Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987. 41 Úti í sveit Við misstum af sautjánda júní hátíðahöldunum að þessu sinni því að þegar þjóðhátíðardagurinn rann upp bjartur og fagur aldrei þessu vant vorum við austur í sveitum þar sem gosdrykkjaflaska kostar sjötíu krónur innihaldið og sumar- bústaðirnir ganga fyrir rafmagni og rennandi vatni og vegna þess hvað sólin skein glatt á okkur fór- um við í göngutúr umhverfis bústaðinn og sungum Island ögrum skorið hver með sínu nefi og að því loknu borðuðum við hamborgara af því að pylsurnar höfðu verið borðaðar daginn áður af misgán- ingi. Hátíðahöldin fóru sem sagt fram með hefðbundnu sniði, líka austur í sveitum þótt þar vantaði bæði lúðrasveit og blöðrur sem fara til guðs fyrir dauðann ef menn láta hjá líða að binda þær nógu fast við fingurinn á sér. Þessar blöðrur eru nefnilega fylltar með einhverju sem er léttara en andrúmsloftið og eru þess vegna alltaf að reyna að kom- ast hærra en tjóðrið leyfir og eru að þessu leytinu líkar sumum stjórnmálamönnunum okkar sem láta kjósa sig þegar þeim sýnist og ætla sér síðan að stjórna okkur þegar þeim sýnist og hafði forsætis- ráðherra af þessu nokkrar áhyggj- ur í ávarpi sínu til þjóðarinnar sautjánda júní og fannst stjórn- málamennirnir vera að bregðast þjóðinni og það í þessu blíðskapar- veðri. Og þótt það sé kannski ljótt að segja það efast ég um að nokkur lifandi maður hafi verið að hugsa um stjórnarmyndun á þeirri stundu sem ráðherrann hélt sína ágætu tölu og raunar lengur og breytir það ekkert þessari skoðun minni þótt ég hafi frétt að foringjar hafi Háaloft Benédikt Axelsson verið að reyna að mynda stjórn þennan dag þegar menn eiga að vera að borða pylsur og veifa ís- lenska fánanum og segjast ekki vita hvers vegna sautjándi júní er haldinn hátíðlegur. Fjölmiðlabylting í sveitum landsins Þarna fyrir austan vantaði sem sagt ýmislegt til að gera stemmn- inguna þjóðlegri og notalegri, eitt af því var fjölmiðlabyltingin 'sem er farin að teygja langa arma sína suður á land og hrósar sér af því að nú sé klukkan fimm mínútur gengin í þrjú, þegar hana vantar í rauninni sautján mínútur í fimm, og því hægt að fara að gera þá brjálaða sem hafa vit á því að stilla á sendinn í Vestmannaeyjum. Þar að auki voru öll dagblöð annaðhvort rétt ókomin eða löngu uppseld þegar ég ætlaði að kaupa þau til að kynna mér dagskrár sjónvarpanna og útvarpanna svo ég gæti valið og hafnað og vil ég hér með koma því á framfæri hvort ekki sé hægt að fá einhverja konu, með eða án titrings, til að halda námskeið í því hvernig sjónvörpin og útvörpin geta veitt okkur sem besta fullnægingu á sem skemmst- um tíma. Einhverra hluta vegna völdum við að horfa á dagskrá sjónvarpsins að kvöldi þjóðhátíðardagsins og vegna þess að ég og táningurinn höfðum fengið okkur þriggja og hálfs tima göngutúr fyrr um dag- inn, táningurinn gekk í þrjár klukkustundir og ég í hálftíma, lagðist ég dauðþreyttur upp í sófa og beið spenntur eftir að þulurinn kynnti hátíðardagskrána. Satt að segja varð ég fyrir dálitl- um vonbrigðum þegar aðaluppi- staðan í dagskránni reyndist vera endurtekið efni og týnd kvikmynd, allt svarthvítt, og svissuðum við því yfir á Vestmannaeyjar en slökktum á þeim líka þegar þulur- inn hafði sagt okkur hvað hann héti, hvað hann ætlaði að vera lengi með okkur, hvað klukkan væri og að í tilefni dagsins ætlaði hann aðeins að leika íslensk lög og setti síðan All of me á fóninn. Þetta bardús okkar endaði siðan með því að við spiluðum Trivial Pursuit og sem betur fer fékk eng- inn spurninguna um það hver Jón Sigurðsson hefði verið enda ekki ástæða til að fólk muni það al- mennt. Ég lenti til dæmis í dálitlum vanda um daginn, þótt ég sé ekkert sérstaklega illa að mér í fræðunum. þegar sá sjö ára spurði mig fyrir framan Stjórnarráðið hvað kallinn héti, þessi með franskbrauðið í hendinni. Kveðja Ben.Ax. N(J ÞARF EHGÍtJ* A© HHF* ÍMÍ'dGGJUR AF RiVi'sSjÓ-O* LctfGdR 7ÓMUR. ______________________________________49 Finnurðu átta breytingar? Þessar tvær myndir sýnast í fljótu bragði eins. En á neðri myndinni hafa fallið burt hlutar af myndinni eða þeir breyst, alls á átta stöðum. Það er misjafnlega erfitt að finna þessar breytingar en ef fjölskyldan sameinast um að leysa þetta, trú- um við því að allt komi það að lokum. Merkið með hring eða krossi þar sem breytingarnar eru og sendið okkur neðri myndina. Skilafrestm- er tíu dagar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veitum þrenn verðlaun, öll frá versluninni Steríó, Laugavegi 63. Þau eru: Supertech ferðatæki (verðmæti 3.450,-), LED útvarpsvekj- ari (verðmæti 2.150,-) og Supertech útvarpstæki (verðmæti 1.310,-). I öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu en ný þraut kemur í næsta helgarblaði. Góða skemmtun! Merkið umslagið: Átta breytingar 49, c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík. Verðlaunahafar reyndust vera Brynja Guðmundsdóttir, Blönduhlíð 11, 105 Reykjavík (ferðatæki), Anna Sigurjóns- dóttir, Suðurgötu 41, 220 Hafnarfirði (útvarpsvekjari), og Stefanía Ámadóttir, Hátúni 7, 735 Eskifirði (útvarpstæki). Vinningamir verða sendir heim. ZJF : & í : — ?! 'K ■ N 'i ' s . H ■ t „ y ; V! .... |-y :— ./aT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.