Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1987, Qupperneq 18
68
FIMMTUDAGUR 30. APRÍL 1987.
Popp
C.S.N.& Y. saman á ný
Gömlu félagamir David Crosby,
Stephen Stills, Graham Nash og Neil
Young eru famir að æfa saman og
hafa verið að halda hljómleika að
undanfómu í Bandaríkjunum.
Crosby, Stills og Nash komu reynd-
ar saman fyrir nokkrum árum og
gerðu eina plötu saman en Neil
Young hefur ekki starfað með þeim
frá árinu 1974. Harrn gerði aðeins
eina stúdíóplötu, Deja Vu, með þess-
um merka kvartetti, en þegar vinnsla
annarrar stúdíóplötunnar var að
hefjast sinnaðist honum eitthvað við
félaga sína, gekk út úr hljóðverinu
og kom aldrei aftur, skv. því sem
haft var eftir David Crosby. Þar með
urðu þeir þrír á nýjan leik. En hvað
veldur því að Neil Young gengur til
liðs við þessa gömlu félaga sína 13
árum eftir að samstarfinu lauk? kann
einhver að spyrja.
Að sögn Neils Young má leita skýr-
inganna hjá David Crosby. Hann var
driffjöðrin í gamla daga og nú, þegar
hann hefúr losað sig við eiturlyfja-
vandann og er orðinn eins og maður
á nýjan leik, er kominn grundvöllur
fyrir frekara samstarf. David Crosby,
sem er orðinn 45 ára gamall, er í
góðu formi eftir fangavist og dvöl á
endurhæfingarhæli. Hann var hand-
tekinn og dæmur til átta mánaða
fangavistar í héraðsfangelsi Dallas á
síðasta ári vegna eiturlyfja sem fund-
ust í fórum hans og fyrir ólöglegan
Helgaipopp
Jónatan Garðarsson
vopnaburð. Nú leikur hins vegar allt
í lyndi og Crosby hefur ekki verið
jafnvel á sig kominn líkamlega og
andlega í 10 ár.
Þeir byijuðu að hljóðrita efhi á
nýja plötu í febrúar, en það eru nokk-
ur ljón á veginum. Neil Young á enn
eftfr að skila Geffen útgáfúnni tveim-
ur plötum áður en einkasamningur
Geffens við Young rennur út. Geffen
sjálfur segir ekkert því til fyrfrstöðu
að Crosby, Stills, Nash og Young
geri plötu, eina skilyrðið sé að hún
komi út hjá sér. Hinir þrír eru samn-
ingsbundnir hjá Atlantic útgáfunni
og þess vegna getur orðið nokkuð
erfitt að útkljá málin. En Young hef-
ur engar áhyggjur. Hann segir að
ekki sé hægt að banna mönnum að
starfa saman á listrænum grundvelli
vegna einhverra fjármálasamninga.
Þeir muni gera plötuna og skila
henni af sér, síðan geti viðskiptajöfr-
amir samið um skiptingu kökunnar.
Það skiptir í rauninni ekki máli hvort
platan kemur út á þessu ári eða eftir
fimm ár. Þeir segjast vera í það góðri
samæfingu núna og eiga það mikið
af góðum lögum að þau komi til með
að standast tímans tönn og aðdáend-
ur þeirra hafa sýnt að þeim er sama
þótt rúmur áratugur sé nú liðinn síð-
an þeir unnu síðast saman. Hvað eru
þá nokkur ár í viðbót ef því er að
skipta?
U2 veldur öngþveiti
Irska hljómsveitin U2 fylgir nú
plötunni Joshua Tree eftir með
hljómleikaferð um Bandaríkin.
Þegar sveitin hafði viðdvöl í Los
Angeles fyrir stuttu var ákveðið
að nota tímann og gera myndband
við lagið Where The Streets Have
No Name sem mun verða á næstu
smáskífu þeirra.
En ekki eru allar ferðir til fjár
og það sannreyndu strákarnir í U2.
Þrátt fyrir að þeir hefðu gert allar
ráðstafanir, svo sem að fá leyfi
borgaryfirvalda og þess háttar, fór
allt úr böndunum. Þeir ætluðu að
mynda á þaki vöruskemmu nok-
kurrar í fremur vafasömu hverfi í
Los Angeles en svæðisútvarpsstöð
hafði fregnað hvað til stóð og sagði
frá atburðinum i útsendingartíma
og gaf jafnframt upp staðsetningu
og tímasetningu myndatökunnar.
Það var ekki að sökum að spyrja.
Allt varð vitlaust.
Þegar yfirmenn lögregluliðs Los
Angeles fréttu af útsendingu stöðv-
arinnar voru ráðstafanir gerðar til
að koma í veg fyrir öngþveiti en
allt kom fyrir ekki. Þegar lögreglan
kom á vettvang höfðu þúsundir
dyggra aðdáenda mætt á staðinn
og næriiggjandi götur voru því
tepptar sökum mannfjöldans.
Reynt var að koma fólkinu í burtu
en ekkert gekk og gripu lögreglu-
mennirnir þá til þess ráðs að ræða
við meðlimi hfjómsveitarinnar.
Þeim viðræðum lauk á þá leið að
strákunum frá eyjunni grænu var
skipað að ljúka myndatökum á 20
mínútum og hafa sig síðan á brott.
Þessum fyrirmælum hlýddu þeir
hins vegar ekki og gerðu lögregl-
unni þann grikk að bregða á leik
og spila fyrir nærstadda aðdáendur
sína lögin Sunday Bloody Sunday,
Dancing in the Street og Where the
Streets Have No Name. Gripu þá
lögregluyfirvöld til þess ráðs að
taka rafmagnið af hverfinu í miðju
lagi og síðan var ráðist til úpp-
göngu og meðlimir U2 reknir á
braut ásamt aðstoðarfólki sínu.
Mega drengirnir þakka fyrir að
ekki var gripið til þess ráðs að
handtaka þá fyrir að stofna til
óspekta á almannafæri.
Meðlimir U2 veita irskum aðdáanda eiginhandaráritun. A myndinni sjást
Alison (kona Bono), The Edge, Larry Mullen Jr. Bono, aðdáandinn
heppni og Paul McGuinnes, umbi U2.
Grace Jones, Yoko Ono og Sean Lennon hugleiða hvernig heimildar-
myndin um ævi Johns Lennon muni lita út á hvíta tjaldinu.
Ný heimildarmynd um Lennon
Vinnsla er hafin á nýrri heimild-
arkvikmynd um ævi Johns Lennon
sem á að bera heitið In My Life.
Yoko Ono hefur gefið leyfi sitt til
vinnslunnar og jafnframt veitt
framleiðandanum, David L. Wol-
per, fullt athafnafrelsi við gerð
myndarinnar. Hún hefur afhent
honum ýmsar heimildarmyndir,
kvikmyndabúta, sem þau gerðu
saman, og ýmsar myndir af Lennon
úr einkasafni sínu. Þá hefur Yoko
sagt að hann geti notað ýmis lög
sem Lennon samdi á sínum tíma
en hafa hvorki heyrst áður né ve-
rið hljóðrituð. Kvikmyndafram-
leiðandinn David L. Wolper hefur
gert myndir á borð við This Is El-
vis, Hellstrom Chronicle og Willy
Wonka and the Chocolate Factory.
Hann hefur náð samningum við
EMI og Capitol um notkun á tón-
list þeirra sem Lennon hljóðritaði,
bæði með Bítlunum og einn síns
liðs. Wolper hefur algerlega frjáls-
ar hendur og þarf ekki að leita
samþykkis hjá Yoko né neinum
öðrum um samsetningu efnisins.
Hér er fyrst og fremst um kvik-
mynd að ræða og Yoko Ono hefur
látið hafa eftir sér að hún þekki
fyrri verk Wolpers og beri fullt
traust til hans. Þau hafi hist og
hann hafi sannað fyrir sér að hann
'beri mikið og gott skynbragð á það
hvernig John Lennon var í raun-
inni og hvernig best sé að koma
þeirri vitneskju á framfæri við
komandi kynslóðir, sem og þá sem
þekktu verk hans af eigin raun.
„Ég tel að þetta eigi að verða hin
eina og sanna heimild um John,“
segir Yoko. „Myndin verður sýnd
í kvikmyndahúsum en hún á að
vera gerð með þeim hætti að allir
núlifandi aðdáendur og þær kyn-
slóðir sem á eftir okkur koma geti
farið og kynnt sér allt um John
Lennon á næsta kvikmyndasafni."
Samkvæmt nýjustu fréctum mun
áætlað að Live Aid 2 eða One
World tónleikarnir verði haldnir í
júlí þrátt fyrir að Terry Waite,
verndara tónleikanna, sé enn hald-
ið í gíslingu í Beirút. Ekki hafa enn
komist á kreik flugufregnir um
hvaða hljómsveitir og söngvarar
koma til með að troða upp.
Amnesty International fyrir-
hugar að halda veglega upp á það
þegar 40 ár verða liðin frá því að
mannréttindasáttmáli Sameinuðu
þjóðanna var gerður opinber. Þetta
merkisafmæli verður haustið 1988
og er áætlað að tónleikaferðin heíj-
ist í september og standi í 40 til 60
daga og að farið verði um Norður-
og Suður-Ameríku, Evrópulönd,
Asíu og Afríku. Meðal hljómsveita,
sem nefndar hafa verið til leiksins,
er Dire Straits, en sú hljómsveit er
í rauninni ekki til í dag. Mark
Knopfler og John Isley bassaleik-
ari leystu sveitina upp í lok
Brothers in Arms hljómleikaferð-
sumarsins
Madonna er á meðal þeirra sem leggjast í ferðalög í sumar til að skemmta aðdáendum sinum.
arinnar og það er því óvíst hvort
hljómsveitin er til og hverjir eru
þá meðlimir hennar.
Prince mun ætla í hljómleikaferð
um Evrópu í sumar í kjölfar útgáfu
plötunnar Sign ’O’The Times.
Hann losaði sig við hljómsveitina
Revolution á síðasta ári og verður
því að finna nýja meðreiðarsveina
til hljómleikahaldsins.
Sömu sögu er að segja af David
Bowie sem var að senda frá sér
nýja plötu. Hann hefur skipulagt
sína viðamestu hljómleikareisu til
þessa og mun m.a. koma fram á
Wembley dagana 19. og 20. júni.
Nú þegar er uppselt á seinni tón-
leikana en heppnir aðdáendur geta
ef til vill tryggt sér miða á fyrri
tónleikana ef gripið er til skjótra
aðgerða. Þeir sem leika með Bowie
að þessu sinni eru: gamli skólafé-
laginn Peter Frampton, Carlos
Alomar, Carmine Rojas, Allen
Childs, Richard Cottle og tyrk-
neski hljómborðsleikarinn Erdal
Kizilcay.
Bob Dylan ætlar að halda tón-
leika víða, fyrst með Grateful Dead
en síðan með Tom Petty and the
Heartbreakers.
Kanadíski rokkarinn Bryan Ad-
ams var að senda frá sér plötuna
Into the Fire og í kjölfarið fer hann
í hljómleikaför. Madonna mun trú-
lega halda í reisu í sumar um leið
og búið er að frumsýna þriðju kvik-
mynd hennar, Who’s That Girl. Þá
verða samkvæmt venju fjölmargar
tónlistarhátíðir haldnar í Bretlandi
og annars staðar í Evrópu í sumar.
Meðal þeirra sem koma fram á
Glastonbury-hátíðinni 19. til 21.
júní eru Elvis Costello, Commun-
ards, Robert Cray, Los Lobos,
Richard Thompson Band, Wood-
entops, Mighty Lemon Drops, Ben
E. King, Taj Mahal, Van Morrison
og New Order.