Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987. 43 Hjónin Guðni og Jónina á áttræðisafmæli hans fyrir viku. DV-mynd JAK vinnumenn með mér því mennirnir í sveitinni gengu fyrir með störf í sinni sveit. Ég var alltaf heppinn með menn,“ segir Guðni er hann rifjar þetta upp. - Þurftirðu þá að leita að mönnum áður en þú byrjaðir verkið? „Já, já, það voru bara bændur og vinnumenn af næstu bæjum. Þá var unnið með haka og skóflu og berum höndum. Síðan fengum við lánaðar kerrur á næstu bæjum til að aka mölinni úr holtunum í kring. Annars fór það eftir því fjármagni sem að okkur var rétt hversu langt við gát- um komist í hvert skipti. Okkur var aldrei sagt að fara ákveðna lengd, peningarnir réðu ferðinni. Þetta voru tíu til tólf menn í hverjum flokki." - Voru einhverjir á bílum á þessum tíma? „Nei, það voru engir bílar til i sveitunum. Það þótti blaðamatur þegar fyrsti bíllinn kom austur 1934, að mig minnir. Það hefði ekkert þýtt að eiga bíla þar sem engir vegir voru og ekkert hægt að komast.“ Þeir kölluðu hann karlinn - Þið hjónin hafið þá líklegast kynnst á þessum árum? „Já, ég hitti hana á balli og síðan hitti ég hana aftur um borð í skipi á leið til Reykjavíkur,“ segir Guðni og hlær við og Jónína bætir við: „Þetta var svona eins og þegar ungt fólk kynnist. Hann dansaði skratti vel og það voru oft böll í þá daga og við höfðum hist. Ég var ung og grönn þá og man eftir því að eftir að við vorum gift spurði einn vinnumann- anna mig að því hvort karlinn væri pabbi minn. Verkstjórar voru aldrei kallaðir annað en karlar í þá daga, sama hvað gamlir þeir voru.“ Jónina skellihlær við þessa upprifjun. - Var dansað um borð i skipinu? „Nei, almáttugur. Það hefðu þótt ósiðlegar stúlkur sem væru að dansa í skipum í þá daga,“ segir Jónína. „Við giftum okkur síðan í október 1933,“ segir hún ennfremur. Guðni hafði unnið við vegagerðina á Austfjörðum nokkur sumur en um haustið, er þau giftu sig, fluttu þau suður til Reykjavíkur þótt hann héldi áfram i vegagerðinni á sumrin. „Við leigðum fyrst á Framnesvegin- um,“ segir hann. „Síðan byggðum við fjórir verkstjórar hús að Njáls- götu 92. Það hús er beint á móti bíóinu. Þangað fluttum við inn 1937. Þá var verið að byggja upp Norður- mýrina. Þetta var um sarna leyti og Ljósafossvirkjunin var sett í gang hérna og það þótti svo mikill lúxus að hafa rafmagnseldavél.“ Þekkti ekki ráðherrann „Ég vann líka mikið í Reykjavík í steyptu vegunum. Við lögðum steyptan veg úr Reykjavík inn undir Elliðaárnar, síðan steypti ég Hafnar- fjarðarveginn frá Öskjuhlíð og upp í Kópavog. Einu sinni, er við vorum búnir að leggja mótin niður við Kópavogsbrúna, komu til okkar vegamálastjóri, Geir Zoega, og for- sætisráðherra, Hermann Jónasson. Þeir voru að láta okkur vita að ekki væru til meiri peningar til að halda áfram vinnunni og við yrðum að taka saman mótin. Þar með urðu menn- irnir atvinnulausir því þetta var allt saman uppbótavinna. Einn mann- anna í hópnum var ansi frakkur og opinn og hann gekk að forsætisráð- herranum og spurði: „Hvaðan ert þú, lagsi?“ Hermann svaraði að hann væri úr Reykjavík. „Og hvað starfar þú þar?“ spurði vinnumaðurinn. „Ja, ég er nú ráðherra," svaraði þá hinn. Þetta olli mikilli kátínu meðal mannanna en þeir voru líka mjög hissa á að maðurinn skyldi ekki hafa þekkt ráðherrann. Það var lengi hlegið að þessu. Þetta hefur senni- lega verið um 1939 því herinn kom 1940 og ég man vel eftir því. Ég komst ekki í vinnuna um morguninn því enginn fékk að fara út fyrir hádegi. Það breyttist mikið með hernum. Við höfðum haft menn á biðlistum en allt í einu var orðið erfitt að fá menn í vinnu. - Þú hefur þá ekki farið að vinna fyrir herinn: „Nei, ég var ekkert að vinna fyrir hann. Þó var hringt í mig er ég var í vinnu norður á Sléttu og ég var beðinn að koma í bæinn. Þeir vildu að ég steypti veg fyrir þá út í Hafnar- fjörð. Við Islendingar réðum engu um hvernig þetta var gert. Þeir settu möl á veginn og helltu svo tjöru- gumsi yfir. Þetta var öðruvísi en við höfðum gert enda dugði þetta ekki neitt. Við höfðum yfirleitt alltaf mal- bikað göturnar með því að hræra saman grjóti og tjöru, annars var steypan langbest. Það var steypt inn undir Elliðaárnar og einnig frá Öskjuhlíðinni niður í Kópavog. Göt- urnar í bænum voru hins vegar malbikaðar. Ég vann ekki í þeim. Mitt starf var meira fyrir utan bæinn og úti á landi, enda var ég að vinna fyrir Vegagerð ríkisins. - Unnuð þið með valtara í þá daga? „Já, við notuðum valtara við mal- bikunina. Reyndar var valtarinn í þá daga kallaður Bríet í höfuðið á kraftakonunni Bríeti Bjarnhéðins- dóttur sem þá sat í bæjarstjórn og þótti mikill dugnaðarforkur." Ætlaði að verða ríkur - Hvað varstu mörg ár í vegavinn- unni? „Ég var tólf ár hjá ríkinu og síðan var ég önnur tólf ár í útgerð hjá sjálf- um mér. Þá var ég fyrst í félagi með Jóni Franklín og gerðum við út tvo báta. Ég var nú eingöngu með bók- haldið. Seinna var ég með Örnólfi Valdimarssyni í félagi en hann hafði verið með báta vestur á íjörðum." - Af hverju hættir þú hjá vegagerð- inni? „Maður vildi verða ríkur sem fyrst,“ svaraði Guðni og Jónína bætti við að hann hefði alltaf verið að reyna að verða ríkur en hefði aldrei verið jafnfátækur og þegar hann hætti í útgerðinni. „Já,“ segir Guðni, „þegar útgerðartímabilinu lauk þurfti ég að selja húsið mitt fyrir skuldunum og þá átti ég akkúrat ekki neitt.“ - Var ekki lífið erfitt eftir að þið höfðuð misst húsið ykkar? „Einhvern veginn bjargaðist þetta alltaf og við áttum alltaf nóg ofan í okkur. Þeir voru eiginlega fljótir að koma til okkar aftur, peningarnir. Síðan fór ég í húsabrask í nokkur ár og svo fór ég aftur í verkstjórn- ina. Ég var líka verkstjóri í fjögur ár hjá Olíufélaginu en þá var Sigurð- ur Jónasson forstjóri þar.“ - Hvernig húsabrask var það? „Ég keypti hús sem átti að fara að rífa, flutti þau inn í Kleppsholt og endurbyggði þau. Ég keypti til dæm- is gömlu Báruna, sem stóð við Tjörnina og var aðaldanshúsið, og byggði úr henni fjögur hús. Við flutt- um mikið inn í Skipasund, þá var verið að úthluta lóðum þar. Einnig keypti ég Málleysingjaskólann og fór með hann inn í Kleppsholt. Svo var það veitingahús sem var bak við Herkastalann. Ég man ekki hvað það hét en efsta hæðin brann og ég skipti því í sundur og fór með annan helm- inginn inn i Kleppsholt og hinn í Kópavog. Þetta urðu ágætishús. Ég reif þau alveg í sundur og endur- byggði." - Eru það hús sem standa enn? „Já, já, þau standa ennþá og eru góð hús.“ - Varðstu ríkur af húsabraskinu? „Nei, þeir voru fljótir að fara, pen- ingarnir. Ef ég hefði farið vel með peninga þá hefði ég getað orðið rík- ur. Ég keypti ný hús jafnóðum og svo var ég ennþá að borga útgerðar- skuldirnar. Við vorum líka mikið fyrir ferðalög og höfum komið til 23 landa. Við fórum fyrst með Gullfossi þegar hann kom nýr árið 1950. Okk- ur hefur alltaf þótt mjög gaman að ferðalögum." Skemmtilegt að smíða „Ég held að mér hafi þótt húsa- braskið skemmtilegasta af þeim störfum sem ég hef unnið. Ég var náttúrlega búinn að vera mikið í smíði i vegavinnunni því maður var alltaf að byggja yfir ræsi og ár,“ seg- ir Guðni. Hann var um nokkurra ára skeið aftur í vegavinnunni. I sjö ár bjuggu þau hjón í Keflavík. Þar var Guðni formaður bridgesambandsins en hann hefur alla tíð verið mikill bridgespilari. Hann var lengi í Bridgefélagi Reykjavíkur og nú á efri árum kemur það sér vel því Guðni fer enn mikið og spilar og nú fer Jónína með honum. Þá var Guðni einn. af stofnendum Verkstjórasam- bands Islands. „Það var haldið námskeið fyrir verkstjóra sem komu víðsvegar af landinu. Ég kenndi á þessu námskeiði og það endaði með því að stofnað var samband. Ég var í ellefu ár gjaldkeri og í fjórtán ár í stjórninni. Ég fékk heiðursskjal frá þeim,“ segir Guðni, náði í skjalið og sýndi blaðamanni. „Þeir voru svo vitlausir, verkstjórarnir, hér áður fyrr,“ segir Jónína. „Þetta voru al- gjörlega réttlausir menn og ef eitt- hvað kom upp á voru þeir illa staddir. Það var ekki fyrr en um 1960 sem eitthvað fór að gerast í þessum mál- um en það var vegna slyss er varð þá og tveir verkstjórar létu lífið í." Smíðaði vinsæla svefnbekki Lengi vel smíðaði Guðni svefn- bekki sem hann síðan seldi gegnum smáauglýsingar. Þá kom margt fólk til þeirra og vildi kaupa bekki. „Fólk er meira að segja ennþá að koma og spyrja um svefnbekki,” segir Jónína. Eitt sinn stundaði Guðni hnefa- leika og glímu. Aðaláhugamálið hefur hins vegar alltaf verið bridge. „Konunni fannst ég stundum of mik- ið að heiman en í dag nenni ég engu öðru en að spila." segir Guðni. „Ég er ákaflega fegin núna að hann skuli hafa haft þetta áhugamál því annars myndi hann ekki hrevfa sig í dag." segir Jónína þá. „Við förum bæði og spilum. Það er svo ágætt að það skuli vera boðið upp á félagsstarf fyrir aldraða." Þau hjónin eiga eina dóttur. Barnabörnin eru þrjú og barna- barnabörnunum fer fjölgandi. Það er því oft glatt á hjalla í húsinu og sérstaklega um síðustu helgi er Guðni hélt upp á áttræðisafmælið. Nota myndbandið mikið „Það er eitt sem ég hef haft nokk- urs konar æði fyrir en það eru klukkur. Ég safna klukkum því ég hef svo gaman af þeim. Svo slá þær allar," sagði Guðni Bjarnason. „Ég horfi líka mikið á sjónvarp. Ég er með myndband og tek allt upp sem er seint á kvöldin, horfi síðan á það daginn eftir." Það er alltaf skemmtilegt að ri^a upp gamla daga. Við höfðum setið á þriðja tíma og rætt málin og tími var kominn til að kveðja. Þessi fullorðnu hjón á Öldugötunni eiga hrós skilið fyrir að vera jafndugleg og raun ber vitni. Og vissulega er það gott að eiga eitthvert áhugamál í ellinni þvi hvað er leiðinlegra en hanga heima og láta sér leiðast? -ELA Fiskvinnslustörf Okkur bráðvantar starfsfólk til fiskvinnslustarfa nú þegar. Fæði og húsnæði á staðnum. Uppl. í síma 97-81200. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga, fiskiðjuver, Höfn, Hornafirði Til sölu útihús á Laugarvatni Kauptilboð óskast í útihús Héraðskólans á Laugarvatni, þ.e. fjós og hlaða með áföstum viðbyggingum án sérstakra lóðarréttinda. Eignin verður til sýnis í samráði við Þóri Þor- geirsson oddvita, Laugarvatni. Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá oddvita og á skrifstofu vorri. Kauptilboð þurfa að hafa borist skrifstofu vorri fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 7.7. nk. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu- stöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar: 1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina í Ólafsvík. 2. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á Þórshöfn. 5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina í Fossvogi, Reykjavík. 6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina í Reykjahlíð, Mývatnssveit. 7. Hálf staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð- ina á ísafirði. 8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á Eyrarbakka. Staðan verður veitt frá 1. september. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytinu, Laugavegi 116, Reykjavík. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 25. júní 1987. óskast i eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis þridjudaginn 30. júni 1987 kl. 13-16 í porti bak vió skrifstofu vora aö Borgartúni 7, Reykjavik. Stk. Tegund Árg. 1 Volvo F-86 vörubifr. m/krana 1975 1 Volvo fólks- og vörubifr., 10 farþ., 1966 1 Hino KM410 vörubifreið 1980 1 Ford Club Van E 250,11 farþ., 1979 1 Mitsubishi Rosa Bus fólksflbifr. 1980 1 Ford Econoline E150 sendibifr. 1979 1 Toyota Hiace sendibifr. 1983 1 Mitsubishi L 300 sendibifr. 1980 1 Chevrol. Van sendibifr. 1977 2 Citroen C 25 sendifbifr. m/lyftu disil 1984 1 Datsun Cherry Van 1981 1 Scout pickup m/húsi 4x4 disil 1980 1 Scout 4x4 bensin 1980 1 Chevrolet pickup 4x4 1980 1 GMC pickup m/húsi 4x4 1978 1 Datsun pickup 2200 disil 1981 1 LadaSport4x4 1979 1 Subaru station1800 1982 1 Subaru station1800 1983 1 Subaru station 1600 1979 1 Mazda 929 station 1983 2 Mazda 929 station 1982 1 Mazda 929 fólksbifr. 1981 1 Volvo 244 fólksbifr. 1980 1 Volvo 244 fólksbifr. 1979 1 Suzuki Alto fólksbifr. 1984 1 Lada station 1500 1983 Tilboðin veröa opnuð sama dag kl. 16.30 að vióstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til aö hafna tilboóum sem ekki teljast viðunandi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.