Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Page 7
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987.
45
Þór Nielsen með bleikjur úr Hiiðarvatni í háfi en þar finnst honum mjög
skemmtilegt að veiða og fer aldrei fisklaus úr vatninu.
í Bláhvammi
- silungurinn eldaður við hveragufu
„Við bjóðum þeim sem vilja veiðileyfi í Langavatni sem er í um 6
km fjarlægð frá Bláhvammi og er dagurinn á 500 kr. og hálfur dagur-
inn á 300 kr.sagði Steinunn Bragadóttir í Bláhvammi í Reykjahverfi
í Suður-Þingeyjarsýslu. „Þaö hefur verið þokkaleg veiði í Langavatni
og svo geta veiðimenn eldað silunginn sinn við hveragufu. Veiðimenn
geta gist hjá okkur og fengið nesti og mat með sér í veiðitúrinn,“
sagði Steinunn í lokin. G. Bender
Veiðivon
Veiðivon
Gunnar Bender
Þór Níelsen fyrir nokkrum dögum við Hliðarvatn i Selvogi með sonum sínum, Birgi og Grétari, með feiknaveiði.
Fengum 87 bleikjur
í Hlíðarvatni
- segir Þór Níelsen, vatnaveiðimaðurinn snjalli
sem kenndi honum fyrstu hand-
tökin í fluguveiðinni.
„Ég hef ekki farið oft í sumar en
verið mjög heppinn, Hlíðarvatn í
Selvogi er ég búinn að heimsækja
þrisvar sinnum og í síðustu ferð-
inni, nú fyrir nokkrum dögum,
veiddum við 87 fiska og þó hættum
við um fimmleytið. Á laugardaginn
fyrir viku fór ég í Elliðavatnið með
Birgi Ævarssyni og við fengum 58
silunga, ég fékk 40 og Birgir 18.
Helmingur af þessum fiski var góð-
ur,“ sagði Þór Níelsen, vatnaveiði-
maðurinn snjalli, er við spurðum
frétta af veiðinni hjá honum það
sem af er sumri. „Hlíðarvatnið er
skemmtilegt og fékk ég 16 bleikjur
í einum túrnum, svo minna í hin-
um.“
Þú hefur nú aldrei farið fisklaus
úr Hlíðarvatni?
„Nei, nei, maður fær alltaf eitt-
hvað af fiski. Silungsveiðin er mitt
sport og það er frjálsræðið sem
fylgir henni sem ég sækist eftir. Fór
töluvert í lax hér áður fyrr en mað-
ur hefur minnkað það til muna hin
síðari ár.“
Er ekki miklu erfiðara að veiða
silunginn en laxinn?
„Það er erfitt að veiða í Elliða-
vatni sem dæmi, menn fá kannski
fáa fiska en svo eru menn heppnir
„Ég var búinn að kynnast Þór
Níelsen um þetta leyti og hann ýtti
undir mig að fara að prófa flugu-
veiðina. Ég fór með honum mína
íyrstu túra í Þingvallavatn og þetta
fyrsta sumar átti ég allt undir hon-
um, kunnáttu og lærdóm. Það
hefur verið mér ómetanlegt að hafa
byrjað að veiða á flugu með honum.
Maðurinn er snjall, sérstaklega
góður vatnaveiðimaður, góður
kastari og hefur mikla tilfinningu
fyrir góðum græjum og hvað passar
og annað slíkt. Auk þess er hann
írábær fluguhnýtari og hefur hnýtt
margar af bestu silungaflugum sem
notaðar eru á landinu í dag.“
Þetta eru orð Pálma Gunnars-
sonar söngvara um Þór Níelsen,
og fá 15-20 fiska sem þykir mjög
gott þar. Þessi veiði, 40 fiskar, held
ég að sé það mesta í sumar, enda
hefur Birgir, sem fór með mér, lent
í 3-4 fiskum en aldrei svona veiði.
Við vorum með peter ross og jock
túbu.“
Nú hefur þú hnýtt margar fiugur
og gjöfular flugur, hver er best?
„Ætli það sé ekki watson’s
francy, hún gaf mér vel í Hlíðar-
vatni þegar við fengum góðu
veiðina um daginn, þessar 87
bleikjur. Á eftir að fara nokkrar
ferðir í Hlíðarvatn, þar er gaman
að renna ef veðrið er gott, pottþétt
veiði þá.“
G.Bender
Kennarar
Kennara vantar við Grenivíkurskóla, meðal kennslu-
greina íþróttir og líffræði. Frítt húsnæði í góðri íbúð.
Uppl. gefur Björn Ingólfsson skólastjóri í síma
96-33131 eða 96-33118.
fHúsavík
Kennara
vantar að framhaldsskólanum á Húsavík og efstu
bekkjum grunnskólans. Kennslugreinar: Danska og
viðskiptagreinar. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri
í síma 96-41166 og 96-41344.
SNYRTIFRÆÐINGARI!
Tilvalið tækifæri fyrir duglega manneskju sem vill
vinna sjálfstætt, með sinn eigin atvinnurekstur.
Til leigu góð snyrtistofa á góðum stað. Góður að-
búnaður. Leigist með eða án tækja. Vinsamlegast
hafið samband við auglýsingaþjónustu DV í síma
27022 fyrir 29/6.
H-123
BILEIGENDUR
BODDÍHLUTIR!
Ódýr trefjaplastbretti, brettakantar o.fl. á
flestar gerðir bíla, ásetning fæst á staðn-
um,
svo sem á Bronco, Galant, Lancer, Daihatsu, Subaru, Willys, Volvo,
Polonez, Concord, Escort, Range Rover, Isuzu Trooper, Mazda,
Toyota, Scania, Dodge og m.fl. Einnig brettakantar og skyggni á
Blazer, Dodge Van, Patrol, Broncc, Lada Sport, Rocky, Pajero,
Hi-Lux, Ch. Van og margt fleira.
BÍLPLAST XHtDITSORT *^S*Tökum að okkur trefjaplastvinnu.
Æ
Vagnhöfða 19, simi 688233. Vsljiö islenskt.
Póstsendum. Opið laugard. frá 9-12
Tilboð óskast í neðanskráðar bifreiðar sem hafa
skemmst í umferðaróhöppum.
M. Pajero4WD turbo disil 1986
M. Pajero4WDturbodisil 1985
GolfCL 1986
Mazda 626 GLX 1987
Daihatsu Cuore4WD 1987
Citroen BX14E 1987
Honda Accord EX 1982
Subaru St. 1600 DL 1982
Ford EscortXR3 1982
ColtGLX 1981
Ford Fiesta XR2 1982
FiatRitmo 1982
Daihatsu Charade 1980
Audi 100 G L disil 1979
Fiat 127 1980
Opel Rekord 1700 1976
AustinMini 1976
Citroen GSA Club 1980
Volvo Amazon 1968
Volvo 343 1982
Bifreiðarnar verða til sýnis mánudaginn 29. júní í
Skipholti 35 (kjallara) frá kl. 10-15. Tilboðum óskast
skilað fyrir kl. 16.00 sama dag til bifreiðadeildar Trygg-
ingar h/f, Laugavegi 178, Reykjavík, sími 621110.
Laugavegi 178, sími 621110.