Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 4
54 FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987. Skák DV Ljubojevic náði ser á strik í Brussel - taflmenn, diykkjarföng og öskubakki flugu niður á gólf er Kortsnoj snerti rangan mann gegn Karpov Heimsmeistarinn Kasparov íbygginn á svip við upphaf skákar sinnar gegn Ljubojevic í Brussel. Þeir deildu sigrin- um á mótinu. Símamynd Reuter. Sá skákmeistari sem mestum von- brigðum olli á IBM-mótinu í Reykja- vík í febrúar var tvímælalaust Ljubomir Ljubojevic, sem tapaði þremur fyrstu skákum sínum og tókst aldrei að komast almennilega í gang. Ljubojevic kvartaði undan tannpinu íraman af móti og var ve- sældarlegur að sjá, þó svo hann léti sér nægja að berja í hausinn og lýsa því yfir hversu mikill flóðhestur hann væri. Þá var Ljubojevic næstneðstur og tefldi illa. Nú eru tennumar hins vegar komnar í lag. Á stórmeistara- mótinu í Brussel, sem var af sama styrkleikaflokki og IBM-mótið, náði hann efsta sæti ásamt heimsmeistar- anum Garrí Kasparov. Þeir fengu 8'/2 v. af 11 mögulegum, sem er frá- bært vinningshlutfall í svo sterku móti. Kasparov vann Tal í síðustu umferðinni og komst upp að hlið Júgóslavans. Anatoly Karpov lét fremur lítið á sér bera og varð að sætta sig við þriðja sætið, nokkru neðan við sig- urvegarana, með 7 v. Síðan komu góðkunningjar okkar frá IBM-mót- inu í hnapp: Kortsnoj, Timman (báðir 6'A v.) og Tal (6 v.), sem ætl- aði sér aldrei að taka þátt í mótinu. Þessi frægi stórmeistari og fyrrum heimsmeistari var staddur í Brussel í starfi blaðamanns Sovétskí Sport og hljóp í skarðið fyrir Hubner sem var illa haldinn af flensu og varð að hætta við þátttöku. Tal kom inn á í þriðju umferð og varð því að tefla skákir sínar úr tveim fyrstu um- ferðunum á frídögum seinna í mótinu. Miðað við þessa erfiðu dag- skrá má hann vel við una og nokkrar fléttur tókst honum að töfra fram. Neðar komu Larsen, (5 ‘/2 v.) Torre og Van der Wiel (báðir 5 v.) en tvö neðstu sætin voru fyrirfram frátekin fyrir heimamennina tvo, Winants (3'/2 v.) og Meulders (1 v.), sem standa langt að baki hinum kepp- endunum hvað stigatölu áhrærir og skákstyrk. Það kom því verulega á óvart að Nigel Short (3 v.) skyldi blanda sér í þeirra hóp. Short var heillum horfinn og ólíkur sjálfum sér, eins og hann kom íslenskum áhorfendum fyrir sjónir. Hvað eftir annað lék hann gróflega af sér. Kannski ætlaði hann sér of stóran hlut í upphafi? Metfjöldi áhorfenda kom á móts- stað í næstsíðustu umferð er Kasparov og Karpov leiddu saman hesta sína - sannkölluð hátíðarskák, því að þetta var í hundraðasta sinn sem þeir tefldu saman. Skákin olli heldur ekki vonbrigðum. Karpov fékk betri stöðu með hvítu mönnun- um en með því að fóma peði í endatafli tókst Kasparov að ná tök- um á stöðunni. Karpov mátti hafa sig allan við en honum tókst um síð- ir, með því að gefa peð og annað til baka, að einfalda taflið og halda jafhvæginu. Þeir sömdu svo um jafn- tefli eftir 53 leiki og fimm og hálfs tíma setu. Prýðileg upphitun fyrir næsta einvígi þeirra félaga. Hreyfður maður færður Aðrir fomir fjendur áttust við í níundu umferð - Karpov og Kortsnoj, sem þó vom famir að tala og spila bridge saman. Nú er hætt við að Kortsnoj yrði ekki á Karpov næstu árin því að skák þeirra fékk afar sögulegan endi. í dauðri jafn- teflisstöðu varð Kortsnoj það á að snerta kóng sinn er riddari hans stóð í uppnámi. Eins og allir vita er „hreyfður maður færður“ svo Kortsnoj var nauðugur einn kostur að leika kóngi sínum og missa ridd- arann, sem hefði leitt til vonlausrar stöðu. Er hann áttaði sig á mistökum sínum hallaði hann sér aftur í stóln- um eitt augnablik og sópaði síðan taflmönnunum af borðinu með snöggri handarhreyfingu. Drykkjar- föng flugu í gólfið með taflmönnun- um og öskubakki sömuleiðis en Kortsnoj skeytti því engu heldur stmnsaði út úr salnum. Stuttu síðar sneri hann aftur og undirritaði papp- írana. Þannig var staðan er Kortsnoj, sem hafði hvítt, greip í kónginn: „Þetta er í annað skipti á ævinni sem það kemur fyrir mig að ég snerti annan mann en ég ætla að leika,“ sagði Kortsnoj er bráði af honum. Fyrra skiptið var er hann tefldi við Bagirov á skákþingi Sovétríkjanna 1960. Þá stóðu biskupar Kortsnojs hlið við hlið og í stað þess að drepa hrók með öðrum þeirra hreyfði hann hinn, sem greip í tómt. Þá gekk Kortsnoj einnig úr salnum, án þess þó að gera hreint á borðinu áður. Þrátt fyrir þetta atvik varð Kortsnoj efstur á mótinu og skákmeistari Sov- étríkjanna. Skák Jón L. Árnason En skoðum skák risanna tveggja úr tíundu umferðinni. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Garrí Kasparov Enskur leikur 1. d4 RfB 2. c4 g6 3. g3 c5 Eitthvað nýtt í samskiptum þeirra félaga á skákborðinu. Fyrst fysir Karpov ekki að tefla gegn Grunfelds-vöminni og svo hafnar hann hvassasta framhaldinu, 4. d5, sem hefði leitt til Benóní-vamar. Upp kemur einkennilegur enskur leikur. 4. Rf3 cxd4 5. Rxd4 Dc7!? 6. b3 Bg7 7. Bg2 d5!? 8. cxd5 Rxd5 9. (M) Auðvitað ekki 9. Bxd5?? vegna 9. - Da5+ og svartur vinnur því að hvítur kemst ekki hjá því að tapa manninum aftur og öðrum til. 9. - Dd7 10. Bb2 0-0 11. Dcl Hd8 12. Hdl Rc6 Eina leiðin til þess að reyna að leysa vandamálin, sem em talsverð. En eftir þetta fær Karpov betra endatafl auk þess sem 13. Rb5!? nú er áhugaverður möguleiki. 13. Rxc6 Dxc6 14. Dxc6 bxc6 15. Bxg7 Kxg7 16. Hcl Eitt veikt peð, eins og svartur á nú á c-línunni, hefur fært Karpov margan góðan sigurinn. Hann gat ekki unnið mann með 16. e4, vegna 16. - Bg4 og ef 17. Í3? þá 17. - Re3! 18. Hxd8 Hxd8 19. fxg4 Rc2 og vinn- ur. En skiptamunsfómin 16. e4 Bg4 17. exd5 Bxdl 18. Rc3 Bg4 19. dxc6 kom til greina og sömuleiðis 16. Rc3 strax. 16. - Bg4 17. Kfl a5! Það er magnað hvað Kasparov teflir þessa að því er virðist lífvana stöðu virkt. Hæpið er 18. Hxc6 vegna 18. - Rb4 (hótar máti á dl) 19. Hcl Hac8 20. Rc3 Hd2 og svárta staðan er vel peðsins virði. 18. h3 Be6 19. Rc3 Rxc3 20. Hxc3 Hd2! 21. Hxc6 Had8 Nú hefur heimsmeistarinn skipt upp á veikleikanum á c-línunni fyrir hrók á sjöundu línu og tök á stöð- unni. Þessi uppskipti em honum í hag. Hann er ekki einn þessara skákmanna sem em sífellt að telja peðin. 22. H6cl Hb2 23. Hcbl Hdd2 24. Hxb2 Hxb2 25. Kel BÍ5 26. Kdl g5 27. Bd5 Kf6 Ekki 27. - Bbl?? vegna 28. Kcl og vinnur mann og 27. - Bxh3? strandar á laglegum leik, 28. Be4!, sem hótar 29. Bd3 og svo 30. Kcl, svo svartur yrði að fóma a-peðinu til þess að losa hrókinn úr prísundinni. 28. Bc4 e6 29. g4 Bg6 30. a4 Ke5 31. Hcl Kd4! Á réttu augnabliki til þess að hindra að hrókur hvíts komist í leik- inn um c3-reitinn. Nú er framhaldið 32. e3+ Ke5 33. Be2 Kd6 34. Hc3 Be4, með hótuninni 35. - Bd5, hag- stætt svörtum. Staða hans er nú svo virk að Karpov tekur þann kostinn að fóma peði til þess að losa um sig. 32. Bb5 Hxb3 33. Hc4+ Ke5 34. Hc7 Hxh3 35. Ha7 Kd4 36. Kd2 Hræddur. Betra var 36. Hxa5 og ef 36,- Kc3, þá 37. f3. 36. - Hh2 37. f3 h5 38. Hxa5 Ekki gekk 38. gxh5 Bxh5, sem hót- ar -Bxf3. En nú kemur vel til greina að leika h-peðinu framhjá með 38. - h4!? sem hefði leitt til mjög spenn- andi stöðu með frelsingjum á báðum vængjum. 38. - hxg4 39. fxg4 Hg2 40. Bc6 Hxg4 41. Hb5 Kc4 42. Hb7 Hgl 43. Be8! Tiyggir jafnteflið. Svartur verður að hafa auga með a-peðinu. 43. - Hal 44. Bxf7 Bxf7 45. Hxf7 Hxa4 46. Hg7 Ha5 47. e3 Ha2+ 48. Kel e5 49. Hxg5 e4 50. Hg8 Kd3 51. Hb8 He2+ 52. Kff Hc2 53. Kel Og þeir sömdu um jafntefli. Eftir 53. - Kxe3 54. Hb3+ Kf4 55. Ha3! er upp komin fræðileg jafhteflis- staða. Spennandi skák eins og oft vill verða er þessir tveir risar etja kappi saman. Við látum stystu vinningsskák mótsins fljóta með. Það er Larsen sem enn eina ferðina fer flatt í einni af sínum einkennilegu vængbyrjun- um. Hvítt: Bent Larsen Svart: Viktor Kortsnoj Vængtafl. I. c4 RÍ6 2. g,3 c6 3. Rf3 d5 4. b3 Db6!? 5. Bg2 e5! 6. 0-0 e4 7. Rel h5! 8. Rc3 h4 9. d4 hxg3 10. fxg3 Da5 11. Dc2? Vendipunkturinn í skákinni, að áliti Kortsnojs. Hvítum bar að leika II. Dd2 því að nú á kóngsriddarinn engan reit. 11. - Bb4 12. Bb2 Be6 13. cxd5 Rxd5 14. Rxd5 cxd5 15. a3? Bd2! 16. Ddl Be3+ 17. Khl 17. - Dc7! Larsen gafst upp því að hann á ekki vörn við 18. - Dxg3 og síðan máti á h2. Larsen notaði klukku- stund og átján mínútur á skákina en Kortsnoj 45 mínútur. Hrikaleg útreið! -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.