Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1987, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1987, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987. Skák Millisvæðamótið í Szirak: Fimm stórmeistarar tefla um þriú sæti - Jóhann Hjartarson teflir við Allan í dag Æsispennandi lokaskákir eru íram undan á millisvæðamótinu í Szirak í Ungverjalandi þar sem Jóhann Hjart- arson hefur staðið sig svo frábærlega vel. Aðeins þrjú efstu sætin gefa þátt- tökurétt í áskorendakeppninni í Kanada í janúar á næsta ári en er tvær umferðir eru ótefldar geta fimm stórmeistarar hugsanlega komist áfram. Ljóst er þvi að baráttan verður gríðarlega hörð og hver taug í skák- meisturunum er áreiðanlega þanin þessa dagana. Fyrir sextándu og næstsíðustu um- ferð, sem tefld verður í dag, er Jóharrn Hjartarson einn efstur með 11 v., síðan koma Salov og Portisch með 10‘A, Nunn hefur 10 v. og jafnteflislega bið- skák við Allan (sem tefla átti í gær) og Beljavsky hefur 9 'A v. Aðrir geta ekki blandað sér í baráttuna - Anders- son kemur næstur með 9 v. og þá Ljubojevic með 8!4 v. Jóhann teflir við Kanadamanninn Allan í dag og hefur svart. Allan þessi er langneðstur en varasamt er þó að vanmeta nokkum skákmann á þessu móti. Portisch og Nunn hafa báðir fengið að kynnast því í síðustu um- ferðum. Portisch átti gjörtapaða stöðu gegn Allan í 14. umferð en tókst að bjarga sér í jafhtefli og Nunn virtist einnig verða að sætta sig við skiptan hlut gegn Kanadamanninum, í skák úr 15. umferð sem fór í bið. Jóhann verður að freista þess að ná fram vinn- ingi í skákinni við Allan til þess að hrista af sér úlfakvartettinn grenj- andi, sem á vafalítið eftir að selja sig dýrt. í lokaumferðinni, á mánudag, á Jóhann að tefla við Beljavsky, sem verður nauðsynlega að vinna báðar síðustu skákir sínar til þess að eiga möguleika. Keppinautar Jóhanns eiga misjafh- lega erfiðar skákir eftir. Þægilegustu mótherjana á Salov, sem teflir við Spánverjann de la Villa í dag og Bou- aziz frá Túnis á mánudag. Það má því eins búast við að Salov fái tvo vinn- inga úr tveim síðustu skákunum og þá fengi hann 12 A v. á mótinu og væri öruggur með sæti í áskorenda- keppninni. Portisch og Nunn eiga hins vegar að tefla saman í dag, en í síð- ustu umferðinni teflir Portisch við Velimirovic og Nunn við Christiansen. Hváð Jóhann snertir, yrðu verstu úr- slit að Nunn og Portisch gerðu jafn- tefli en ynnu báðir lokaskák sína. Þá stæðu þeir uppi með 12 v., þ.e. svo fremi sem biðskák Nunns hafi lokið með jafntefli. Jóhann yrði þá að fá 1 'A v. úr tveim síðustu skákunum til þess að sleppa við aukakeppni. En þetta eru verstu úrslit. Líklegt er að einn vinningur úr skákunum tveim tryggi Jóhanni sess meðal sextán sterkustu skákmanna heims. Beljavsky hefur hrasað niður eftir mótstöflunni, eftir að hafa haft forystu lengi vel og nú eru möguleikar hans til þess að komast áfram minnstir þeirra fimmmenninga. Hann verður að vinna Velimirovic í dag og Jóhann á mánudag til þess að eiga fi-æðilega von. Það veltur því á skák hans í dag hvort hann verður í baráttuskapi gegn Jóhanni á mánudag. Staðan í mótinu er sérlega spenn- andi og það er endalaust hægt að velta sér upp úr möguleikunum. Annars eru millisvæðamótin fræg fyrir furðule- gustu úrslit í lokaskákunum, enda taugaskjálfti í mönnum. Og er minnst er á taugakerfið kemur júgóslavneski stórmeistarinn Ljubomir Ljubojevic ósjálfrátt upp i hugann. Fyrir mörgum árum sagði ónefndur landi hans við mig að hann myndi aldrei ná langt í heimsmeistarakeppninni, því að hann væri svo slæmur á taugum. Fram að þessu hefur spádómurinn reynst á rök- um reistur. Ljubojevic var í farar- broddi fram yfir miðbik mótsins en er sæti í áskorendakeppninni var í hill- ingum fram undan skall allt í baklás. Jóhann tefldi við Ljubojevic í 12. umferð, afar mikilvæga skák fyrir þá báða. Ljubojevic hafði vinningi minna en Jóhann og sá fram á að ef honum tækist ekki að vinna yrðu möguleikar hans svo til úr sögunni. Sem sagt taugahrúga, sem sat við borðið. Jó- hann lét það þó ekkert á sig fá og tefldi yfirvegað og vandað. Sennilega besta skák Jóhanns til þessa á milli- svæðamótinu. Hvítt: Ljubomir Ljubojevic Svart: Jóhann Hjartarson Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rfi Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 RfB 5. 0 -0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. a4 Tískuafbrigðið á millisvæðamótinu í Szirak. Jóhann fetar í fótspor Beljav- skys, sem tefldi þannig gegn Ljubojevic og fleirum fyrr í mótinu. Jóhann Hjartarson hefur staóið sig frábærlega á millisvæðamótinu i Szirak i Ungverjalandi. Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 Vinn. 1. Todorcevic (Mónakó) 2475 'A 0 1 1 1 0 0 0 0 0 1 1 '/2 '/2 0 6/2 2. Ljubojevic (Júgósl.) 2625 '/2 1 'A '/2 1 /2 1 0 '/2 0 '/2 '/2 '/2 1 '/2 8/2 3. Milos(Brasilíu) 2495 1 0 1 '/2 1 0 0 0 '/2 0 1 0 '/2 '/2 1 7 4. Benjamin (Bandar.) 2575 0 'A 0 '/2 1 '/2 0 0 '/2 1 1 '/2 '/2 '/2 6'A + I 5. Salov (Sovétr.) 2575 0 'A 'A '/2 1 1 '/2 '/2 1 '/2 1 1 '/2 1 1 IO/2 6. Allan (Kanada) 2310 0 0 0 0 0 0 '/2 0 '/2 0 '/2 0 0 0 1/2 + 1 7. Beljavsky (Sovétr.) 2630 1 'A 1 '/2 0 1 0 '/2 1 1 '/2 '/2 '/2 1 '/2 9/2 8. Portisch 2615 1 0 1 1 '/2 '/2 1 '/2 '/2 /2 '/2 1 1 '/2 1 IO/2 9. Nunn (Englandi) 2585 1 1 1 1 '/2 '/2 1 '/2 1 1 0 '/2 1 0 10 + 1 10. Velimirovic (Júgósl.) 2520 1 'A 'A 0 1 0 '/2 0 1 '/2 1 0 1 0 7 + 1 11. Jóhann Hjartarson 2550 1 1 1 '/2 '/2 '/2 '/2 '/2 1 1 '/2 0 1 1 1 11 12. De La Villa (Spáni) 2485 0 'A 0 0 0 '/2 0 1 0 0 '/2 '/2 '/2 '/2 '/2 4/2 13. Bouaziz (Túnis) 2370 0 'A 1 '/2. 0 '/2 0 0 0 1 '/2 0 '/2 0 0 4/2 14. Andersson (Svíþjóð) 2600 A 'A 0 1 '/2 '/2 1 '/2 '/2 '/2 '/2 1 '/2 '/2 1 9 15. Adorjan (Ungverjal.) 2540 'A 0 0 '/2 '/2 0 '/2 0 1 '/2 1 0 '/2 '/2 0 5/2 16. Marin (Rúmeníu) 2475 '/2 '/2 '/2 1 '/2 0 0 1 0 '/2 '/2 '/2 '/2 '/2 6/2 + 1 17. Flear (Englandi) 2480 0 'A '/2 0 1 0 '/2 1 0 0 '/2 1 '/2 '/2 6 + 1 18. Christiansen (Bandar.) 2575 1 'A 0 '/2 0 1 '/2 0 1 0 '/2 1 0 1 '/2 7/2 9. - Bd7 10. d4 h6 11. Rbd2 He8 12. d5 Túnisbúinn Bouaziz beið með þenn- an leik gegn Beljavsky í 2. umferð mótsins, lék fyrst 12. Bc2 Bf8 og þá 13. d5, sem Beljavsky svaraði með 13. - Re7 - sovéski stórmeistarinn náði að jafha taflið og vann í 40 leikjum. 12. - Ra5 13. Bc2 c6 14. b4 Rc4 15. Rxc4 bxc4 16. dxc6 Bxc6 17. De2 Ljubojevic er þekktur fyrir að telja sig ávallt eiga betra tafl, ef ekki unn- ið, sama hve illa fer fyrir honum, og því er hann gjam á að endurtaka byrj- unarleiki sína. Nú fyrst breytir hann út af skák sinni við Beljavsky úr 8. umferð. Þá lék hann 17. Rd2 en komst ekkert áleiðis. 17. - Hc8 18. Bd2 Bf8 19. Hadl Bb7 20. Rh4? Vindhögg! Eftir næsta leik svarts, sem er eðlilegt framhald af liðsskipan hans, verður riddarinn á villigötum á kantinum og snýr von bráðar við. Stinga má upp á 20. a5, eða 20. h3 ásamt Rh2-g4, eða Rh2-ff-e3. 20. - g6 21. a5 Bg7 22. Rf3 Dc7 23. Be3 d5! Jóhann hefur náð að snúa taflinu sér í vil eftir tímasóun hvíts í tuttug- asta leik. 24. Bb6 Dc6 25. Rd2 25. - d4! Peðsfómin er tímabundin. Svartur fær frelsingja á c-línunni og sterka stöðu. 26. cxd4 exd4 27. Bxd4 c3 28. Rfl Rxe4 29. Df3 Rd2! Leiðir til mikilla uppskipta, sem em svörtum í hag. Riddarinn lokar linu hróksins og valdar einnig bl, svo hvít- ur fær ekki varið b-peð sitt í fram- haldinu. 30. Hxe8+ Hxe8 31. Dxc6 Bxc6 32. Bxg7 Kxg7 33. Re3 Hb8 34. Hcl Hxb4 35. Rdl Hg4! Annar sterkur leikur. Ljubojevic hefur ekki áhuga á 36. Re3 Hg5 en eftir leik hans lendir hann í töpuðu hróksendatafli. 36. g3 Rf3+ 37. Kfl Bb5+ 38. Kg2 Rel + 39. Kgl Rxc2 40. Hxc2 Ba4 41. Hcl Bxdl 42. Hxdl c2 43. Hcl Hc4 Hróksendataflið er unnið. Svarti kóngurinn geysist fram völlinn, án þess að hvítur eigi sér viðreisnar von. 44. Kfl KfB 45. Ke2 Ke5 46. Kd3 Kd5 47. h4 h5 48. f3 fS 49. Hxc2 Örvænting en stöðunni varð ekki bjargað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.