Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Síða 14
60
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987.
Kvikmyndir
Elvis Presley lék í mörgum mislukkuðum kvikmyndum. Hér
er hann í Jailhouse Rock sem verður að teljast ein skásta
kvikmynd hans.
David Bowie hefur átt misjöfnu gengi að fagna í kvikmynd-
um. Merry Christmas Mr. Lawrence er önnur tveggja mynda
sem hann getur verið hreykinn af.
Tina Turner hefur aðeins leikið í tveimur kvikmyndum. Hér
er hún í Mad Max III, Beyond Thunderdome,
• n
/
flvers vegna m roMjornur 1 Mmynaum
Það er viðurkennt að rokkstjömur geta haft í tekjur á
mánuði það sem tekur kvikmyndastjörnu eitt ár að vinna
sér inn, þótt yfirleitt hafi stjörnur kvikmyndanna enga
smápeninga í árslaun. Hvers vegna skyldi þá vera svo
auðvelt að £á rokkstjömur til að leika í kvikmyndum?
Þegar rokkstjörnur eru spurðar hvers vegna þœr leiki í
kvikmyndum er venjulegasta svarið að þær hafi þörf fyrir
að reyna eitthvað nýtt. Sjálfsagt er það að mörgu leyti
rétt. En hvers vegna hætta þær ekki kvikmyndaleik eftir
slæma frammistöðu því staðreyndin er að sárafáar popp-
stjömur hafa haft erindi sera erfiðí.
Frægasta dæmið er Elvis Presley. Þrátt fyrir hver mi-
stökin á fætur öðrum, lélegar og gamaldags söngvamyndir
sem að vísu voru ágætlega sóttar af táningastúlkum var
dómgreindin ekki meiri en svo að sömu mistökin voru
endurtekin hvað eftir annað. Að vísu ber að nefna tvær
undantekningar, Jailhouse Rock og King Creole, svart-
hvítar myndir er báðar voru gerðar á sjötta áratugnum.
í þessum tveimur myndum kemst Elvis Presley næst því
að geta talist sæmilegur leikari. Engin rokkstjama hefur
leikið í jafnmörgum lélegum kvikmyndum. Og ekki var
það vegna þess að hann þyrfti á aurum að halda.
Skynsamari voru The Beatles. Þeir léku í tveimur mynd-
um, Hard Day’s Night og Help. Söguþráður var fyrir
hendi, en þeir léku bara sjálfa sig og gerðu það vel eins
og alltaf. Tvær kvikmyndir gerðu The Beatles til við-
bótar, teiknimyndina Yeliow Submarine og Let It Be, sem
var nær eingöngu lýsing á daglegu lífi þeirra í stúdíói.
Ekki hefur Mick Jagger sótt gull í greipar kvikmynd-
anna. Hans skásta kvikmynd var jafiiframt hans fyrsta,
Performance sem einnig var fyrsta kvikmynd er Nicholas
Roeg ieikstýrði. Hver man í dag eftir kvikmyndinn um
ástralska útlagann Ned Kelly, en Mick Jagger lék titil-
hlutverkið í þeirri mynd. Og fyrir stuttu lauk hann við
leik í Running Out Of Luck og fór sú kvikmynd beint á
videómarkaðinn. Þótti ekki svara tilkostnaði að dreifa
henni í kvikmyndahús.
Sú rokkstjama, sem hefur verið hvað duglegust við að
leika í kvikmyndum á undanförnum árurn, er David
Bowie. Og ekki er að neita þvi að kvikmyndir eins og The
Man Who Fell To Earth er Nicholas Roeg stjórnaði og
Merry Christmas Mr. Lawrence gefa til kynna að David
Bowie er búinn hæfileikum til að leika í kvikmyndum. Og
í raun er hann einníg ágætur í The Hunger þar sem hann
leikur blóðsugu. Sú mynd er í heild afleit. En slæmur er
hann í Just A Gigalo, þar sem hann meira að segja sjálfur
gerði samlíkingu með sér og Elvis Presiey eftir að hafa
séð þá mynd. David Bowie er í dag ein skærasta og vinsæl-
asta stjaman í rokkinu, samt hefur verið tap á öllura hans
kvikmyndum, sem sýnir að frægustu nöfnin í poppinu
bjarga ekki fjárhagslegu hruni í kvikmyndaiðnaðinura.
Tina Tumer hefur enga áhættu tekið. Eftir hana liggja
tvö hlutverk í kvikmyndum. I kvikmyndagerð Ken Russ-
ell, Tommy, var hún á heimavelli, lítið hlutverk eitur-
drottningarinnar hæföi henni vel. Og ekki þurfti hún
heldur að skammast sín fyrir hlutverk sitt í Mad Max III,
Beyond Thunderdorae. Skrautlegur klæðnaður ásamt til-
komumiklum senum gerði það að verkum að það var nóg
fyrir hana að aýna sig. Eftir að hafa séð sig í myndinni
sagði Tina Tumer, „Eg er engin sérstök leikkona, en ég
er nógu góð fyrir þetta hlutverk.“ Tvö hlutverk á tíu árum
sýna það að hún rasar ekki um ráð fram, vandar val sitt
þó nóg sé í boði.
Einn sem ætti að hugsa sig aðeins betur um er Sting.
Hann hefur leikið í nokkrum myndum með litlum ár-
angri. Og að einhverjum skyldi detta í hug að láta hann
leika Frankenstein barón, er hreint ótrúlegt. Það gerir
hann einmitt í The Bride, mynd sem enginn hefur fengið
neinn botn í ennþá. Eina kvikmyndin, sem Sting getur
verið ánægður með að hafa leikið í, er Plenty. í litlu hlut-
verki sýndi hann ágætan leik á móti Meryl Streep. Af
öðrum myndum, er Sting hefur leikið í, má nefha Dune
sem em einhver dýmstu mistökin í Hollywood, Brimstone
And Treacle sem rataði beint á videómarkaðinn og Qu-
atrophenia sem átti að margra dómi betra skilið en raun
varð á.
Prince er einn sem nýverið hefur haldið innreið sína í
kvikmyndir. Eftir ágæta framistöðu í Purple Rain hóf
hann gerð Under The Cherry Moon. Það er greinilegt að
vinsældir Purple Rain hafa farið illa með sellurnar í mann-
greyínu, því hann ákvað að leika aðalhlutverkið, semja
tónlistina og leikstýra myndinni. Árangurinn er ein versta
kvikmynd seinni ára að flestra dómi. Og má segja að eng-
in rokkstjarna hafi valdið aðdáendum sínum jafhmiklum
vonbrigðura og Prince þegar Under The Chery Moon kom
á markaðinn.
Madonna, sem hefur margoft viðurkennt að Marilyn
Monroe sáluga sé hennar fyrirmynd, hefur leikið í tveimur
myndum. Hún lék í Desperately Seeking Susan í byrjun
ferils síns og sýndi þar mjög góðan leik í kvikmynd sem
flestir hrifust af. Fall hennar var þvi mikið þegar Shang-
hai Surprise kom á markaðinn. 1 þessari kvikmynd, sem
flestir er að stóðu vilja gleyma sem fyrst, lék hún trúboða
i leit að eiturlyfjum, til lækninga að sjálfeögðu og skiljan-
lega var það nú svo að Madonna átti hágt mneð að gera
sig trúverðuga í hlutverki trúboða.
Þegar litið er á kvikmyndir sem poppstjömur hafa leik-
ið í kemur í ljós að þeim tekst alltaf best upp þegar þær
leika poppstjömur og langbest þegar þær leika sjálfar sig.
Þetta er sannleikur sem margar stjömur hafa gert sér
grein fyrir en aðrir ekki. Langt er síðan Bob Dylan, Ringo
Starr eða Cliff Richard sáu að kvikmyndimar voru ekki
þeirra vettvangur. Færi betur að fleiri sæju að sér.
Hér hefur verið stiklað á stóru um frammistöðu rokk-
stjama i kvikmyndum. Að sjálfeögðu hafa fleiri reynt fyrir
sér og lítið orðið ágengt. Má nefna Gene Simmons í Kiss,
Ozzy Osbourne og nýverið Tom Waits. Og ekki má gleyma
Grace Jones sem virðist að mestu hætt öllum söng, kvik-
myndaaðdáendum til mikillar mæðu.
The Beatles voru skynsamari en flestar aðrar rokkstjörnur.
Þeir léku aðeins sjálfa sig. Hér eru þeir í einu atriði í Help.
Sting i The Bride, mynd sem hann vill örugglega gleyma
sem fyrst.
Madonna þótti ekki sannfærandi trúboði i Shanghai Sur-
prise.