Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987. 59 Sérstæð sakamál inn í kompuna ein og vantaði hana eitthvað þar bað hún Madeline alltaf að koma með sér inn í hana. Fundurinn í garðinum Um þremur vikum eftir þennan atburð, eða 19. ágúst, var Kay að störfum í garðinum á bak við húsið. Þar var mikið um illgresi enda hafði ekki verið hugsað um garðinn árum saman. Hún var önnum kafin og tíminn leið hratt. Allt í einu rakst skófla hennar í eitthvað hart. Ef til vill var það steinn. Kay hélt áfram að grafa og eftir skamma stund kom hún niður á lærlegg úr manni. Rétt á eftir sá hún hauskúpu. Hún stóð á öndinni í stutta stund en svo fór hún að æpa. Madeline Somérs kom hlaupandi. Kay Newton stóð stjörf með skófluna í hendinni. Við fætur hennar lá hauskúpan. í þetta sinn kom það í hlut Madel- ine Somers að hringja á lögregluna. Brátt kom læknir á vettvang. Rann- sókn leiddi svo í ljós að beinin hefðu legið í jörðu í 9-10 ár. Kay Newton gat engar skýringar gefið og lögregl- an lét hana í friði. Frekari rannsókn var nú ákveðin. Nokkrum dögum síðar kom John Foster rannsóknarlögreglumaður til Cornfiled Cottages. Hann sýndi nú talsverðan áhuga á draumi ■ Kay Newton í fyrra mánuði og bað hana að segja sér nákvæmlega hvað hún hefði séð í honum. Er hún hafði gert það lét John Foster í ljós skoðun sína á málinu. Systir haldin grunsemdum Eitthvað hafði gerst í Cornfield Cottages í september 1973. Þá var Foster kominn til starfa hjá lögregl- unni. Kona að nafni Hilda Marlow hafði þá haft samband við lögregluna og beðið hana um að fmna systur sína, Ednu Weaver. Hún átti að búa með manni sínum, Thomasi, í Cornfi- eld Cottages. Hilda Marlow hafði skrifað systur sinni mörg bréf en aldrei fengið neitt svar. Hún hafði því farið að hafa áhyggjur og þær höfðu orðið enn meiri er hún hafði farið til Cornfield Cottages og hitt Thomas þar. Hann hafði þá sagt henni að Edna hefði farið frá sér mörgum mánuðum áður og vissi ekki hvar hún væri. Hilda Marlow hafði ekki trúað frá- sögn hans. Hún óttaðist að eitthvað hefði komið fyrir systur sína og bað lögregluna um að rannsaka málið. Thomas Weaver var yfirheyrður en lýsti því þá aftur yfir að kona hans hefði yfirgefið hann. Húsið var rann- sakað en þar var þá ekkert að finna af persónulegum munum hennar. Það leit því út fyrir að Thomas væri að segja satt. Beinafundurinn í garðinum á bak við Cornfield Cottages varpaði hins vegar nýju ljósi á þetta gamla mál. Beinin reyndust vera af konu á aldr- inum 35-40 ára og höfðu legið í jörðu i lengri tíma en upphaflega hafði verið talið eða um 12 ár. Það kom heim og saman við þann tíma er Edna Weaver hvarf. Þetta var ástæða þess að Foster fékk áhuga á draumi Kay Newton. Ekki hafði það heldur dregið úr áhuga hans að hnífsblað hafði fund- ist i garðinum skammt frá beinunum. Gat það verið að Kay Newton hefði „orðið vitni“ að morði sem framið hafði verið tólf árum áður? Svo mátti helst telja. Þar sem nú var ruslakompan hafði áður verið svefnherbergi Weaverhjónanna. Friður í húsinu? Kay Newton er sjálf sannfærð um að hún hafi orðið vitni að morðinu sem framið var svo mörgum árum áður. Hún hafi séð vofur Ednu og Thomasar Weaver hversu einkenni- legt sem það kunni að teljast. Það leikur enginn vafi á því að beinin sem fundust í garðinum á bak við húsið voru af Ednu Weaver. Nákvæmar rannsóknir hafa leitt það í ljós. Það hefur hins vegar ekki te- kist, þrátt fyrir mikla eftirgrennslan, að hafa uppi á Thomasi Weaver. Hann seldi húsið árið 1974, ári eftir hvarf konu sinnar. Þá fluttist hann til Ástralíu en þar í landi hefur ekki tekist að finna hann þrátt fyrir að lögreglan þar hafi reynt það. Eru uppi um það getgátur að hann hafi flust þaðan til Bandaríkjanna. Lík- legast þykir þó að hann sé látinn því aðrar skýringar á sýn Kay Newton þykja vart koma til greina. Hildu Marlow var tilkynnt um beinafundinn. Hún lét þá í ljós óánægju sína með að lögreglan skyldi ekki hafa haft sig meira í frammi er hún leitaði til hennar eftir að hafa árangurslaust skrifað systur sinni. Lögreglan bendir hins vegar á að hún verði að halda viðteknar regl- ur í meðferð slíkra mála því annars geti svo farið að hún þyki beita of hörðum aðferðum sem geti valdið saklausu fólki óþarfa erfiðleikum í einkalífi sínu og jafnvel valdið því að það falli á það grunur um illvirki sem það hafði aldrei framið. Hilda lét flytja bein systur sinnar í §ölskyldugrafreit. Eftir að þau höfðu verið jarðsett. þar létti Kay Newton mjög og vonast hún nú til þess að friður komist aftur á í húsinu og hún þurfi ekki framar að óttast að fara ein inn í ruslakompuna. Thomas og Edna Weaver voru gefin saman 1961. 12 árum siðar endaði hjónabandið á hörmulegan hátt. Hafnarhreppur KENNARAR Viö Heppuskóla, Höfn, vantar enskukennara í 7. til 9. bekk. Einnig vantar kennara í almenna kennslu. Góð vinnuaðstaða. Gott húsnæði. Flutningsstyrkur o.fl. Upplýsingar veitir skólastjóri í sima 97-81321. Skólastjóri. Hár- snyrting fyrir alla fjölskyld- una. HÁRSNYRTISTOFA LAUGAVEGI27 • S. 26850 ESS Leiga á hótelaðstöðu gSí heimavist Fjölbrautarskólans ^ á Sauðárkróki Óskað er tilboða í rekstur sumarhótels í Heimavist Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki sumrin 1988-1990. Um er að ræða leigu á gisti- og veitingaaðstöðu. Gistiherbergjafjöldi í dag er 24 herbergi og á tímabil- inu má vænta fjölgunar gistiherbergja í allt að 38. Þeir sem áhuga hafa snúi sér til undirritaðs sem gefur allar nánari upplýsingar. Tilboðsfrestur er til 1 5. júlí nk. og skal tilboðum skilað á bæjarskrifstofuna á Sauðárkróki, merktum „TILBOÐ í LEIGU Á HEIMAVIST F. á S." Sauðárkróki 22. júní 1987 Bæjarstjóri Tjaldasýning um helgina Tjöldum öllu því sem til er. Aldrei meira úrval. 6%Ug era EYJASLOÐ 7 - SÍMI 621780

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.