Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Page 4
4 LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987. Fréttir DV Skrifað undir samninginn í gær. Lífeyrissjódimir fá breytilega vexti, 6,1-7,0%: 20 milljarðar í húsnæðismálin Samið hefur verið við samtök lífeyr- issjóðanna um kaup þeirra á skulda- bréfum af Húsnæðisstofhun ríkisins næstu þrjú ár íyrir um 20 milljarða króna. Sjóðimir fá breytilega vexti, eftir því á hvaða tíma kaupin eru gerð, fyrst 7,0 % og síðast allt niður í 6,1 %. Samningurinn tekur til 55 % af ráð- stöfunarfé sjóðanna á þessu árabili. Á árinu 1988 er reiknað með að það geri 6,1 milljarð króna á 7% vöxtum. Á árunum 1989 og 1990 verða tvenns konar bréf keypt, annars vegar 15 ára bréf og hins vegar 15 eða 20 ára bréf með uppsegjanlegum vaxtakjörum. 1989 er samið um 6,5% vexti eða 6,9 % með uppsagnarákvæði. 1990 um 6,1 % eða 6,5 % með uppsagnarákvæð- inu. Sem fyrr segir eru það alls um 20 milljarðar króna sem reiknað er með að lífeyrissjóðimir láni húsnæðiskerf- inu með framangreindum hætti. Eftir að þessi samningur er í höfii mun Húsnæðisstofhun geta byrjað á ný að afgreiða lánsumsóknir eftir nokkrar vikur en ekkert hefur verið afgreitt síðan í mars. Þau lánsloforð sem nú verða veitt koma hins vegar ekki til útborgunar í bráð því búið er að fylla kvótann þar til í mars 1989. -HERB Brúin „Ég er alls ekki sáttur við þetta, ég hefði talið að þeir hefðu átt að bíða næsta vors með allar frekari fram- kvæmdir," sagði Þóroddur Þórodds- son hjá Náttúmvemdarráði þegar hann svaraði til um fund sem sveitar- stjóm Rangárvallahrepps hélt með fulltrúum frá Náttúmvemdarráði, Landgræðslu og Vegagerð. Ákveðið hefur verið, og framkvæmd- ir raunar hafiiar, að byggja brú yfir Markarfljót við Krók á Rangámalla- afrétti. Náttúmvemdarráð og Land- græðsla höfðu áður sent sveitarstjóm- Rangárvallaafréttur: verður byggð - þrátt fyrir mótmæli inni bréf þar sem sagði að þessir aðilar legðust alfarið á móti því að þama yrði byggð akfær brú, sérstaklega vegna þess að enginn er vegurinn og ekki hefur verið kannað stæði fyrir veg á þessum slóðum. Á fundinn, sem haldinn var í gær- morgun, barst undirskrift tæplega 70 manna þar sem brúarsmíðinni var mótmælt. Það breytti engu um á- kvörðun sveitarstjómarinnar, brúin skal byggð. Málamiðlun fékkst á fund- inum að á brúna verða settir tálmar þannig að ógerlegt verði að aka yfir hana. En af hveiju em menn ekki sam- mála um að byggja brúna? Magnús Ingvarsson, fyrrum fjallkóngur, segir að sín skoðun sé sú að smíði brúarinn- ar eigi sér engan tilgang. Hann segir að þessi brú sé ekki hugsuð fyrir heimamenn heldur ferðamenn og að gróður sé afar viðkvæmur þama. Ákvörðun sveitarstjómarinnar er hins vegar rökstudd með því að á þeim stað sem brúin er byggð sé hættulegt vað og að brúin komi sér vel við rekst- urfjár. -sme Hart er deilt um byggingu brúar yfir Markarfljót. Hún yrði lögð á þessu svæði, ef af yrði. Vinniivevtendasambandið og Alþýðusambandið: Stórátök á vinnumarkaðnum Margt bendir til þess að tilboð það sem Vinnuveitendasamband íslands lagði fram á fundi með forystumönn- um Alþýðusambandsins á miðviku- daginn var hafi fyrst og fremst verið lagt fram til að kanna viðbrögð for- ystumanna verkalýðshreyfingarinn- ar fremur en að vinnuveitendur hafi átt von á því að tilboðinu yrði tekið fagnandi. Það munu allir sammála um að kjarasamningagerð verði erf- iðari nú en verið hefur hin síðari ár. Þar kemur margt til. Hver sveik hvern? Ljóst er af viðbrögðum forystu- manna verkalýðshreyfingarinnar á fréttamannafundi á miðvikudaginn að þeir telja sig hafa verið svikna af atvinnurekendum og ríkisvaldi hvað varðar þjóðarsáttarsamning- ana. Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambandsins, sagði við fréttamenn að þrír aðilar hefðu stað- ið að gerð síðustu kjarasamninga. Alþýðusambandið hefði staðið við sinn hlut. Ríkisstjómin hefði brugð- ist. Hún hefði ekki haft þann hemil á verðbólgunni sem lofað var. Vinnuveitendasambandið hefði brugðist. Einstaklingar og fyrirtæki innan þess hefðu haldið uppi launa- skriði í landinu og velt þeim kauphækkunum út í verðlagið og þar með lagt sitt af mörkum til að auka verðbólguna. Ásmundur sagði að þegar svo kæmi að því að bæta launafólki verðbólguskriðið, sem atvinnurek- endur og ríkisstjóm hefðu staðið fyrir, kveinkuðu atvinnurekendur sér við að standa við gerða samninga og bæta fólki það upp. - náist ekki samningar fyrir áramót mun ríða á vaðið í komandi kjara- samningum. Hætt er við að önnur sérsambönd innan Alþýðusam- bandsins kjósi að sifja hjá og bíða niðurstöðu áður en þau leggja fram sínar kröfur. Það er einnig hætt við að ef aðilar em sammála um að bæta kjör fiskvinnslufólksins komi allir hinir á eftir op heimti það sama. Eitt sameinar Það er þó eitt sem sameinar Vinnuveitendasambandið og Al- þýðusambandið en það er að náist ekki samningar fyrir áramót munu þær kauphækkanir, sem samið verð- ur um eftir áramót, fara sjálfkrafa yfir til félaga í Bandalagi starfs- manna ríkis og bæja og Bandalagi háskólamanna. Þessi sambönd gerðu slíka samnmga á síðustu vor- mánuðum. Þetta vilja Alþýðusam- bandið og Vinnuveitendasambandið ekki að gerist því að þá fyrst myndi verðbólgan æða af stað. Alþýðusambandsmenn eru margir til viðtals um ákveðna krónutölu- hækkun sem verðbætur 1. október. Það sem þeir aftur á móti óttast er að opinberir starfsmenn og háskóla- menn, sem líka hafa sfnar launa- nefndir til að meta hvaða verðbætur skuli greiða 1. október, láti fullar verðbætur koma yfir. Þar með myndi launabilið breikka enn og allt færi á hvolf hjá félögum innan Alþýðu- sambandsins. Átök óumflýjanleg Það er samdóma álit þeirra verka- lýðsforingja sem DV hefur rætt við að náist ekki samningar fyrir áramót komi til mikilla átaka á vinnumark- Ekki á að verðbæta launaskriðið Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bandsins, sagði að kaupmáttur launafólks hefði aukist svo mjög umfram það sem gert var ráð fyrir við gerð síðustu samninga að óþarfi væri að verðbæta launaskriðið. Hann sagði það raunar rangt, enda hefði aldrei verið að því stefnt. Hann tók fram að ákveðnir starfehópar í þjóðfélaginu hefðu ekki notið launa- skriðs og því bæri að greiða því fólki verðbætur á laun. Þess vegna legðu atvinnurekendur til að notuð yrði krónutölureglan við verðbætumar 1. október en ekki að 7,24% hækkun kæmi á öll laun í landinu. Þetta eru vissulega rök. Svo koma allir á eftir Hitt er annað sem Vinnuveitenda- Fréttaljós: Sigurdór Sigurdórsson sambandið verður að gera sér grein fyrir. Það hefur ætíð verið svo að ef einn hópur innan verkalýðshreyf- ingarinnar fær launabætur heimta allir aðrir það sama. Þetta hefur ekkert breyst. Og enda þótt Vinnu- veitendasambandið og Alþýðusam- bandið væru sammála um að bæta kjör þeirra lægst launuðu, svo sem fiskvinnslufólksins og starfefólks í iðnaði, þá myndu önnur sérsambönd og einstök stéttarfélög heimta það sama. Eftir það sem gerðist á miðviku- daginn hjá aðilum vinnumarkaðar- ins virðist ljóst að það verður Verkamannasamband Islands sem Þeir eiga eftir að standa i ströngu, Þórarinn V. Þórarinsson og Ásmund- ur Stefánsson. aði eftir áramótin. Haukamir innan verkalýðshreyfingarinnar myndu þá ráða ferðinni, bendandi á að hinir hófeamari hefðu ekki náð neinu fram á haustmánuðum. Þeir hafa bent á og munu halda því áfram að vax- andi verðbólga allt þetta ár sé ekki verkalýðshreyfingunni að kenna. Þeir munu benda á að þrátt fyrir hófeamar kröfur Alþýðusambands- ins í tveimur síðustu samningum, þjóðarsátt með loforðum um að vinda niður verðbólguna, hefur það ekki tekist eins og lofað var og því sé ekki til neins að hlusta á viðvö- runarorð atvinnurekenda um hættu á vaxandi verðbólgu ef ekki verði gerðir hófsamir kjarasamningar. Þessar raddir em famar að heyrast, meðal annars á formannafundi og ráðstefiiu Verkamannasambandsins á dögunum. Þær kröfur em líka komnar fram að hvert verkalýðsfélag fyrir sig eða landshlutasamtökin taki yfir samn- ingagerðina að þessu sinni. Gegn þessu berst framkvæmdastjóm Verkamannasambandsins um þessar mundir og á fullt í fangi með að halda hópnum saman. Raunar er ekki séð hvort það tekst. Takist það ekki má búast við harðari átökum á vinnumarkaðnum en menn hafa átt að venjast á síðustu árum. Þessu gerir Vinnuveitendasam- bandið sér fulla grein fyrir. Þess vegna er fuO ástæða til að álykta sem svo að tilboðið til Alþýðusambands- ins á dögunum hafi verið til þess eins að kanna viðbrögð verkalýðs- hreyfingar. Vinnuveitendasamband- ið mun draga sínar ályktanir af þeim og spila út frá því. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.