Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1987, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1987, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987. LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987. Kringlan heimsótt átta dögum fyrir opnun: Heilt verslunarhverfí. undir þaki Sisley heitir ein verslunin og er þaö systurfyrirtæki Benetton sem islendingar þekkja. Þar eru allir gluggar byrgðir og enginn fær að sjá strax hvað pappírinn hefur að fela. Og við fengum að líta inn í nokkrar verslanir. Hér mun Kosta Boda koma sér smekklega fyrir. Hagkaup verður með stærstu matvöruverslun landsins í Kringlunni og ekki var seinna vænna að fara að fylla í allar auðu hillurnar. Pizzastaður verður hér með afgreiðslu sina en einn- ig er að finna hamborgarastað og kjúklingastað. Allir þessir staðir hafa sömu borðaðstöðu þannig að fjölskyldan getur valið sér rétti frá mismunandi fyrirtækjum. Nýtt verslunarhverfi lítur dagsins ljós á fimmtudag. Það er Kringlan, hús sem hefur að geyma 70 fyrirtæki. Vissulega verður það spennandi fyrir marga að geta allt í einu sprang- að um í heilu verslanahverfi sem í sjálfu sér er heill heimur út af fyrir sig og það undir þaki. Kringlan á eftir að koma mörgum á óvart. Hitt er einnig víst að hún á eftir að vekja mikið umtal. Svo stórt verslanahverfi undir þaki í litlu þjóð- félagi hlýtur að valda einhverjum usla í þjóðfélaginu. Það verður þó ekki dæmt um það hér. 20 þúsund gestir Nú í vikunni tóku DV-menn sér á hendur leiðangur um þetta nýja hús. Allt var þar í fullum gangi og sýnilega voru allir að gera sitt besta til að öllu yrði lokið á opnunardag- inn. Sumir voru tilbúnir að opna strax - aðeins beðið eftir deginum. Ragnar Atli Guðmundsson er 32 ára framkvæmdastjóri fyr- ir húsið. Hann fór með okkur í leiðangurinn og lýsti því sem fyrir augu bar. Við byrjuðum á þriðju hæð hússins þar sem ennþá er óráðstafað pláss upp á 2.700 fermetra. Þar gæti hugsanlega orðið stærsta diskótek borgarinnar eða lækna- stofur. Það á eftir að koma í ljós. Á húsinu eru fimm inngangar og þeir snúa í átt að Húsi verslunarinnar. Fyrir utan eru 1200 bílastæði og þau verða orðin 1600 á næsta ári. Það má segja að ekki veiti af því forráðamenn hússins búast við allt að tuttugu þúsund gestum fyrsta daginn og jafnvel miklu fleirum. Þess má geta að dag- inn sem Ikea opnaði í húsinu á móti komu þangað um fjórtán þúsund gestir. Stærsta matvöruverslun landsins Hagkaup er á tveimur hæðum og er ekki hægt að ganga á milli verslana nema ganga eftir götunni og fara upp rúllustig- ana. „Með því móti vísum við fólki frá okkur og til hinna og þannig reyna allir að taka tillit hver til annars hér,“ sagði Ragnar Atli. Á neðri hæðinni er matvöruverslunin, sú stærsta á íslandi. Þar verða matvælin bæði pökkuð í kæliborðum og einnig seld úr kjötafgreiðslum. „Það er fyrir sælkerana," sagði Ragnar Atli. „Hér gefa þeir valið steikurnar sjálfir." Einnig er sérstakt fiskborð, salatborð og sérstakt „delicatess- en“ eins og er í flestum stórverslunum erlendis. Þar er boðið upp á tilbúna rétti, bæði kjöt, fisk, osta og salöt. Þrjátíu af- greiðslukassar verða í þessari verslun en þess má geta að i Hagkaupi í Skeifunni, þar sem allar deildir eru saman komn- ar, eru tuttugu og tveir kassar. Á efri hæðinni er Hagkaup með „magasín" verslun. Þar er gengið eftir svokallaðri göngubraut og gengur fólk þá fram hjá sérdeildunum. Leikfangadeild, ritfangadeild, kvenfatnað- ur o.s.frv. Greitt verður við kassa í hverri deild. í leikfanga- deildinni er sérstakur videokrókur fyrir börnin. Hagkaup verður áfram með sömu vörumerki og verið hafa í Skeifunni svo sem C & A. Einnig verður þar að finna ný merki. Að sögn Ragnars Atla verður vöruverðið áfram það sama. Margar nýjar verslanir í Kringlunni eru margar nýjar verslanir sem ekki hafa starf- að annars staðar. Er í mörgum þeirra boðið upp á merki sem ekki hafa fengist hér á landi fyrr. Má þar nefna Sisley, sem er systurfyrirtæki Benetton, Hennes og Mauritz og Polarn og Pyret. Þá má nefna verslanir eins og Heimsljós, Cosmo, Barnastjörnur og Genus. Nói og Síríus verða með sérstaka konfektbúð og Ali-búðin er sérverslun með Ali-vörur, svína- kjöt og álegg. í Kringlunni er ekkert sparað í umhverfinu. Göturnar, sem eru á neðri og efri hæð, eru lagðar fallegum ítölskum marm- araflísum sem nefnast terrazzo. Ekta ítalskur marmari er einnig á þeim veggjum sem ekki fara undir verslunarglugga. „Hér er byggt fyrir framtíðina. Þetta á að standa um ókomna tíð og þá verður að vanda til verka," útskýrir Ragnar Atli. Nokkrir ítalir komu hingað gagngert til að leggja marmar- ann. Við rúllustigana eru gosbrunnar þar sem vatnið gýs upp á milli fimm metra hárra fíkjutrjáa. Á efri hæð eru handrið úr gleri svo vegfarendur geti virt fyrir sér neðri hæðina þeg- ar gengið er um. Speglar eru á hliðum rúllustiganna. Sannarlega glæsilegar götur. Fullkomin verslun ÁTVR Kaupmenn sérverslananna hafa sjálfir veg og vanda af út- liti búða sinna. Það er greinilegt að allir vilja vanda verkið. Útlitið er jafnmismunandi og verslanirnar eru margar. Inn- byrðis verður að öllum líkindum samkeppni jafnt sem út á við því margar verslanir selja svipaða vöru. í Kringlunni eru til dæmis þrjár skóverslanir og ætti að vera auðvelt fyrir viðskiptavininn að gera verðsamanburð. Márgar tískuversl- anir eru einnig, sumar nýjar, aðrar hafa verið lengi við Laugaveginn. Á neðri hæð hefur hin margumtalaða verslun ÁTVR litið dagsins ljós. Hún er á 730 fermetrum og ákaflega aðgengileg fyrir viðskiptavininn. Verslunin minnir á áfengissöluna í Fríhöfninni nema hvað hún er miklu stærri. Viðskiptavinur- inn velur sjálfur úr hillum og fer með vöruna að afgreiðslu- kössum. Þeir eru mjög fullkomnir og þeir fyrstu sinnar tegundar hér á landi fyrir utan Fríhöfnina. Borðin lesa sjálf verðin inn á tölvurnar. Á neðri hæð er önnur stórverslun en það er BYKO sem hefur nú nafnið Byggt og búið og hefur komið sér fyrir á 1100 fermetrum. Byggt og búið hefur fyrir löngu hafið „bísn- ný upplifun á Islandi m Séð eftir báðum götunum. Menn voru enn að störfum enda ýmislegt eftir þó fáir dagar séu til opnunar. Öll flisalögn á gólfum er þó búin en breitt hefur verið yfir gólfin þeim til varnar. DV-myndir Brynjar Gauti iss“ því verslanaeigendur og iðnaðarmenn í húsinu leita þangað eftir vörum sem þá vantar. „Franskt“ kaffihús Fyrir ofan Byggt og búið er nokkurs konar endir á leiðangr- inum um húsið en þar er svokallað veitingahúsahom. Þar er að fmna veitingastaðinn Hard Rock Café, sem þegar hefur verið opnaður, þó ekki sé það formlegt. Einnig eru veitinga- staðir með sameiginlega borðaðstöðu en þá getur viðskipta- vinurinn valið um hvort hann fær sér hamborgara á einum staðnum, kjúkling á öðrum eða pitsu á þeim þriðja. Fjölskyld- an getur sem sagt valið sér mat frá mismunandi veitingahús- um þó allir sitji við sama borð. Einnig er þarna að finna „franskt" götukaffihús. Það ætti ekki að vera amalegt að setjast niður með kaffibollann og virða fyrir sér iðandi mann- lífið í húsinu. í Kringlunni er engum gleymt. Þar eru almenningssalerni og einnig mömmustofa, þar sem mæður geta skipt á börnum sínum og gefið brjóst ef þær vilja. Einnig er sérstakt bíóhorn fyrir börnin ef þau vilja frekar horfa á bíó en labba með mömmu og pabba. Kringlan snobb? Ýmis þjónustufyrirtæki eru einnig í Kringlunni. Má þar nefna Búnaðarbanka íslands, Póst og síma, Ingólfs apótek, Fjárfestingarfélag íslands, Flugleiðir og Almennar trygging- ar. Því hefur verið haldið fram að Kringlan verði nokkurs konar snobb þar sem vöruverðið hækki i samræmi við útlit- ið. Ragnar Atli sagði að það væri misskilningur. „Hér eru margar verslanir sem þekktar eru úr miðbænum og þær verða áfram með sömu verð og verið hafa. Margar þessara verslana geta nú keypt inn meira magn og fengið betri afslætti af vörunum. Það ætti að verða til að vöruverð lækki fremur en hitt,“ sagði hann. Hitt er víst að mikið hefur verið rætt um kostnaðarhliðina á þessari stórbyggingu. Ragnar Atli sagði að upphafleg §ár- hagsáætlun hússins hefði hljóðað upp á 1700 milljónir. Ljóst væri að bæta mætti að minnsta kosti 300 milljónum við þá tölu. - Hvernig er hægt að fjármagna slíkan kostnað? „Með sölu á suðurenda hússins hefur Hagkaup fjármagnað þann enda. Hagkaupshlutinn hefur verið fjármagnaður að hluta til með lánum og að hluta til með rekstrarsjóði fyrirtæk- isins sem var allnokkur. Undanfarin ár hafa alltaf verið lagðar til hliðar fjárhæðir mánaðarlega í rekstrarsjóðinn." Hönnun frá útlöndum Kaupmenn sjá sjálfir um innréttingar og er augljóst að þar liggur ennfremur mikið fjármagn. Hjá Hagkaup hefur Finnur Fróðason og arkitektastofan Bernhard Engle Partnership í London séð um hönnun. Innréttingar í „magasín" verslunina koma frá austurrísku fyrirtæki sem sérhæfir sig í slíkum inn- réttingum. I matvöruversluninni koma innréttingar víða að. Margar verslanir hafa fengið hönnuði erlendis frá til að innrétta og einnig iðnaðarmenn. í nokkrum verslunum er svokallað „franchise“ en það táknar að verslunin er í við- skiptasamböndum við eina ákveðna verslun erlendis. Fær vörur frá henni og starfar að öllu leyti samkvæmt kröfum þeirrar verslunar. Leituðu að húsnæði í tvö ár Brynhildur Ingimundardóttir og Ása Helga Ólafsdóttir eru í slíku samstarfi við sænskt fyrirtæki sem heitir Polarn og Pyret. Þær hafa ekki áður stundað verslunarrekstur og þess- ar vörur hafa ekki fengist hér á landi fyrr. Við spurðum hvernig hefði staðið á því að þær drifu sig út í viðskipti? „Ég hef keypt þessar vörur í tíu ár, bæði þegar ég hef verið erlend- is og í gegnum póstverslun hjá þeim og líkað vel. Þetta eru bómullarvörur sem ég hef góða reynslu af og vildi koma þeim á markað hér á landi,“ sagði Ása Helga. Við erum búnar að leita að hentugum verslunarstað í tvö ár en ekki fengið neinn. Við ákváðum því að fara hingað og fengum þetta pláss leigt. - Er ekki óheyrilega dýrt að leigja hér? „Nei, það er ekkert dýrara en gengur og gerist við Lauga- veginn. Okkur finnst þetta bara sanngjörn leiga sem við borgum," sögðu þær. „Við erum líka mjög ánægðar með að vera í þessu húsi og trúum því að hér eigi eftir að vera skemmtilegt að vinna. Ása Helga og Brynhildur voru að raða vörum upp á slár þegar við komum og tvær sænskar stúlkur voru þeim til hjálp- ar. Polarn og Pyret eru með fjörtíu verslanir í Svíþjóð en þetta er fyrsta verslunin sem opnuð er í öðru landi. í næsta mánuði verður opnuð önnur Polarn og Pyret verslun og verð- ur hún í Sviss. - Verður gott verð á þessum vörum? „Já, þær eru á ágætu verði, svipuðu og sænsku Fix vörurn- ar eru hér á landi,“ sögðu þær stöllur. Mikill spenningur Það er greinilega mikill spenningur meðal kaupmanna í Kringlunni. Mátti sjá nokkra þeirra á vappi, kíkjandi hvern- ig gengi hjá samkeppnisaðilanum. Sumir hafa allar gáttir galopnar en aðrir líma fyrir alla glugga og enginn má sjá fyrr en á opnunardaginn. Fimmtudagurinn verður nokkurs konar „surprise" í Kringlunni. Eitt er víst margir verða þeir sem finnst þeir vera í „útlöndum" i Kringlunni. -ELA Þær Brynhildur og Ása Helga eru að setja verslun á fót í fyrsta skipti. Þær versla með sænsku vörurn- ar Polarn og Pyret sem ekki hafa fengist hér á landi fyrr. Ali-búðin hefur ekki verið starfandi síðan i gamla daga en verður nú endurvakin í Kringlunni. Herragarðurinn bíður einungis eftir fimmtudeginum þvi þar er ailt klárt. Glæsileg verslun sem gaman er að skoða. ÁTVR var að vísu tómleg er við litum þar inn en á fimmtudag verður hægt að velja sér áfengistegund- ir úr hiilunum. Þessi nýja áfengisverslun í Kringlunni er viðbót við hinar sem fyrir eru því engin verður lögð niður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.