Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1987, Qupperneq 40
62 •
FRÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Breifing: Simi 27022
MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1987.
Steingrímur
mætir kl. 11
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra gengur fyrstur flokksfor-
manna á fund forseta Islands,
Vigdísar Finnbogadóttur. Stein-
grímur á að mæta klukkan 11 í
fyrramálið.
Formaður Sjálfstæðisflokksins,
hins stjómarflokksins, Þorsteinn
Pálsson, mætir klukkan 14 á morg-
un. Fulltrúar annarra flokka og
framboða ganga síðan á fund forset-
ans í stafrófsröð flokkanna.
Formaður Alþýðubandalagsins,
Svavar Gestsson, mætir á morgun,
klukkan 16. Formaður Alþýðu-
flokksins, Jón Baldvin Hannibals-
son, kemur fyrstur á föstudag,
klukkan 10.30. Formaður þingflokks
Borgaraflokksins, Albert Guð-
mundsson, er skráður klukkan 14.
Formaður þingflokks Kvennahsta,
Guðrún Agnarsdóttir, á bókaðan
tíma klukkan 15. Loks á Stefan Val-
geirsson, þingmaður Samtaka um
jafnrétti og félagshyggju, að mæta
klukkan 16. -KMU
íslendingur
sigrar í
stærðfræði
Geir Agnarsson hreppti fyrsta sæt-
ið í norrænu ólympíukeppninni í
stærðfræði og deildi því með Svía
og Finna. Hlutu þeir allir 14 stig af
20 mögulegum. í fjórða sæti lenti svo
Sverrir Öm Þorvaldsson með 13 stig.
Norræna olympíukeppnin í stærð-
fræði var haldin samtímis í öllum
Norðurlöndunum 30. mars síðastlið-
inn. Keppendur voru alls 47, þar af
7 íslendingar. -EIR
Borgarráð
samþykkti
Borgarráð samþykkti í gær sam-
komulag það sem Dagvistun bama
og fóstrur gerðu með sér og Davíð
Oddsson borgarstjóri og Haraldur
Hannesson, formaður Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar, gerðu um
sama mál. Þar með er sú kjaradeila
sem fóstrur hafa staðið í undanfarið
búin í bili að minnsta kosti. -S.dór
LOKI
Á Sverrir nokkurn annan
leik en að skipa Björn
Dagbjartsson í fræðslumáiin?
Skotárás á
„Ég hef enga ástæðu til að ætla ur nú að rannsókn árásar er gerð mánudaginn.
að þessu hafi verið beint gegn mér, var á skrifstofu lögfræðingsins um Engin skot fúndust á gólfí skrif-
í það minnsta vona ég að svo sé síðustu helgi. Svo virðist sem skotið stofúnnar við rannsókn. Hins vegar
ekki,“ sagði reykvískur lögfræðing- hafi verið úr loftbyssu á rúður skrif- sáu menn smásteina sem gætu verið
ur í samtah við DV. stofunnar og voru tvær brotnar er komnirúrteygjubyssueðaloftriffli.
Rannsóknarlögregla ríkisins vinn- lögmaðurinn kom til vinnu sinnar á -EIR
Stundum er sagt að vorboðarnir séu þrír, koma farfuglanna, grásleppuveiðin og strákar við veiðar á bryggjunum.
Þegar þetta þrennt er til staðar megum við bóka að vorið er komið fyrir alvöru. í gær voru strákarnir byrjaöir að
dorga niöri á bryggju, eins og þessi mynd sýnir, farfuglarnir eru löngu komnir og karlarnir eru byrjaðir að selja
rauðmaga við Ægisiðuna. DV-mynd S
Fræðslurað skoðar
umsóknimar
Jón G. Hauksson, DV, Akuieyri:
Fræðsluráðið í Norðurlandsum-
dæmi eystra gefur sér hálfan mánuð
til að skoða umsóknimar þijár sem
liggja fyrir um fræðslustjóraembætt-
ið. Ráðið ætlar að skila af sér skóla, og Guðmundur Ingi Leifeson,
umsögnunum 18. maí nk. Fyrir ligg- frasðslustjóri Norðurlands vestra.
ur að umsækjendumir eru, auk Fræðsluráöið hefiir til þessa itrek-
Sturlu Kristjánssonar, fyrrverandi að stutt Sturlu aftur í embættið og
fræðslustjóra, þeir Ólafúr Guð- marghvatt til þess að hann yrði end-
mundsson, skólasfjóri Egilsstaða- urráöinn.
Veðrið á morgun:
Breytileg
vindátt
Veðrið á morgun verður alís-
lenskt, breytileg vindátt og víðast
hvar 4-6 vindstig. Rigning verður
víða um land og hitinn ó bilinu 3-7
stig.
Loðnukvótinn
fer niður í
417 þúsund
lestir í ár
Eins og skýrt var frá í DV fyrir
nokkru verður loðnukvóti íslendinga
í ár minnkaður verulega og nú liggur
endanleg tala fyrir sem er 417 þúsund
lestir í ár. Kvótinn í fyrra var 652
þúsund lestir. Hér er átt við kvóta frá
því loðnuveiðamar hefjast í sumar og
til áramóta. I janúar ó næsta ári er
máhð svo endurskoðað og kvóti næstu
vetrarvertíðar þá ákveðinn.
Heildarkvótinn sem Norðmenn og
Islendingar fá er 500 þúsund lestir en
var í fyrra 800 þúsund lestir. íslending-
ar fá í sinn hlut 15 % en íslendingar
85 %. Það lá fyrir eftir loðnurannsókn-
arleiðangur í vetur að skera þyrfti
niður loðnuveiðamar en það er svo
ekki fyrr en nú að endanlegar tillögur
fiskifræðinga hggja fyrir. -S.dór
Sigliffjórður:
Húseiningar hf.
gjaldþrota
Jón G. Hauksscm, DV, Akureyri:
Fyrirtækið Húseiningar hf. á Siglu-
firði, sem þekkt hefur verið fyrir
svokölluð Siglufjarðarhús, hefúr verið
lýst gjaldþrota. Aðdragandinn að
gjaldþrotinu mun vera langvarandi
rekstrarerfiðleikar vegna samdráttar
í byggingariðnaði. Tap fyrirtækisins
mun hafa verið mikið á undanfömum
árum. Fyrirtækið mun ekkert skulda
á Siglufirði en stærstu kröfuhafar rík-
issjóður og ýmsir lánasjóðir.
Fasttauna-
samningur
hjá verslunar-
mönnum
Verslunarmannafélag Reykjavíkur
og Landssamband verslunarmanna
hafa gert fastlaunasamning við
Vinnuveitendasambandið. Felur hann
í sér að byijunarlaun þeirra sem orðn-
ir em 16 ára verða 27 þúsund krónur
á mánuði, þeir sem orðnir em 17 ára
fá 28.500 krónur og launin fara í 30
þúsund krónur hjá þeim sem orðnir
em 18 ára.
Laun þeirra sem kallast sérhæft
verslunaifólk verða á bilinu 34.500 til
36 þúsund krónur á mánuði. Laun
deildarstjóra verða 15 % hærri en al-
menns verslunarfólks. Samningur
þessi nær ekki til Vinnumálasam-
bands samvinnufélaga en samningar
við það munu vera á næsta leiti.
-S.dór
Útgerðarféiag Skagfirðinga:
Tapaði 35
milljónum
Jón G. Hanksscao, DV, Akureyri:
Útgerðarfélag Skagfirðinga tapaði
35 milljómun króna á síðasta ári. Tveir
togarar félagsins voru í viðgerð í tæpt
hálft ár hvor.
„Skipin vom í viðgerð frá mai til
september á síðasta ári, en það er aðal-
annatíminn,“ sagði Bjarki Tryggva-
son, framkvæmdastjóri útgerðarfé-
lagsins, í morgun.
Félagið á þijú skip, Hegranesið, sem
var í gangi allt sl. ár, en Drangey og
Skafti em skipin sem voru send til
viðgerðar til Þýskalands.