Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Page 2
40
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987.
Vikan fékk til liðs við sig þrjá herramenn
sem féllust á að fóma sinni hversdags-
legu ímynd og gerast glæsimenni í einn
dag.
Hugur og heilsa er greinaflokkur sem hefur
göngu sína í þessari viku og er Guðmundur
S. Jónasson höfundur hans. Hann hefur ferðast
víða um lönd og kynnt sér hugleiðslu, meðal
annars hefur hann dvalist á Indlandi, í íran og
Afganistan. Fyrsta greinin fjallar um heildræna
heilsufræði.
Geturþaðverið að
litlu bömin okkar séu
lúxus?spyrblaða-
maður Vikunnar eftir
ferð til Glasgow.
Vikan
Ný og hress vikulega
Breid
síðan
Þá er það bara að leggja saman
sólhlífina, skella sér i götuskóna og
hlaupa heim með blómin.
Skótau sem
hæfir
blómasala
Þessi huggulegi skófatnaður hefur
verið sérlega vinsæll í Belgíu og víð-
ar í Evrópu að undanfömu. Ástæðan
er, eins og menn gætu giskað á,
óvenju miklar rigningar og votviðri
sem margir Evrópubúar hafa mátt
svamla sig í gegnum á meðan við hér
á klakanum höfum sólað okkur í
blíðviðri.
Annars tilheyra þessi vígalegu
gúmmístígvél blómasalanum sem á
myndinni er að berjast við að leggja
saman sólhlífina sína. Þrumuveður
með tilheyrandi rigningu brast á ves-
alings blómasalann þar sem hann var
að reyna að selja blómin sín á torgi
í Brussel fyrir nokkrum dögum.
Hann varð að gera svo vel að taka
saman sitt hafurtask og flýja í skjól
í dauðans ofboði.
Lítið hefur dregið úr rigningum í
Brussel síðan. Það hefur þó enn ekki
haft áhrif á ferðamannastrauminn
en stórir hópar ferðamanna hafa ösl-
að um götur Brussel í sumar sem
endranær en hins vegar hefur úr-
koman eflaust haft slæm áhrif á
blómasöluna.
Amy á yfir höfði
sér fangelsisdóm
Heimurinn versnandi fer sögðu tækur stúdent sem tæki þátt í alls
margir þegar það fréttist að Amy, kyns mótmælaaðgerðum og ætti
dóttir Jimmys Carter, fyrrverandi jafnvel yfir höfði sér fangelsisdóm.
Bandaríkjaforseta, væri orðin rót- Eins og menn muna var Amy af-
skaplega vinsæl meðan faðir hennar
sat í forsetastóli, mun vinsælli en
faðir hennar, allavega síðustu ár for-
setatíðar hans. Amy var lítil, sæt og
dúkkuleg og hafði fágaða en jafn-
framt alþýðlega framkomu sem
heillaði þjóðina upp úr skónum.
Á hverjum degi barst henni vænn
bréfabunki frá fólki á öllum aldri sem
sagði henni frá vandamálum sínum
og jafnframt því hvað það elskaði
hana heitt og innilega.
Síðan eru liðin þónokkur ár. Amy
er orðin fullvaxta, nítján ára stúlka
og hefur afskaplega ákveðnar skoð-
anir á málunum. Hún er í Brown
háskólanum og hefur tekið þar þátt
í mótmælum gegn afskiptum banda-
rísku leyniþjónustunnar CIA af
málefnum skólans. Hún hefur tekið
þátt í setuverkföllum og öðrum að-
gerðum stúdenta gegn CIA en var
tekin þegar hún reyndi að flagga
fána mótmælendanna á þaki há-
skólabyggingarinnar.
Amy hefur tekið þátt í baráttuhópi
stúdenta gegn kynþáttaaðskilnaðar-
stefnu Suður-Afríkustjórnar og verið
einn talsmaður þess hóps.
En alvarlegustu ákærumar á
hendur Amy eru auk fánamálsins
ýmis umferðarlagabrot. Þar þykjast
ýmsir sjá ömmu hennar fyrir sér en
frú Lilian Carter bar litla virðingu
fyrir umferðarlögum og kom stund-
um syni sínum, forsetanum, í bobba
með því háttalagi sínu.
Þegar Jimmy Carter var spurður
álits á framkomu dótturinnar sagði
hann að það væri nauðsynlegt fyrir
ungt fólk að hafa áhuga á stjórn-
málum og mótmæla þeim hlutum sem
það teldi ranga.
Þegar Jimmy var spurður hvort
það væri ekki óheppilegt ef unga
fólkið bryti lög þegar það væri að
mótmæla, brosti hann tvíræðu brosi
og sagði: “Að sjálfsögðu."
í Vikuviðtalinu þessa
vikunaerHafdís
ÁmadóttiríKram-
húsinu.Húnsegir
meðal annars frá fjöl-
skrúðugri starfsemi
Kramhússins og fjör-
ugumsíldarárumá
Hjalteyri.
■w Tm^M
Vi kan
Amy Carter eins og heimurinn þekkti hana - dúkkuleg
í hvitum blúndukjól - með móður sinni, Rosalynn Carter.
Amy eins og hún er í dag, nítján ára uppreisnargjarn
stúdent í trosnuðum gallabuxum.
2.6 tbl 49 árgangur. 25. jöni.1 jCilí 1987. Verö 150 krónur