Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987.
67
Bílar
. WBj|
III r HB
tt fX i
Citroen AX - ný hugsun í gerö smábíla frá þessum frönsku bílasmiöjum - er nú loks kominn hingaö til lands. Þessi bill
byggir aö mörgu leyti á því sem áður sást í BX-bílnum en í útliti er honum stefnt gegn mörgum keppinautum i sama
stærðarflokki. DV-mynd RS
Citroen AX er
mættur til leiks
- léttur og lipur smábíll sem höfðar til breiðari kaupendahops
Það vakti þónokkra athygli á sið-
asta ári þegar Citroen kynnti nýjan
smábíl, Citroen AX. Þessi bíll var
kynntur fyrst opinberlega í Bergerac
í Suður-Frakklandi í september og þá
fjallað um hann hér í DV. Nú er AX
loks kominn hingað til lands og því
rétt að tæpa lítillega á því helsta.
AX er sá bíla frá Citroen sem minnst
minnir á fyn'i bíla frá þeim verksmiðj-
um. I útliti svipar honum mjög til
annarra bíla í sama stærðarflokki og
innrétting og mælaborð eru einnig
fjarri því sem áður befúr sést á þeim
bæ. Þessa línu höfum við þó séð áður
í Citroen BX. AX-bílnum er greinilega
ætlað að höfða til breiðari kaupenda-
hóps líkt og BX á sínum tíma.
Þótt AX sé kannski ekki svo frá-
brugðinn í útlití frá öðrum bílum í
sama stærðarflokki þá hefur hann
hlotið í arf frá fyrirrennurum sínum
ýmsa þá kosti sem lyfta honum upp.
AX hefur greinilega notið góðs af
tilraunabílnum ECO 2000 frá Citroen,
sérstaklega hvað varðar lækkun heild-
arþyngdar, minni mótstöðu og betri
nýtingu vélarafls.
Heildarlengd bílsins er aðeins 3,5
metrar en þrátt fyrir það er innanrým-
ið lengra en í flestum keppinautanna
eða alls 161 sentímetri. Þá er hann
ríkulega búinn aukahirsfum og hólf-
um, alls á 18 stöðum.
Athygli vekur hve léttur bíllinn er.
Notkun gerviefna hefur gert sitt til
að létta bílinn. Útkoman er bíll sem
er um hundrað kílóum léttari en marg-
ir keppinautanna eða 640 til 695 kíló
eftir búnaði.
f upphafi var búist við nýrri gerð
véla í AX, svipaðri FIRE vélinni í Fiat,
en Citroen og Fiat höfðu átt samvinnu
við hönnun slíkra véla. Frá þessu var
horfið og hannaðar nýjar vélar, 954
cc - 45 hö., 1124 - 55 hö. og 1360 - 65
hö. Þessi nýja vél er með yfirliggjandi
knastás og ýmsum öðrum nýjungum.
Gírkassi er einnig nýr, 4ra eða fimm
gíra og er hann algjörlega smíðaður
af vélmennum. Hann er smurður fyrir
„lífstíð" með sérstakri olíu.
Fjöðrunin er einnig ný af nálinni
hvað varðar bíla frá Citroen. Hin róm-
aða vökvafjöðrun Citroen er ekki
lengur fyrir hendi heldur er komin
McPherson gormaflöðrun að framan
og að aftan er einnig sjálfstæð fjöðrun
en í formi þverstæðrar snúnings^öð-
runar með láréttum höggdeyfum sem
gera það að verkum að gólfið að aftan
getur verið lægra og þar með meira
rými fyrir farangur.
Það verður aldrei af Citroen skafið
að þar eru þægindin sett ofar mörgu
öði-u. Hvað AX varðar þá er hann
þægilegur í akstri þótt ekki sé mjúku
hreyfingunum. sem einkenndu bílana
frá Citroen með vökvafjöðruninni, fyr-.
ir að fara.
Fjöðrunin er stíf og jöfh og svarar
sérstaklega vel í hörðum beygjum og
á holóttum vegi. Sætin í dýrari gerð-
unum eru sérlega góð og styðja vel
við ökumann og farþega í akstri.
Mælaborð og stjómtæki eru horfin
frá fyrri línu Citroen og em meira í
anda annarra svipaðra bíla. Stjómi'of-
ar fyrir stefnuljós, ljós og þurrkur em
á stilkum en rúðusprauta í hnapp í
mælaborði.
Bílar
Jóhannes Reykdal
Þótt innanrýmið sé mikið þá finnst
mér fulllítið fótarými fyrir vinstri fót-
inn í akstri, þvi hjólskálar taka of
mikið af fótaiýminu. Lengd innanrým-
isins kemur hins vegar til góða fyrir
aftursætisfarþegana því nóg rými er
fyrir hnjákollana þótt framsæti sé ýtt
aftur.
I reynsluakstri kom þessi nýi Citroen
vel út, gott viðbragð og nægilegt vélar-
afl, sérstaklega í dýmstu gerðinni, AX
14 TZS, sem er með 65 hestafla 1360
rúmsentímetra vél. Bensíneyðslan
kom mér einnig á óvart því meðal-
eyðslan í reynsluakstrinum reyndist
aðeins 4,8 lítrar á hundraðið þótt ekki
væri ekið með neinn sparakstur í
huga.
Ég var svolítið efins hvernig svo létt-
ur bíll 'kæmi út T kröppum beygjiun.
Raunai' gerir náttúrulögmálið ráð fyr-
ir að jafnléttur bíll hafi minna veggrip
en þeir sem þvngri ei-u en það var
sama hvemig bílnum var þevtt inn í
krappar beygjur, hann skilaði sér allt-
af rétt úr þeim.
Heildarniðurstaða reynsluaksturs á
AX er sú að hér er vel heppnaður bíll
á ferðinni. Hann er ..minni" Citroen
en búast mátti við en verðugur keppi-
nautur bíla eins og Fiat Uno. Peugeot
205 og Renault 5.
Plúsar eru góðir aksturseiginleikai'.
gott útsýni. þægileg stjómtæki og góð-
ur búnaður.
Mír.usar em ónógt fótarými að fram-
an, slæmur aðgangui' að rúðusprautu
og óvarið vai'adekk undir bilnum að
aftan.
Nú er bara að sjá hvernig AX stend-
ur sig í samkeppninni hér á landi.
Hvað verðið áhrærir þá ætti hann að
geta keppt á þeim markaði því ódýr-
asti bíllinn sem boðið er upp á hér.
AX 10 RE. kostar um 329.900. Dýrasti
bíllinn. AX 14 TZS. kostai' hins vegar
mn 415.000 krónur.
Nokkrar tölur:
Lengd: 3,50 m
Breidd: 1,56 m
Hæð 1.35 m
Öxlabil: 2.285 m
Þyngd: 640-695 kg (eftir gerð).
Vélar: Fjögurra strokka. þverstæð
með yfirliggjandi knastás.
AX 10: 954 rúmsm, 45 hö. (32,5 kW)
við 5200 sn. á mín. Þjöppun 9,4:1
AX 11:1123 rúmsm, 55 hö. (40 kW) við
5800 sn. á mín. Þjöppun 9,4:1
AX 14:1360 rúmsm, 65 hö. (47 kW) við
5400 sn. á mín. Þjöppun 9,3:1
Gírkassi. A-X 10 og 11: Fögurra gira.
AX 14: Fimm gíra.
Hjól: AX 10 og 11: 135/70-13. AX 14:
155/70-13.
Fjöðmn: McPherson að framan, þver-
stæð snúningsfjöðmn að aftan.
Hemlar: Diskar að framan, skálar að
aftan. Hjálparafl á dýrari gerðunum.
Stýri: Tannstangarstýri.
Aldagamlar
kínverskar
trékúlur gera
aksturinn
þægilegrí
Aldagömul kínversk hefð verður
ef til vill til þess að létta mörgum
ökumanninum langa setu undir
stýri. Hér er um að ræða svokallaðar
slökunarkúlur, nokkurs konar
sætaáklæði úr litlum trékúlum sem
festar em saman með gimi og mynda
heila mottu yfir allt sætið.
Þetta er í raun byggt á þúsund ára
gamalli kínverskri hefð og enn þann
dag í dag nota Kínverjar mottur úr
slíkum kúlum til að sofa á. Þessar
sætamottur em tveggja ára gömul
uppfinning, uppmnnin í Frakklandi.
Þar í landi má segja að hún hafi sleg-
ið í gegn og sem dæmi má nefna að
15.000 leigubílstjórar í París einni
nota slökunarkúlurnar við akstur-
inn.
Galdurinn við þessar kúlur er sá
að við hrevfingu bílsins nudda kúl-
umai’ líkamann og koma þar með
blóðinu á hre.N'fingu. Með þvi má
koma í veg fyrir bakverki og ýmsa
aðra kvilla sem langsetur undir stýri
geta orsakað.
Frágangurinn á kúlunum er með
þeim hætti að tvefr þræðir úr gimi
em þræddir í gegnum hverja kúlu
og mynda net sem á að halda þótt
annar þráðurinn slitni. Kúlurnar eru
meðhöndlaðai- á sérstakan hátt
þannig að þær em glansandi og þar
með auðveldara að fara út úr bílnum
eða renna sér inn í sætið.
Ótrúlega þægilegt
Ég var hálfvantrúaður i upphafi á
að það gæti verið þægilegt að sitja
á grjóthörðum trékúlum í akstri.
Revndin varð allt önnur. Það er
ótrúlega þægilegt að sitja á slökun-
arkúlunum og þær bera svo sannar-
lega nafn með rentu því eftir akstur.
sérstaklega á lengri leiðum. er það
staðreynd að ökiunaðurinn er með
minni strengi eða önnur óþægindi.
Einnig koma kúlurnar algjörlega í
veg fyrir þá óþægindatilfinningu sem
er því samfara að svitna við langa
setu undir stýri.
Það er Islendingur. búsettur í Dan-
mörku. Freyr Franksson. sem á
heiðurinn af því að kynna okkur
þessa nýjung og flytur hana inn en
hér á landi verða kúlumottumar
fáanlegar á bensínstöð\'um Olís.
Einnig hefur Freyr kynnt þær ýms-
’um starfsstéttum sem vegna vinnu
sinnar þurfa að sitja lengi undir
stýri. Þeiira á meðal má nefha leigU-
bifi'eiðastjóra og þeir sem reynt hafa
kúlumar rilja ekki án þeima vera.
og sja ma mynaa kulurnar heila mottu yfir sætið. Að ofan eru þær
festar með höfuðpúðafestingunum en bundnar niður til hliðanna að neðan.
DV-mynd Brynjar Gauti