Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 12
62
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987:
Sérstæö sakamál
Keith og Rowena Cullen á meðan allt lék I lyndi.
Gullkeðian
Brúðkaupið gekk vel fyrir sig og á
eftir fylgdu fjórtán hveitibrauðs-
dagar í sólinni á Spáni. Að þeim
loknum héldu hjónin aftur heim til
Wortley í Leeds á Englandi þar sem
þau hófu búskap í tveggja herbergja
íbúð. Hvorugt þeirra grunaði þá
hvað átti eftir að gerast í henni
tveimur árum síðar.
Líf Cullenhjónanna einkenndist af
heimsóknum í vínstofur, á diskótek
og til ættingja nær og fjær. Það kom
ekki oft fyrir að þau verðu frístund-
um sínum heima. Reyndar höfðu
sumir á orði að meiri líkur væru til
þess að hitta þau á skemmtistöðum
en heima. I rauninni notuðu Cullen-
hjónin aðeins íbúðina til þess að sofa
í. Rowena og Keith gátu hins vegar
leyft sér að lifa ljúfu lífí, meðal ann-
ars vegna þess að faðir Keiths veitti
honum fjárhagslegan stuðning.
Nýtt tækifæri
Ungu hjónin höfðu fengið talsvert
af húsgögnum og öðru frá ættingjum
sínum og eftir á hefur því verið hald-
ið fram að ef til vill hafi lífið verið
gert þeim of létt.
Jill Fraser.
Þótt heimsóknir á skemmtistaði
væru margar stóð Keith sig vel í
vinnunni. Þar kom að að honum var
lagt að fara á námskeið í markaðs-
fræðum. Samtímis var honum gerð
grein fyrir því að slíkt nám gæti síð-
ar orðið til þess að laun hans yrðu
tvöfölduð og jafnyel þrefölduð. í
fyrstu leist honum ekki sérstaklega
vel á hugmyndina um að setjast á
ný á skólabekk enda leit hann svo á
að þar með væri ekki öll sagan sögð
því á eftir náminu myndi koma auk-
ið vinnuálag. Námskeiðið var líka
langt og ef til vill réttara að nefna
það skólagöngu því það tæki þrjú
ár. Hann yrði þó ekki nema tuttugu
og þriggja ára þegar því lyki.
Keith ákvað því loks að læra mark-
aðsfræði. Hann settist á skólabekk í
ágúst 1985 og fór í skólann tvö kvöld
í viku. Reyndar hafði kvöldskólinn
ekki eins slæm áhrif á einkalífið og
hann hafði haldið því þessi tvö kvöld
var hann kominn heim klukkan hálf-
níu og hafði því enn tækifæri til að
gera eitthvað skemmtilegt það sem
eftir var kvölds. Hann áttaði sig þó
ekki strax á því að önnur kvöld í
vikunni, eða að minnsta kosti sum
þeirra, yrði hann að sitja heima við
lestur.
„Reyndu að standa þig“
Heimanámið varð fljótlega útund-
an og þar kom að Keith varð mikið
á eftir hinum nemendunum. Eftir
hálfan annan mánuð sagði kennar-
inn honum að annaðhvort yrði hann
að reyna að standa sig eða hann yrði
að hætta. Nú hætti Keith að fara út
á kvöldin og fór að taka námið alvar-
lega. Það leið heldur ekki á löngu
þar til hann hafði unnið upp það sem
hann hafði misst niður og brátt varð
hann einn af bestu nemendunum á
námskeiðinu.
Rowena átti hins vegar erfitt með
SK
WsMM'
wm
Emma Paige.