Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987. 65' DV kynnir 1. deildarliðin í knattspymu „Þess er alltaf krafíst að Valur verði íslandsmeistari“ - segir Valur Valsson Valsari og hann spáir Val íslandsmeistaratitlinum í ár „Mér líst mjög vel á þetta íslands- mót. Auðvitað verður maður að vera bjartsýnn. Við erum með góðan hóp leiKmanna og það er sama sagan i ár og ætíð, það er alltaf ætlast til þess að Valur verði meistari eða sé í allra fremstu röð í 1. deild í knattspymu sem annars staðar. Við stefiium alltaf á íslandsmeistaratitil og svo er auðvitað einnig nú. Það er gott hugarfar í lið- inu og mjög mikilvægt að leikmenn hugsi rétt,“ sagði Valur Valsson, hinn knái útherji Valsmanna í samtali við DV nýverið. Valur hefur verið fastur maður í Valsliðinu í langan tima og er óneitanlega með skemmtilegustu leikmönnum þess og sýnir oft mjög skemmtilega takta þegar hann leikur á andstæðinginn. Nú hefur Valsmönnum nær undan- tekningarlaust verið spáð sigri á komandi Islandsmóti og flestir ef ekki allir telja að Valur sé með sterkasta liðið. Hvað vilt þú segja um það? „Jú, ég hef heyrt að margir eru þeirr- ar skoðunar að við verðum íslands- meistarar. En ég tel mjög mikilvægt að allir leikmenn Valsliðsins geri sér grein fyrir því að við verðum að gera hlutina sjálfir. Spámar vinna ekki mótið fyrir okkur. Hins vegar get ég ekki neitað því að ég tel að við séum Valsmenn mæta með nokkra Nokkrir sterkir leikmenn hafa gengið til liðs við Val frá síðasta keppnistímabili. Þar má nefna markvörðinn, Guð- mund Baldursson, sem lék áður með Fram, Njál Eiðsson, sem lék með Einherja í fyrra, Hafþór Sveinjónsson, sem áður lék með Fram, og Ólaf Jóhannesson sem lék með FH í fyrra. Ekki eru margir leikmenn Vals- liðsins hættir síðan í fyrra en þó ber að nefna Ársæl Kristjánsson og Hilmar Harðarson en hann mun leika með Aftureldingu í sumar. Þrátt fyrir þessar hræringar innan Valsliðsins má búast við Vals- mönnum fimasterkum í sumar og víst má telja að þeir raunu selja sig dýrt og ekkert gefa eftir fyrr en í fulla hnefana. með góðan mannskap og höfum jafna möguleika og hin liðin á að hreppa titilinn." Ross fyrstur til að þjálfa Val fjögur ár í röð - Eruð þið búnir að æfa vel og lengi? „Nei, ekki lengi en vel. Við byrjuð- um af miklum krafti þegar Ian Ross kom til Islands, 7. mars. Ég hef engar áhyggjur af þvi að við höfum byrjað of seint að æfa. Ross er frábær þjálf- ari og hann veit nákvæmlega hvað hann er að gera. Hann var ráðinn til Vals fyrir þetta tímabil í fjórða skipti i röð og ef mig brestur ekki minni þá er hann fyrsti þjálfari Vals sem er ráð- inn fjögur ár í röð. Það segir sína sögu.“ nýja og sterka leikmenn i Sömu liðin í toppbaráttunni og undanfarin ár - Hvaða lið verða í slagnum um ís- landsmeistaratitilinn i ár? „Ég held að það verði þessi sömu lið og venjulega og þau sem venjulega hafa verið að berjast um titilinn. Framararnir verða mjög sterkir og það má aldrei afskrifa Akumesinga. Þá er ljóst að KR-ingar koma mjög sterkir til leiks. Þeir hafa fengið góðan mann- skap og árangurinn hjá liðinu fer mikið eftir því hvemig þjálfaranum tekst upp. Þetta verður mjög spenn- andi og það er nánast ógemingur að spá fyrir um úrslit. En það er óhætt að lofa áhorfendum góðu íslands- móti,“ sagði Valur Valsson. Og hér fer í lokin spá Vals um endanlega röð lið- anna í haust: 1. Valur 2. -4. Akranes 2.-4. KR 2.-4. Fram 5. Keflavík 6. Þór 7. FH 8. Víðir 9. KA 10. Völsungur -SK |" Nítján meistaratitlar "j i og fimm markakóngar | Valsmenn hafa nítján sinnum orðið Islandsmeistarar f 1, deild og hefur ekkert félag náð oftar í titil- inn. Þá má geta þess að Valur er eina lið 1. deildar í ár sem aldrei hefur leikið í 2. deild. Sjö sinnum hefur Valur leikið í úi-slitaleik bikarkeppni KSl. 1965 vann Valur lið ÍA, 5-3, en árið eft- ir tapaði Valur f>TÍr KR í úrslitum, 0-1. Valur vann svo ÍA, 3-0, í úr- slitum 1976, Fram, 2-1, árið 1977, loks tapaði Valur, 0-1, fyrir ÍA árið 1978 og 1979 vann Fram Val í úrslitum, 0-1. Fimm sinnum hafa Valsmenn orðið markakóngar í 1. deild; Her- mann Gunnarsson 1967 og 1973 með 12 og 17 mörk, Ingi Bjöm Albertsson árið 1976 með 16 mörk, Matthías Hallgrímsson árið 1980 með 13 mörk og Ingi Bjöm Alberts- son 1983 en þá skoraði hann 14 mörk. • Leikmenn Vals sem mættir voru á æfingu í vikunni en nokkra þeirra vantaði vegna utanferða landsliða. lan Ross, þjálfari Vals, er aftast til hægri. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.