Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987.
11
Útlönd
Neita dauða-
dæmdum um
landvistarleyfi
Singapore:
Marx í kirkjunni
Búist er við að vestur-þýsk stjórn-
völd neiti fjórtán dauðdæmdum
Chilebúum um landvistarleyfi í V-
Þýskalandi. Mennirnir Qórtán sem
allir hafa verið dæmdir til dauða, eru
nú í fangelsum í Chile en höfðu von-
ast til að geta notfært sér heimild í
lögum Chile til þess að láta breyta
dauðadómum yfir sér í útlegðardóma.
Dauðadómum er því aðeins breytt í
útlegð að eitthvert annað ríki fáist til
að taka við hinum dæmdu.
Mennirnir Ijórtán eru allir félagar í
byltingarsamtökum vinstri manna
sem berjast gegn ríkisstjóm chile-
anska hersins og Augusto Pinchet,
forseta landsins. Þeir sóttu á síðasta
ári um heimild til þess að fara í útlegð
til V-Þýskalands.
Fjórir mannanna hafa verið dæmdir
fyrir morð, morðtilraunir, bankarán
og að hafa sprengt hótel í loft upp.
Hinir tíu eru enn fyrir rétti, sakaðir
um svipaða glæpi.
Stjómvöld í V-Þýskalandi hafa ekki
gert endanlega upp hug sinn en athug-
anir embættismanna þar hafa ekki
leitt í ljós neitt það er styrkt gæti
umsóknir mannanna um landvist.
Talsmaður Amnesty Intemational í
V-Þýskalandi sagði í gær að það
myndi verða mikið áfall fyrir mann-
réttindabaráttu, ef mennimir fengju
ekki landvist. Hann bætti við að sú
niðurstaða yrði stórsigur fyrir alræðis-
öfl í Chile.
V-Þýsk stjórnvöld munu hafa leitað
upplýsinga hjá stjórnvöldum í Chile,
hjá kirkju landsins og mannréttinda-
samtökum þar, vegna máls mannanna
fjórtán.
Jón Ormur Halldórsson, DV, Lundúnum
Yfirvöld í Singapore hafa hand-
tekið 16 menn og sakað þá um
kommúnískt samsæri gegn stjórn
landsins. Tíu hinna handteknu hafa
starfað á vegum kaþólsku kirkjunn-
ar og segja stjómvöld að kirkjan sé
notuð sem skjól fyrir útbreiðslu
kommúnisma í landinu.
Þessi handtaka og ásakanir yfir-
valda em til marks um aukna
þátttöku kirkjunnar í pólitísku og
félagslegu lifi borgaranna í Singap-
ore og reyndar víðar í Asiu. Órétt-
læti og fátækt, sem blasir við. hefur
fengið kirkjuna til að endurmeta þá
afstöðu að hún skuli sem minnst
skipta sér af veraldlegum málum.
Sú afstaða hefur einmitt gert kirkj-
una leiðitama spilltum stjómvöldum
í ríkjum þriðja heimsins. Sinnaskipti
kirkjunnar vekja sem vonlegt er litla
hrifningu hjá valdhöfum og stöðugt
er kirkjan sökuð um kommúnistaá-
róður þegar hún lætur til sín taka
réttleysi og eymd fátækra.
Til skamms tíma þóttu íbúar
Singapore búa við lýðræði og mann-
réttindi sem báru svipmót þess sem
þekkist á Vesturlöndum. Upp á síð-
kastið hefur dregið úr lýðréttindum
í borgríkinu. Stjómvöld hafa að und-
anfömu þrengt málfrelsi, meðal
annars sett kvóta á sölu bandaríska
vikuritsins Time og Asian Wall Stre-
et Joumal. Bæði þessi blöð þykja
langt til hægri í stjómmálaskoðun-
um og dettur fáum í hug að þau
breiði út vinstrimennsku.
íbúar Singapore eru miklir kaupahéðnar og þykja hafa búið við nokkuð
sæmilegt lýðræði til þessa. Andstæður þar hafa þó harðnað mikið und-
anfarió og brjótast nú út i ásökunum um kommúnistasamsæri og kúgun.
Simamynd Reuter
Nýtt símanúmer hefur tekið gildi
fyrir allar deildir Iðnaðarbankans í Lækjargötu 12.
• Almenn afgreiðsla
• Erlend viðskipti
• Lánasvið
»
• Rekstrarsvið
• Markaðssvið
• Lögfræðisvið
• Verðbréf og innheimtur
• Endurskoðun
• Fjármálasvið
• Bankastjórn
• Iðnlánasjóður
o
Lækjargötu 12. Sími 6918 00.