Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1987, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1987, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 1987. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SiMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 550 kr. Verð i lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Spá Þjóðhagsstofnunar Þjóðhagsstofnun hefur að beiðni stjórnmálaflokk- anna sent frá sér nýja spá um framvindu efnhagsmála í ár. Breytingar hafa orðið frá fyrri spá. í fyrsta lagi hafa tekjur hækkað meira en gert var ráð fyrir í fyrri áætlunum. I öðru lagi stefnir nú í meiri halla á ríkis- sjóði en gert var ráð fyrir áður. Helztu breytingarnar koma síðan fram í vaxandi viðskiptahalla gagnvart út- löndum og meiri verðbólgu en áður var spáð. Líklegt er, að jafnvel í þessari spá stofnunarinnar séu verðbólga og ríkishalli vanmetin. Þjóðhagsstofnun hef- ur haft tilhneigingar til að spá minni verðbólgu en orðið hefur. Gæta ber þess, að verðbólguhraðinn er nú um tuttugu prósent miðað við heilt ár. Þá vantar nokkuð upp á, að allt sé tilgreint, sem ýtir undir ríkishallann. En hið fyrsta, sem menn koma auga á við spána nú, er, að staðan er viðkvæmari en áður, þótt margt standi vel. í febrúarspá stofnunarinnar var gert ráð fyrir 22-23 prósent hækkun atvinnutekna á mann milli áranna. Spáin byggðist á desembersamningunum, þannig að gert var ráð fyrir, að samningsbundnar launabreytingar á þessu ári yrðu í meginatriðum þær sömu og þar. í ljósi þeirra kjarasamninga, sem síðan hafa verið gerðir við opinbera starfsmenn og fleiri, hefur stofnunin nú hækk- að þessa spá í 25 prósent hækkun á mann milli áranna 1986 og 1987. Horfurnar í kjaramálum hafa áhrif á verðbólguna. 1 þjóðhagsspá í febrúar var reiknað með 11,5 prósent verðbólgu frá upphafi til loka árs. Nú segir Þjóðhags- stofnun, að verðbólgan geti orðið 13-15 prósent á árinu. Kaupmáttur tekna gæti orðið meiri í ár en fyrri áætlan- ir gáfu til kynna, til dæmis 8,5-10 prósent. Kaupmáttur ráðstöfunartekna eftir skatta gæti aukizt í svipuðum mæli, þar sem stofnunin gerir ekki ráð fyrir breytingum á beinum sköttum í dæmum sínum. Fyrir nokkrum dögum benti dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri á hættuna á hækkun vaxta. Til að koma út ríkisskuldabréfum þarf ríkið að keyra upp vexti, sem hefur áhrif á allan markaðinn. Síðan hafa sumir hagfræðingar mælt með aukningu á erlendum lántökum til að halda vöxtum innanlands eitthvað niðri. Við því verður sérstaklega að vara. Skárra er, að við stöndum sjálf undir þessum kostnaði og veltum honum ekki á komandi kynslóðir. Því verðum við að taka á okkur vaxtahækkanir og jafnvel, en síður, skatta til að standa undir þessum kostnaði. Þjóðhagsstofnun bendir á fleira slæmt í þróuninni. Okkur tókst í fyrra að halda jöfnuði í viðskiptum við útlönd. Nú segir stofnunin, að viðskiptahallinn gæti orðið tveir milljarðar króna á þessu ári eða rúmlega eitt prósent af landsframleiðslu. Hallinn gæti jafnvel orðið meiri. Þetta er slæm staða, að okkur skuli ekki takast að varðveita árangur síðasta árs betur en þetta. Viðskiptahalli, verðbólga og ríkishalli verða meðal helztu verkefna næstu ríkisstjórnar. Þjóðhagsstofnun gerir nú ráð fyrir, að halli á ríkis- rekstri verði meiri en áður var spáð. Hallinn gæti orðið 3,2-3,4 milljarðar króna. Á fjárlögum var gert ráð fyrir 2,8 milljarða halla. Þegar allt er reiknað, verður ríkis- hallinn mun meiri en þetta. Þjóðhagsstofnun gerir áfram ráð fyrir miklum hag- vexti. Góðærið heldur áfram, en kann næsta ríkisstjórn með það að fara? Haukur Helgason. Lyfjaávísanir lækna í heild ávísa íslenskir læknar minna magni lyfja en gert er í ná- grannalöndum og flestum Evrópu- löndum (sbr. meðfylgjandi súlurit neðst á síðunni). Ekki eru tekin með vítamín og steinefni í upptaln- ingunni. Islenskir læknar ávísa mest sýklalyfjum en eru i miðjum hópi eða neðstir varðandi hjarta- lyf, háþrýstingslyf, róandi lyf, geðlyf, lungnalyf og hóstalyf. Varð- andi lyf gegn magasjúkdómum eru þeir í næstefsta sæti. Annað mál er að heildsöluverð lyfja hér á landi er hærra en gerist í nágrannalönd- unum. Nú eru uppi aðgerðir til þess að draga úr kostnaði og miðað er að því með ýmsum ráðum að lyíjaneysla sé ekki umfram þarfir. Róandi lyf og geðlyf í DV hafa komið fram fullyrðing- ar um að heildarlyfjaneysla í þessum flokki hafi aukist um fjórð- ung á síðustu árum. Þetta er ekki rétt. Mikið dró úr sölu þessara lyfja,' svo og sterkra eftirritunar- skyldra lyfja, á árunum eftir 1976 vegna aðgerða heilbrigðisyfirvalda í samvinnu við lækna (sjá meðf. myndir). Nú virðist hafa orðið um 15% aukning á neyslu róandi lyfja en áframhaldandi minnkun á sterkum lyfjum. Ekki er auðvelt að skýra þessa aukningu en benda má á að eldra fólki hefur fjölgað, en lyfjaneysla er einna mest í þeim hópi, og að streita hefur aukist mikið meðal fólks, t.d. í Reykjavík (sbr. meðfylgjandi mynd). KVARTANIR UM VINNUSTREITU (30-39 ARA) 30t Vaxandi streita í vestrænum heimi hefur orðið til þess að neysla róandi lyfja og geðlyfja hefur auk- ist verulega. Fólk, er þjáist af streitusjúkdómum, leitar til lækna eftir hjálp og þeim ber að sinna þessu fólki. Vissulega eru oft tiltæk önnur ráð gegn streitueinkennum en lyf. Óskandi væri að meira væri rætt um aðgerðir til þess að draga úr streitu í þjóðfélaginu og mætti m.a. heyrast meira frá fjölmiðlum í þessu efni. Rétt er að hafa í huga að ekki er öll neysla framan- greindra lyfja af hinu illa eins og sumir virðast álíta. T.d. er talið að fyrir tilstilli þessara lyfja hafi stór- lega dregið úr vistun sjúklinga á geðsjúkrahúsum (upplýsingar frá Bandaríkjunum). Eftirlit með lyfjaávísunum Landlæknisembættið hefur eftir- lit með lyfjaávísunum lækna. I samvinnu við Sjúkrasamlag Reykjavíkur hefur verið unnið að því að efla eftirlit með lyfjaávísun- um, m.a. með því að koma upp tölvuskráningu á lyfseðlum. Fljótlega má vænta árangurs af því starfi. Að gefnu tilefni skal tek- ið fram að í upphafi var gerð forrannsókn á ávísunum á sýklalyf í fjórum apótekum á tímabilinu sept.-nóv. 1985. Athugunin náði einungis til 13% allra sýklalyfjaá- vísana á tímabilinu, þ.e. 2308 lyfseðla. I ljós kom að 8-10 læknar ávísuðu nær helmingi allra sýkla- lyfja og er það ekkert óeðlilegt með hliðsjón af fjölda heimilislækna í hópnum. Af þessari rannsókn er því vita- skuld ekkert hægt að fullyrða um heildardreifingu ávísana í Reykja- vík, eins og gert hefur verið. Komið hefur fram í fjölmiðlum að einn læknir í sýslu úti á landi ávísi jafn- miklu og 40 aðrir læknar í sýslunni. Hér var tekið mið af öllum lyfjaá- vísunum sem komu til greiðslu hjá Sjúkrasamlaginu, þ.m. frá fjölda sérfræðinga er höfðu stundað KjaUaiiim Ólafur Ólafsson landlæknir hópi lækna eru „trúmenn" og „efa- semdamenn“ eins og í öðrum þjóðfélagshópum. Vantraust eða traust Andi tortryggni virðist hvíla yfir sumum fjölmiðlum og stofnunum þessa þjóðfélags. Menn, er ráða þar ríkjum, virðast sjá svik og undan- brögð í hverju horni og sjá flest vandamál í því ljósi. Þessi viðbrögð eiga ekkert skylt við eðlilega gagn- rýni. Af því tilefni birti ég hér nokkrar niðurstöður úr könnun er land- læknisembættið fékk Félagsvís- indastofnun Háskóla íslands til að framkvæma nýlega. Könnunin náði til 1500 manns á aldrinum „Fjöldi ávísaðra lyfseðla og magn fer að mestu leyti eftir samskiptatíðni sjúklings og lækna og þess vegna eru þetta ekki óvæntar niðurstöður.“ sjúklinga úr sýslunni. Þetta er ekki réttmæt viðmiðun. Við samanburð á lyyaávísanafjölda þriggja heimil- islækna, er starfa við svipuð skil- yrði þar í sýslu, kom í ljós að einn þessara lækna tekur á móti svipuð- um fjölda sjúklinga og hinir tveir (annar í hálfu starfi) og ávísar svip- uðum fjölda ávísana og hinir báðir. Fjöldi ávísaðra lyfseðla og magn fer að mestu leyti eftir samskipta- tíðni sjúklings og lækna og þess vegna eru þetta ekki óvæntar nið- urstöður. Mismunandi lyfjaávísana- venjur lækna Vissulega ávísa læknar mismun- andi magni lylja. Orsakir þessa eru margþættar, m.a. mismunandi sér- greinar lækna, aldursdreifing, sjúkdómsmynd sjúklingahópsins er þeir stunda og fjöldi sjúklinga er þeir stunda. I ljós hefur komið að eldra fólk - en í heild neytir það mun meira magns lyfja en yngra fólk - leitar frekar til eldri lækna en þeirra yngri. Breytt fyrirkomulag þjónustu getur einnig haft áhrif á lyfjaávís- anir. Tilkoma göngudeildar við húðsjúkdómadeild Landspítalans hafði þau áhrif að ávísað magn lyfla jókst verulega en mun færri þurftu á sjúkrahúsavist að halda. Með tilkomu nýrra magalyfja fækkaði mjög innlögnum á sjúkra- hús vegna magasárs (erlendar rannsóknir). Meðal lækna eru einstaka menn sem gefa of mikið af lyfjum og fara líklega um of eftir auglýsingum lyfjafyrirtækja. Á þessum vanda er tekið málefnalega en ekki í fyrsta lagi með ásökunum um fjársvik, enda sjá læknar ekki lengur um sölu á lyfjum og hafa því ekki fjár- hagslegan ábata af sölu lyfja. Síðan má benda á þá staðreynd að læknar trúa mismikið á lyf. I 18-75 ára í landinu. Þátttaka var 74,3% (nettóþátttaka 79%). (Sjá meðfylgjandi myndir.) HAFA STARFSMENN HEILBRIGDISÞJONUSTUNNAR BROTID TRÚNAD GAGNVART ÞER? TREYSTIR ÞÚ ÞVI AD STARFSUENN HEILBRIGDISÞJONUSTUNNAR ÞEGI UM TRÚNADARMAL7 Svo virðist sem allflestir hafi góða reynslu af starfsmönnum heil- brigðisþjónustu hvað varðar trúnað. Annað mál er að mynd II endurspeglar liklega hvað menn hafa heyrt og alið hefur verið á af ýmsum. Ekki virðast sjúklingar van- treysta heilbrigðisstarfsfólki er á reynir. Ólafur Ólafsson LYFJASALA Á NORDURLÖNDUM - HELSTU LYF - DAG- SKAMMTAR IBÚA E3 R0ANDI LYF OG GEÐLYF [E HAÞRÝSTINGS- OG HJARTALYF 0 VERKJALYF H LUNGNA— OG HÖSTALYF H SÝKLA— OG SÚLFALYF ■ MAGA— OG ÞARMALYF □ SYKURSÝKIS— LYF • flNNUND: LYF A 5J0KAH0SUU EKKI UEDTAUN (VANTAH 13—2051)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.