákveður Mushnik að segja upp
starfsfólki sínu, þeim Seymour og
ljóskunni Auði, upp störfum. Þá
rekst Seymour á sérkennilega plöntu
sem fær nafnið Auður önnur og eftir
það fer verslunin að blómstra í
blómaverslun Mushniks.
I öðrum sölum Bíóhallarinnar verða
Seymour (Rick Moranis) og Auður fyrsta (Eilen Greene) virða fyrir sér tii-
burði Auðar annarrar i forundran.
að sjálfsögðu sýningar á fullu yfir
páskana og má þar meðal annars
nefna myndir eins og Liðþjálfann.
nýjustu mvnd Clints Eastwood. frá-
bæra teiknimynd um músina Basil.
myndina Fluguna sem fékk óskarinn
fyrir förðun og Krókódíla-Dundee.
Síðast en ekki síst er Peningaliturinn
en fyrir frammistöðu sína þar fékk
Paul Newman langþráðan óskar.
í Bíóhúsinu verða auðvitað einnig
páskasýningar en þegar þetta er rit-
að er ekki ljóst hvaða mynd verður
sýnd þar. -SMJ
Nýtt befti
fvrir aUa
4. HEFTl
46. AR
(!‘Xírto Stt*“SPie'be'E.. 3
Evðfog -:::S
S > ...................
Uíaiestur. .43
Mesta
‘t'Sf \SSS5—*■“ «
heimsins .................... m
WS- 64 '®SSUSH£-*‘
.. * I KrU Fiöaíramtíöarinnat
tlÚkknimi \ \iftonanál3pPs°kim ^
bls. 90 | ...............90
Morðtrukkarnvr.
................
Úrval
LESEFNI
m ALLRA HÆFI
Áskriftar-
síminn er
27Ó22
Kappsigto# ® 5
Amervkuh&aimrt - bls. *
Kim Basinger.
Stjörnubíó/
Engin miskunn
Mis-
kunnar-
leysi
Páskamynd Stjörnubíós er glænýr
hörkuþriller frá Bandaríkjunum, No
Mercy, sem útleggst á íslensku Eng-
in miskunn. Mynd þessi skartar
tveim frægum stjörnum sem eiga það
báðar sameiginlegt að vera frægar
án þess að vera virtar! Richard Gere
leikur aðalkarlhlutverkið og er víst
kominn tími til að á það verði látið
reyna hvort hann geti leikið. Hið
sykursæta útlit hans hefur vanalega
eyðilagt alla möguleika hans til al-
varlegri túlkunar enda verður að
segjast eins og er að hann virðist
ekki hafa haft metnað til að brjótast
út úr þeim viðjum. Á afrekalista 'nans
eru myndir eins og American Gigolo,
Breathless, The Cotton Club, An
Officer and a Gentleman og King
David.
Hin stjarna myndarinnar er hin
mjög svo yndislega Kim Basinger
sem líklegast er frægust fyrir mynd
sína 9/2 vika. Basinger sýndi þar
athyglisverð tilþrif þó að auðvitað
hefði rennilegur kroppur hennar
leikið stærsta hlutverkið þar. Þá lék
hún einnig í The Natural.
Myndin No Mercy segir írá Eddie
Jillette (Gere) sem er lögregluþjónn
er hyggur á hefndir þegar félagi hans
í Chicagolögreglunni er myrtur af
glæpaforingja nokkrum frá New
Orleans, Losado að nafni. Svo vill til
að eina vitnið að þessu er ástkona
Losados, Michel Duval (Basinger).
Eddie neyðist til að fara á ókunna
slóðir til að hafa uppi á Michel og
brátt er hann hundeltur um alla New
Orleans, bæði af lögreglu og glæpa-
mönnum.
-SMJ
Richard Gere.