Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987. 61 DV _____________________________________Popp Johnny Hates Jazz Johnny Hates Jazz er með sér- kennilegri hljómsveitanöfnum sem heyrst hafa í seinni tíð, þótt Curios- ity Killed The Cat (Forvitni varð kettinum að aldurtila) slái allt annað út í þessum efnum. Tríóið Johnny Hates Jazz er skipað þremur þrautreyndum drengjum sem eru á aldrinum frá 23 til 26 ára. Pabbinn jassari Clark Datchler er söngvari Johnny Hates Jazz og sonur jasssaxófónleik- ara sem er nokkuð þekktur blásari. Að vísu er það rétt að Clark fékk einum of stóran skammt af frjálsum jassi í æð sem barn og unglingur en hann hatar jassinn samt ekki. Nafnið kom til vegna þess að vinur hans sem er bóndi heitir Johnny og hatar jass- tónlist út af lífinu. Auk þess er nafnið skondið og hefur vakið eftirtekt. Clark byrjaði að gefa út lög sín aðeins 16 ára að aldri en þá söng Julie Roberts, síðar meðlimur jass- popp sveitarinnar Working Week, eitt laga hans inn á smáskífu. Arang- urinn var enginn. Skömmu síðar gerðist hann lagasmiður hjá plötu- fyrirtæki, var sendur til Los Angeles og samdi 100 lög á einu ári. The Drifters hljóðrituðu eitt þess- ara laga en árangurinn var enginn. Þá snéri hann aftur heim til Bret- lands, samdi fleiri lög, gaf út með eigin hljómsveit og siðan tvö lög undir eigin nafni. Árangurinn var Popp Jónatan Garðarsson sem áður, enginn. En þar kom að hann kynntist bandarísk ættaða upptökumanninum Mike Nocito sem starfað hefur m.a. bak við hljóð- borðið hjá Police og Pink Floyd. Mike var sérlegur aðstoðarmaður Phil Thornally í hljóðverinu en var jafnframt. að fikta við tónsmíðar og spilverk ýmiss konar. Hann kynntist öðrum gutta með svipaða drauma, upptökustjóranum Calvin Hayes. Þessir tveir voru að dunda sér við að setja saman tónlist í fáum en þó nokkuð góðum frístundum. Vantaði söngvara Þar kom að þessar lagasmíðar þeirra Mike og Calvin fóru að taka á sig mynd og þá vantaði söngvara. Báðir höfðu rekist á Clark Datchler sem átti stundum erindi við þá og þeir buðu honum að vera með. Clark söng eitt lag eftir þá inn á smáskífu og sem fyrr varð árangurinn enginn. En nafnið á sveitina var komið og Calvin Hayes sem hafði verið í slag- togi með Ricki Wilde bróður Kim Wilde þegar lagið Kids In America varð til, þóttist vita betur og taldi rétt að reyna aftur. Tilraunin var kölluð Shattered Dreams og kom út á smáskífu. Nú lét árangurinn ekki á sér standa. Loksins hafði þeim te- kist að skapa eitthvað sem virkaði og lagið komst ofarlega á lista. Þar með var Johnny Hates Jazz ekki lengur léttur leikur þriggja tónlistar- manna sem vanalega grúfa sig yfir verkefni annarra í hljóðverinu, held- ur alvöru hljómsveit. Ávallt viðbúnir En þeir vita sem er að frægðin er fallvölt. Jafnvel þótt þeim finnist Johnny Hates Jazz sætt að ná þessum árangri búast þeir allt eins við hinu versta í næstu atrennu. „Tónlistarmenn eiga það til að vera viðkvæmir," segir Calvin Hayes. „Þess vegna var það. þegar við Mike hófum samstarfið, að við ákváðum að þetta vrði engin venjuleg hljóm- sveit. Við ætlum ekki að taka hlutina of alvarlega heldur njóta þess sem við erum að gera". Jónatan Garðarsson Sungið um ljósvakann Roger Waters, fyrrum aðalsprauta Pink Floyd, hefur sagt skilið við fé- laga sína og fer sínar eigin leiðir á annarri sólóplötu sinni, Radio K.A. O.S. Þar lætur hann útvarpsmann- inn Billy leiða þráðinn í verki sem svipar um margt til fyrri tónsmíða hans. Ekki er langt síðan Roger Waters annaðist að mestu tóngerð við hina þekktu teiknimyndasögu When The Wind Blows, þar sem fjall- að er um afleiðingar kjarnorkustyrj- aldar. Ef til vill hefur þessi vinna orðið honum hvati að gerð plötunnar því í lok hennar er útvarpssjúkling- urinn Billy látinn nýta sér útvarps- tæknina til að líkja eftir kjarnorku- stríði, í þeirri von að koma vitinu fyrir íbúa heimsins. Það er útvarpsmaðurinn Jim Ladd frá Los Angeles sem fer með hlutverk Billys á plötunni. Það mun vera ætl- un Waters að færa verkið upp á svið og er það kvikmyndagerðarmaður- inn David Monroe sem fengið hefur það hlutverk að sviðsetja herleg- heitin. Tónlistin verður á sínum stað og sömuleiðis útvarpsmaðurinn Jim Ladd. Hann kemur jafnvel til með að taka símann í beinni tónleikaút- sendingu og ræða við þá sem ekki komast á tónleikana sjálfa (hugmynd sem íslensku útvarpsstöðvarnar ættu að hugleiða). Waters mun standa að þessu á svip- aðan hátt og þegar Pink Floyd setti Wall á svið á sínum tíma, en auk Radio K.A.O.S. verksins mega aðdá- endur hans eiga von á léttu úrvali vinsælustu Pink Floyd-laganna. Sjálfur segir Waters um tilurð verksins: „Eg sæki efniviðinn til æskuáranna er ég hlustaði hugfang- inn á Radio Luxembourg í rúminu á kvöldin. Það er einhver hugljómun tengd þessari minningu.“ En hvers vegna er hér um samstætt verk að ræða? „Ég fæst við hugmyndir og tilfinningar," segir Waters. „Og mér veitist auðveldara að koma hugsun minni frá mér í heilsteyptu tónverki með samhangandi þræði.“ Og þegar forvitnast er um hvernig honum líði í dag, eftir að hafa sagt bless við sína gömlu félaga, er svarið hreinskilið og beinskeytt: „Það er mikill munur. Og munurinn er fólginn í samlíking- unni um vængstífðu öndina annars vegar og hins vegar örninn sem svíf- ur vængjum þöndum um himinhvolf- ið.“ Og þetta líka... • Blúsmunnhörpuleikarinn Paul Butterfield, sem lést fyrir skömmu af völdum ofneyslu eitur- lyfja, hafði verið að vinna að. hljómplötu með basssaleikaranum Jaco Pastorious er hann féll frá. Þessi plata mun væntanlega koma út á árinu, en meðal þeirra sem koma við sögu er gítarleikarinn Hiram Bullock, trommarinn Ken- wood Dennard og saxófónleikarinn Michael Brecker. • Miles Davis, sá merki djass- maður, gerði ágæta plötu á síðasta ári í félagi við bassaleikarann Marcus Miller og nefndi gripinn eftir Tutu biskupi í Suður-Afríku. Nú nýtur hann aðstoðar annars bassaleikara við gerð sinnar nýj- ustu plötu, en það mun vera Bill Laswell. frægur hljóðritunagaldra- karl með meiru. • Marianne Faithful hefur haft hljótt um sig um langt skeið. Nú er hún að sögn að vinna að blús- plötu ásamt gítarleikurunum Robert Quine og Bill Frisell. pian- istanum Mac Rebennack. bassist- anum Fernando Saunders og trommaranum J.T. Lewis. Platan kemur til með að innihalda þekktar blúsperlur eingöngu. • Mick Jagger heldur ótrauður áfram að vinna að annarri sóló- plötu sinni í New York eftir nokkurra vikna vinnslu í Hollandi. Gítaristinn Jeff Beck kemur mikið við sögu en einnig má nefna bassa- leikarann Doug Wimbish og trommarann Omar Hakim. Upp- tökustjórnin deilist, á þá Dave Stewart og Keith Diamond. en Jagger er enn sem fvrr ábvrgur fyrir hljóðunum úr látunsbarkan- um. • Annar gamall poppari. Ginger Baker fyrrum trommari Cream. er ekki alveg dauður úr öllum æðum þótt hann hafi sinnt ræktunarstörf- um suður á Ítalíu um nokkurt skeið áður en hann sneri aftur á plötunni sem Public Image Ltd. sendi frá sér í fvrra. Nú er kappinn kominn aft- ur á fulla ferð með plötuna Horses and Trees því til sönnunar. Það vekur athvgli að hann hemur trommuslátt sinn meira en í gamla daga. en meðreiðarsveinar hans eru t.d. Bill Laswell, L. Shankar og Fodav Musa Susa. • Dio, með Ronnie James Dío í broddi fvlkingar, verða á Donning- ton hátíðinni með efni nýrrar breiðskífu á takteininum, Dream Evil. Þetta er fvrsta platan sem gítarleikarinn Craig Goldie leikur inn á í nafni Dio, en félagar hans eru Vinnie Appice, Jimmy Bain og Claude Schnell auk Dio sjálfs. • Neil Young, sem aðeins er tek- inn að eldast þrátt fvrir nafnið. hefur smalað saman í Crazv Hor- ses- sveit að nýju og gefur innan tiðar út plötuna Life. Platan er sögð í rokkaðri kantinum með ör- litlum þjóðlaga- og sveitabræðingi þó. • Jane Fonda, sem grætt hefur milljónir á að láta fólk tevgja sig og sveigja í akróbatík í takt við tónlist þekktra poppstjama, er ekki alveg af baki dottin. Nú ætlar hún að gefa út kassettu sem fólk getur hlustað á þegar það fer í létt- ar gönguferðir. Tónlistin er af ýmsum gerðum. góð göngutónlist í marsastíl. klassísk músík og rokk ásamt poppi. Og allt er þetta krydd- að með leiðbeiningum stjörnunnar um göngulag. Mick Jagger virðist ánægöur með hvernig vinnsla nýju sólóplötunnar gengur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.