Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1987, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚNÍ 1987.
17
dv__________________________________________Lesendur
Þungarokk og blómafræflar:
Er rokkið drepleiðinlegt?
K.B. skrifar:
„Ég kemst ekki hjá því að senda
Herði Jónssyni nokkrar línur eftir að
ég sá bréf hans í mánudagsblaði DV
þann 1. júní.
Hlustar þú yfirleitt nokkuð á útvarp
eða ertu ef til vill eitthvað slappur?
Ég skal gefa þér gott ráð - fáðu þér
blómafræfla!
Þú skrifar að þungarokk sé drepleið-
inlegt. En væri ekki ráð að snúa frá
villu þíns vegar? Það er kannski þín
skoðun að rokkið sé drepleiðinlegt og
eflaust finnst þér margt annað drep-
leiðinlegt - en ertu kannski ekki bara
drepleiður á lífinu?
Einhvers staðar í texta þínum efað-
ist þú um að hægt væri að kalla
þungarokktónlist músík. Ef þunga-
rokksveitir eins og Europe, Bon Jovi,
Meatloaf og Van Halen og fleiri spila
ekki músík að þínu mati þá veist þú
nú bara ekkert hvað músík er.
Fremst í textanum spyr ég hvort þú
hlustir nokkuð á útvarp. Nú, ef svo
er gerirðu það takmarkað því þrjár
af ofangreindum sveitum hafa átt lag
á toppnum eða í fyrsta sæti vinsælda-
lista rásar 2 og segðu svo að fáir hlusti
á þungarokk!"
Konungur rokksins er illa fjarri góðu gamni því nú deila menn stift um ágæti
þungarokksins.
Gjaldheimtan:
BÍLASALAN
HLÍÐ
Borgartúni 25,
SÍMAR 17770 og 29977
Ford Sierra 2000 árg. 1984. m/
sóllúgu. Verð 475.000.
MMC Sapporo 2000 GLS árg.
1982, ek. 62 þ. km. Gullfallegur
bill. Verð 380.000.
Ford Escort 1300 árg. ’86, ek. 17
þ. km. Verð 430.000.
MMC Pajero st. dísil árg. 1987,
ek. 13 þ. km.
Volvo 240 GL 1987, ek. 6 þ. km.
Verð 735.000.
Toyota LandCruiser st. disil árg.
1983. Verð 850.000.
Subaru st. árg. 1983, sjálfsk., með
öllu. Verð 405.000.
VW Golf árg. 1982, ek. aðeins 49
þ. km. Verð 245.000.
Mazda 626 2000 árg. 1981, fallegur
bíll m/sóllúgu og fl. Verð
260.000.
Volvo 244 GL 1979, gullfallegur
bíll. Verð 270.000.
Ford Taunus 1600 GL, ekinn að-
eins 36 þ. km. Verð 275.000.
Höfum fjársterkan kaup-
anda að Pajero st.
bensin, árg. 1985, '86
eða '87. Staðgreiðsla í
boði.
Mikil sala, vantar allar gerðir bíla
á skrá og á staðinn. Opið til kl. 22
og öll kvöld nema laugardaga til
kl. 18.00, sunnudaga frá kl. 13.00 til
kl. 18.00.
Uppboð á heimili aldraðrar konu
ELn á áttræðisaldri hringdi:
Ég vildi óska þess að þeir hjá Gjald-
heimtunni tækju meira tillit til aldr-
aðra. Mér var sent í hraðpósti bréf um
að þeir ætluðu að bjóða upp íbúðina
mína ef ég borgaði ekki þúsund króna
skuld.
Reyndar var ég búin að tala um það
við þá að ég myndi borga þeim þegar
ellilífeyririnn kæmi en hann kemur
ekki fyrr en tíunda. Mér finnst ekki
hægt að senda manneskju, sem er
komin hátt á áttræðisaldur, svona
bréf. Þetta kom mjög illa við
mig.
Það eiga auðvitað allir að borga
gjöldin sín, ég er ekki að setja út á
það. En mér fannst þetta illa að farið.
Það þykjast alltaf allir vilja gera allt
fyrir gamla fólkið. En ég kemst ekki
inn á elliheimili af því ég á íbúð og
svo er komið aftan að manni með
svona löguðu. Maður er orðinn gam-
all og sjálfsagt að senda manni
áminningarbréf en ekki hraðbréf um
uppboð. Mér finnst það lúalegt.
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BILAMARKAÐUR DV
er nú á fuUri ferð
Nú getur þú spáö í spilin og valiö þér bíl í ró og næði.
Blaðauki meö fjölda auglýsinga frá bílasölum og bílaum-
boöum ásamt bílasmáauglýsingum DV býöur þér ótrúlegt
úrval bíla.
Auglýsendur athugið!
Auglýsingar í bílakálf þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00
fimmtudaga.
Smáauglýsingar í helgarblað þurfa að berast fyrir kl. 17 föstudaga.
Síminn er 27022.
r ATHUGIÐ
SMÁAUGLÝSINGADEILD DV
verður opin í dag,
þriöjudag, 16. júní, til kl.
22.00. Miðvikudaginn 17.
jum verour bvjKAiJ.
| í dag, þriðjudaginn 16.
júní, verður tekiö á móti
auglýsingum sem birtast
eiga í fimmtudagsblaö-
inu 18. júní.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu skiptaréttar Reykjavíkur fer fram uppboð á ýmsu lausafé, sem stað-
sett er að Vagnhöfða 19, þriðjudaginn 23. júní nk. kl. 18.30. Seldar verða
eignir þb. Gunnars Þóris Arnasonar, 3336-9336, sem eru loftræstibúnaður
m.m., brennari, glussi, gálgi á krana o.fl. Greiðsla við hamarshögg.
___________________Uppboðshaldarinn i Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 150. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1986 og 2. og 10. tölu-
blaði þess 1987 á eigninni Brekkulandi 8, Mosfellshreppi, þingl. eign Auðar
K. Viðarsdóttur og Sturlu Rögnvaldssonar, fer fram eftir kröfu Arnar Höskulds-
sonar hdl. á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, föstudaginn
19. júní 1987 kl. 15.30.
_________________________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 1,6. og 14. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1987 á eign-
inni Skerjabraut 7,1. hæð, Seltjarnarnesi, þingl. eign Erlends Áma Garðarsson-
ar, fer fram eftir kröfu Baldurs Guðlaugssonar hdl. og Ásgeirs Thoroddsen
hdl. á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, föstudaginn 19.
júní 1987 kl. 14.00.
_________________________Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi