Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987.
9
Ferdasíða
Að deila
ferðaminn-
ingum með
öðnim
Mikla ánægju er ég búinn að hafa
af ferðinni okkar norður í sumar,
sagði maður nokkur við vin sinn en
þeir höíðu ákveðið að fara saman i
ferðalag norður í land sem aldrei
varð úr.
Já, en við fórum aldrei, sagði vin-
urinn. Hvemig geturðu haft ánægju
af ferðalagi' sem aldrei var farið?
Ég var búinn að hlakka svo mikið
til að þótt aldrei yrði af ferðinni
hafði ég af henni mikla ánægju,
sagði maðurinn.
Þetta er skemmtileg saga. Hún
gerðist að vísu ekki nýlega en gæti
samt vel átt við enn í dag.
Það er þó frekar ótrúlegt en svo
mikið er þó víst að menn geta lengi
lifað á minningum um góða og
skemmtilega ferð.
Þegar við spurðum vegfarendur í
kulda og trekki í vikunni um sum-
arfríið var greinilegt að nokkrir áttu
góðar minningar um skemmtilegar
ferðir sem þeir hyggjast ylja sér við
í vetrarskammdegi. En alltaf hittum
Halldór Sveinsson
húsasmiður:
Ég er nú ekki búinn að fara í neitt
frí, get ekki sagt að mig langi neitt
sérstaklega til þess að fara, í það
minnsta ekki eins og á stendur.
Ása Ásgeirsdóttir húsmóðir:
Við fórum í frí til Evrópu og ókum
þar um. Það var mjög skemmtilegt.
Við hjónin fórum tvö saman og ók-
um um ein fimm þjóðlönd. Jú, við
lentum í ansi mikilli rigningu en
ekki neinum flóðum sem betur fer.
Magnús Gunnarsson
bankastarfsmaður:
Ég fór til Bandaríkjanna, bæði til
að leika mér og einnig keypti ég mér
bíl þar. Jú, það var í það minnsta
hagstætt að kaupa sér bíl þar.
Við vorum á skemmtiferð í fjórar
vikur sex saman. Við leigðum okkur
mjög fullkominn húsbíl sem við bók-
staflega héldum til í. Við gátum gist
í þessum bíl á þar til gerðum svæðum
þar sem maður getur verið alveg
öruggur með sig. Þetta var mjög
fullkominn bíll með öllu sem við
þurftum á að halda, bæði sturtu og
salemi. Leigan fyrir bílinn var 200
þús. kr. í 6 vikur fyrir okkur sex.
við fáeina „súrpoka" sem vilja ekki
svara góðlátlegum spumingum og
snúa sér undan þegar ljósmyndarinn
mundar myndavélina. Ýmist hafa
þeir ekki farið í neitt frí - hafa senni-
lega ekki ráðgert það svo þeir gátu
ekki einu sinni hlakkað til, gleymd-
ist kannski að setja þann hæfileika
í þá í upphafi - nú eða þeir vilja
bara ekki deila fríinu sínu með okk-
ur hinum.
En margir vilja deila minningun-
um sínum með okkur. Meðal
annarra hittum við ungan mann sem
hafði farið vestur um haf með félög-
um sínum. Þeir leigðu sér húsbíl og
ferðuðust um á honum um allar
trissur. Bílhnn var búinn öllum
hugsanlegum þægindum þannig að
ferðalangamir gátu sparað sér að
kaupa gistingu. Leiga fyrir bílinn
var 200 þúsund kr. í 6 vikur fyrir sex
farþega. Það er bæði ferða- og gisti-
kostnaður og má því kallast vel
sloppið.
Við höfum einnig áður heyrt um
ungt fólk sem leigði sér húsvagn og
ók m.a. til heimsborgarinnar New
York. Krakkamir spömðu sér hótel-
gistingu í rándýrri borginni því
svæði fyrir húsvagna em á bestu
stöðunum inni á Manhattan, sem
kallast gæti „bærinn" hjá þeim. Hér
fara á eftir svör þeirra sem við okk-
ur vildu ræða.
-A.BJ.
Anna Steindórsdóttir
ellilífeyrisþegi:
Ég fór til Ítalíu í þrjár vikur og
sleikti sólskinið. Við vorum fjögur
saman og skemmtum okkur alveg
stórkostlega vel. Við ferðuðumst
mikið um á bíl. Það var ógleyman-
legt að aka um í Alpafjöllunum, t.d.
um Brennerskarðið.
Stefán Þormar, nemandi í
Stýrimannaskólanum:
Ég fór nú heim til mín í sumarfrí-
inu, austur á Hérað. Ég var á sjónum
í sumarfríinu en stunda nám í Stýri-
mannaskólanum. Jú, það var gaman
að verá heima, var þar í tíu daga,
fór m.a. í Atlavík um verslunar-
mannahelgina. -A.BJ.
feindabúnaður
rateindaviriqun ___--------------
----------aö búat.1
J sinneigin'. „
Sfl • Hliómtsekiamagnara
WM :2SSSSfrr
* Btgnrevn"á-amsemnc.n>
mf ^Mmtmunand'hWrsem
mm hflRat er aö velja ur.
Áhugatólkun^
Alltsem
Petta er kjörið
tómstundagama ni-
skammdeginu- j
^HLUTAVERSl-UH- SÆTÚN' 8-SÍMI69 ,,oo
samtutÝ**0
(/eðe/UM
Getum útvegað ýmsar
stærðir af Ford dísilvél-
um fyrir báta, iðnaðar-
tæki og rafstöðvar.
Hagstætt verð, stuttur
afgreiðslufrestur.
Almenna
Varahlutasalan s/f
Skeifunni 17, s. 83240 og 685100