Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Side 14
64
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987.
DV kyiuúr 1. defldarliðin í knattspymu
• FH-ingar sjást hér afslappaðir og rólegir eftir erfiða æfingu.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Við FH-ingar ætlum okkur allt
annað en fallbaráttu í sumar“
- segir varnarmaöurinn sterki í FH, Guðmundur Hilmarsson
„Við erum bunir að æfa mjög vel frá
því að við byrjuðum, svona fjórum til
fimm sinnum í viku, en því miður he£-.
ur verið of lítið um æfingaleiki," sagði
hinn eldhressi FH-ingur, Guðmundur
Hilmarsson, í samtali við DV er hann
var spurður um horfumar hjá FH í
sumar. Löngum hafa FH-ingar haft
falldrauginn á herðunum en þeir
hyggjast gera breytingu þar á í sum-
ar. Þeir hafa ráðið til sín skoskan
þjálfara, Ian Fleming, og mun hann
að öllum líkindum leika með liðinu í
sumar í stöðu aftasta manns í vöm-
inni.
Guðmundur heldur áíram: „Við
munum setja alla okkar krafta í sumar
í að forðast fallbaráttu og reyna að
ná góðu sæti í deildinni þegar upp
verður staðið. Við erum orðnir mjög
leiðir á sífelldri fallbaráttu og stefnum
hátt í sumar.“
„Valur, Fram og KR
eru sterk á pappírnum“
- Heldur þú að Ian Fleming muni
breyta FH-liðinu mikið frá í fyrra?
„Ég veit ekki hvaða leikmenn hann
hyggst nota mest í sumar en hitt er
ljóst að hann hefur þegar breytt ein-
hverju í leik okkar. Við höldum að
hann sé snjall þjálfari og vonumst eft-
ir góðum árangri undir hans stjóm.
Hann hefur þegar náð upp mikilli
stemmningu í liðinu."
- Nú em allir að spá í toppbaráttuna
í sumar. Hvaða lið sérð þú fyrir þér í
toppbaráttunni í 1. deild?
„Það er auðvitað erfitt að vera með
mikla spádóma en því verður ekki
neitað að Valur, Fram og KR em með
mjög sterk lið á pappírnum. Svo gæti
farið að þessi lið skæm sig nokkuð
úr og ef svo verður þá er það trú mín
að hin liðin fylgi í einum hnapp á eft-
ir.“
„Meiðsli Jóns Erlings gætu
sett strik í reikninginn"
- Vilt þú spá einhverju um fallbarátt-
una?
„Það gildir það sama um fallbarátt-
una og toppbaráttuna, það er erfitt að
spá um gengi liðanna áður en mótið
hefst. En ég hef þó á tilfinningunni
að komandi keppnistímabil verði nýju
liðunum í deildinni, KA og Völsungi,
erfitt. Hitt er ömggt að við FH-ingar
ætlum okkur stærri hlut í sumar en
áður. Við höfum að vísu orðið fyrir
nokkm áfalli þar sem Jón Erling
Ragnarsson er meiddur og má ekki
hefja æfingar fyrr en eftir fimm vikur.
Þetta kemur sér auðvitað illa fyrir
okkur en vonandi nær Jón sér að fullu
af meiðslunum sem fyrst.“
- I lokin langar mig til að biðja þig
að spá fyrir um röð liðanna.
„Ég get reynt en geri þetta að sjálf-
sögðu meira í gríni en alvöru."
1. Valur
2. KR
3. Fram
4. Keflavík
5. Akranes
6. FH
7. Þór
8. -10. Völsungur
8.-10. Víðir
FH aldrei orðið ís-
iandsmeistari í 1. deild
FH-ingar hafa ekki riðið mjög feit-
um hesti frá keppni í meistara-
Ðokki karla í knattspymunni.
Félagið á það sameiginlegt með
nokkrum öðrum félögum, sem
leika í 1. deild, að liðið hefur aldr-
ei borið sigur úr býtum í 1. deild.
Aftur á móti hafa FH-ingar tví-
vegis sigrað í 2. deild en það var
fyrst árið 1974 og svo aftur árið
1984, tíu árum síðar. Þess má geta
að Iþróttabandalag Hafnaríjarðar,
ÍBH, sigraði einnig tvívegis í 2.
deild, árin 1956 og 1960, það er
áður en Haukar og FH sameinuö-
ust.
Markakóng 1. deildar hefúr FH
alilrei eignast þrátt fyrir að margir
raarksæknir leikmenn hafi leikið
með liðinu í 1. deild.
i-------------------------------------------------n
! Guðjón og lan Fleming!
! bætast í hópinn hjá FH!
Nokkrar breytingar verða á með Fram, leiki með liðinu í sum- |
I FH-hðinu frá síðasta keppnistíma- ar. ■
I bili en ekki þó eins miklar og hjá Tvö nöfri ber hæst þegar litið er I
I mörgum öðrum liðum í 1. deild. yfir nýja leikmenn í herbúðum I
I FH-inga. •
I Ingi Bjöm Albertsson hefur sem Það er annars vegar Guðjón Guð- I
j kunnugt er skipt yfir í Val og þang- mundsson sem áður lék með ÍK
| að fór einnig Ólafur Jóhannesson. og Þór frá Akureyri og svo þjálfar- |
Þá er talið mjög ólíklegt að ólaf- inn Ian Fleming sem þykir mjög .
| ur Hafsteinsson, áður leikmaður liðtækur leikmaður.
I___________________________________________________I