Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987.
Einbýii - laust strax
Vinalegt hús á eins hektara eignarlóð á góðum stað
í Grindavík.
Húsið er mikið endurnýjað.
- Góð greiðslukjör. Útborgun á ári aðeins 900 þús.
Mætti taka bíl eða skuldabréf upp í kaupverð. Laust
strax. Ath. stutt í Bláa lónið.
Upplýsingar í síma 91 -25722 á skrifstofutíma og
sunnudaga milli kl. 1 og 5.
Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður
færð á kortið.
Nú er hægt að hringja inn smáauglýsingar
og ganga frá öllu í sama símtali.
Hámark kortaúttektar í sima er kr. 4.000,-
Hafið tilbúið:
'Nafn - heimilisfang - sima - nafnnúmer -kortnúmer\
og gildistima og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar.
62 • 25 • 25
F R ÉTTA.S KOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða
vitneskju um frétt hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist
eöa er notað í DV, greiðast
1.500
krónur. Fyrir besta frétta-
skotið í hverri viku greiðast
4.500 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum
við fréttaskotum allan sólar-
hringinn.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á eigninni Byggðarholti 1C, Mosfellsbæ, þingl. eign Sigurð-
ar Péturssonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 23. september nk.
kl. 13.00.
________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eigninni Sunnuflöt 24, Garðakaupstað, þingl. eigandi
Þórður Haraldsson, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 mánudag-
inn 21. september nk. kl. 14.45 og verður síðan fram haldið eftir nánari
ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðandi er innheimta ríkissjóðs.
_________________ Bæjarfógetinn í Garðakaupstað
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eigninni Austurströnd 8,7-4, Seltjamarnesi þingl. eigandi
Eyjólfur Halldórsson, ferfram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 miðvikudag-
inn 23. september nk. kl. 14.15 og verður siðan fram haldið eftir nánari
ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki íslands og
Veðdeild Landsbanka íslands.
________________________Bæjarfógetinn á Seltjarnamesi
Ferðasíða
::V:: : :: :: :
Puerto Rico liggur milli Santo Dom-
ingo og Jómfrúareyja, um 1600
kílómetra suður af Miami. Norður-
strönd eyjarinnar er böðuð Atlants-
hafi en syðri endinn er karabískur.
Eyjan er ekki stór, hún er 161 km
að lengd og 56 km á breidd, en þrátt
fyrir smæð sína er loftslag marg-
breytilegt, allt frá fjöllum klæddum
frumskógi til eyðimarkanna á suður-
hluta eyjarinnar.
19. nóvember 1493 kom Kólumbus
við á eyjunni. Hann var þá í annarri
ferð sinni til Vestur-Indía. Spánverj-
ar höfðu þó ekki mikinn áhuga á
eyjunni, sem var hvorki stór né auð-
ug, fyrr en um miðja sautjándu öld
en þá varð eyjan hernaðarlega mikil-
væg sem skipalægi.
Frumbyggjar eyjarinnar, kallaðir
taínos, nefndu hana Borinquen, nafn
sem hún er nefnd enn þann dag í
gælutón. Þegar Kólumbus kom til
Puerto Rico voru þó fáir frumbyggjar
eftir en þeir höfðu orðið illilega fyrir
barðinu á herskáum nágrönnum,
Karíbum, sem gerðu oft strandhögg
í leit að þrælum. ■
Höfuðborg eyjarinnar, San Juan,
var reist á smátanga sem liggur út
úr eyjunni. Þarna var gott að verjast
en mikið hafði verið ráðist á spænsk
skip á þessum slóðum og þurftu þau
því örugga höfn. Vegna þessá var
ákveðið að víggirða höfnina í San
Juan. Þar eru nú leifar af miklu
virki.
Síðar varð eyjan lykillinn að yfir-
ráðum á Karíbahafi. Spánverjar
höfðu reist virki hér og þar um eyj-
una og sá sem réð yfir henni gat
fylgst með öllum skipaferðum um
Karíbahaf.
Vegna hernaðarlegs mikilvægis
varð Puerto Rico smám saman að
hjarta heimsveldis Spánverja í nýja
heiminum. Spánverjar eyddu miklum
fjármunum í höfuðborgina sem var
orðin miðstöð hernaðarumsvifa í
nýlendunum. Aðrir litu þessi umsvif
óhýru auga og reyndu margir að
hrifsa eyjuna úr greipum Spánverja
en án árangurs. Meðal þeirra sem
þetta reyndu voru Sir Francis Drake,
hertoginn af Cumberland, Hollend-
ingar og Frakkar.
Það er kannski vegna þessarar
miklu uppbyggingar að Puerto Rico
var eina nýlenda Spánverja sem ekki
braust til sjálfstæðis með uppreisn-
um og frelsisstríðum. Eyjan féll
Bandaríkjunum í skaut í Parísar-
samningunum 1898, en áður höfðu
Spánverjar tapað bæði Kúbu og
Filippseyjum í stríði við Bandaríkin.
Puerto Rico er nú eitt Bandaríkj-
anna en hefur eigin stjórnarskrá og
Gata í San Juan. Gamli borgarhlut-
inn er vel varðveittur enda er allt
gert til að halda honum sem upp-
runalegustum.
eigið þing. Puerto Ricanar eru því
ekki með kosningarétt til Banda-
ríkjaþings né í forsetakosningum
þótt þeir séu bandarískirþegnar. Það
er því ekki að undra þó þessi staða
sé aðalmálið í stjómmálum á eyjunni
og sýnist sitt hverjum. Á Puerto Rico
er tveggja flokka kerfi og vill annar
flokkurinn, PNP - Nýframsóknar-
flokkurinn, gera landið að fylki
innan Bandaríkjanna, en hinn flokk-
urinn, PP - Alþýðuflokkurinn, vill
óbreytt ástand. Einnig eru til nokkr-
ir sem vilja fullt sjálfstæði en þeir
eru þó í minnihluta.
Vegna þessara nánu tengsla við
Bandaríkin eru lífshættir um margt
svipaðir og þar. Menntakerfið er al-
gerlega undir stjórn Bandaríkjanna,
svo og hagkerííð. Þó er ríkisháskól-
inn óháður en samt haldið uppi af
Bandaríkjunum.
Enska skilst því víða en spænska
er enn aðalmál eyjarskeggja. Eyjan
er mjög vinsæl meðal bandarískra
ferðalanga og hefur hún sumpart
komið í stað Kúbu fyrir þá sem eru
að leita sér að hóglífi í fríinu. Það
eru því ógrynni af spilavítum og
skemmtibúllum meðfram strand-
lengjunni en baðstrendur þykja
þarna góðar, svo og aðstaða til
stangveiði og köfunar. Skammt frá
er svo dýpsti áll Atlantshafsins sem
er kenndur við eyjuna.
Inni í landi er svo ósnortinn hita-
beltisskógurinn með sínu litskrúð-
uga gróður- og fuglalífi.
Á slíkri eyju er margt að sjá en þó
er tvennt sem ferðalangur ætti ekki
að missa af. Hanaslagur er vinsæl
íþrótt meðal íbúa í þessum heims-
hluta eins og þeir vita sem lesið hafa
bók Gabriel García Márquez, Liðs-
foringjanum berst aldrei bréf. Á
Puerto Rico fer slagur fram á hverj-
um laugardegi frá kl. 13-19. Hann
er haldinn í hanaklúbbnum, Club
Gallístico Isla Verde.
Hitt atriðið er svo safn Pablo Ca-
sals, en þessi katalónski sellóleikari
bjó á Puerto Rico um árabil. Safnið
er í gamla miðbænum í San Juan og
stendur við San Sebastiangötu núm-
er 101. Það er opið alla daga frá 9-5,
nema á sunnudögum er það ekki
opnað fyrr en kl. 13. -PLP
• MAYAGUEZ
Cabo Rojo
Guayana
Boqueron
AguadilIaOói
Aguadllla
Areclbo A TLANTSHAF SAN JUAN
Dorado
Snákaeyja
*o
Jónshöfðar
Fajardo m
Puercalá \
Humacao
/ ESPERANZA
Vlequeseyja
Yeguastá
~ ... Caja de Muertoseyja
Guayanlllafíól
HomfíóI
Rauölhöfól
60 km
KARIBAHAF
\
Kúba
DV - kort JRJ
Oói
Kyrzahaí
PUERTO RICO