Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Page 11
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987. 11 Samkomulag umað lifa Wi ímnv mlrinftiAWini i rnlri n ntnirrrli i nlrAtiinln \/nirrnivnlrlimi nrrvmiM wv/vnLnHAivMi ■» nLnrnwi tTTlLvvvmivvi /tA-tvt t t wt t /tI-i-t tt.v , ... nnM Sumar ríkisstjómir vekja athygli vegna þess sem þær afreka. Eftir þær liggja einhverjar nýjungar sem máli skipta, eitthvert merkilegt framtak sem lifir dægurþrasið. Aðrar ríkisstjómir vekja athygli fyrir það eitt að þær lifa. Helstu tíð- indi af slíkum stjómarheimilum em að náðst hafi samkomulag í fjöl- skyldunni um að skilja ekki alveg strax: reyna enn einu sinni. Það sem skiptir máli hjá slíkum stjómum er ekki um hvað samkomulag kann að nást heldur það eitt að ná samkomu- lagi. Núverandi ríkisstjóm virðist ljós- lega af síðamefhda kyninu. Þegar hún var mynduð var ljóst að ósamið var um flest sem máli skipti. Agrein- ingsmálunum var frestað. Það var samið um það fyrst og fremst að ná samkomulagi og heíja gönguna. Hver deilan af annarri Síðan hefur hver kreppan gengið yfir af annarri þennan stutta stjóm- artíma. Útvegsbankamálið kom fyrst. Þar var stál í stál. Um tíma leit út fyrir að ríkisstjómin myndi leysast upp. Á síðustu stundu var þó ákveðið að bjarga stjóminni. Ekki með því að leysa Útvegsbanka- deiíuna. Ákvörðunum um framtið bankans var einungis slegið á frest. Stjómarherramir gerðu samkomu- lag um það eitt að halda áfram að búa saman um hríð. Þegar Útvegsbankamálið var komið í frystigeymsluna tók slagur- inn um fjárlagafrumvarpið við. Þar var bullandi ágreiningur. Framsókn- armenn vörðu landbúnaðarkerfið. Sjálfstæðismenn neituðu að hækka skatta. Félagsmálaráðherrann neit- aði að skera niður húsnæðislána- kerfið, en aðrir kratar, með Jón Baldvin í fararbroddi, lögðu fram alls konar hugmyndir nánast eins og sáttasemjarí ríkisins væri kominn í fjármálaráðuneytið en ekki for- maður stjómmálaflokks. Að lafa áfram Eftir mikinn hamagang varð löng- unin til að lifa öðru yfirsterkari á ný. Þess er að vænta að gengið verði frá fjórlagafrumvarpi nú um helgina. Margt bendir þó til þess að það verði í skötulíki. Veigamiklum ágrein- ingsefnum verður vafalítið skotið á frest. Ekki verður reiknað með raun- hæfum kauphækkunum á næsta ári né raunhæfu verðbólgustigi. Övíst er að allar þær skattahækkanir, sem í reynd munu dynja á landsmönnum á næsta ári, muni koma fram í frum- varpinu. Þó virðast fréttir sem berast af því að ráðherramir séu að „finna“ hundruð milljóna í auknum tekju- skatti einstaklinga staðfesta þá trú margra að með tilkomu stað- greiðslukerfis skatta á næsta ári verði tekjuskatturinn í reynd hækk- aður þótt stjómmálamennimir þori ekki að viðurkenna það nú. En það verður sem sagt enn á ný samkomulag um að lifa áfram, lafa í stólunum eitthvað lengur. Hvað bíður svo almennings meðan stjómin lafir í stað þess að leysa málin og stjórna? Satt best að segja eru framtíðar- horfumar óglæsilegar. Hrunadansinn á ný? Nokkrar staðreyndir em ómót- mælanlegar: Tökunum var sleppt á verðbólg- unni á síðustu mánuðum síðustu ríkisstjórnar. Þessi ríkisstjóm hefur, ekki náð þeim tökum aftur. Verð- bólguhraðinn er í kringum 30% á heilu ári. Ástandið á vinnumarkaðinum er hættulegt. Með verðbólgu undanfar- andi mánaða hefur verið safnað að stíflu kauphækkunar sem brestur fyrsta október. Stéttarfélögin víg- búast. Mikið launaskrið, meðal annars vegna gífurlegrar samkeppni um vinnuaflið, hefur aukið á ójöfhuð og gert ýmsa láglaunahópa báfreiða með sína stöðu. Gerðar em kaup- kröfur upp á tugi prósenta eins og gert var á mestu verðbólgutímunum. Bál efhahagslegrar óstjómar er kynt af krafti. Ef ekki tekst að hemja verðhækkanir og launahækkanir blasir við að gengið fellur. Það eyk- ur enn á verðbólguna og kallar á kauphækkanir að nýju. Hringrásin ógurlega, sem keyrði okkur upp í 120% verðbólgu fyrir fáeinum árum, er þegar komin á fulla ferð. Hvemig á ríkisstjóm, sem er fyrst og fremst sammála um það að lafa, að stöðva slíkar keðjusprengingar? Laugardags- pistill Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri Sundruð hreyfing Á þeim tímum, þegar sem best sam- komulag tókst um að halda verð- bólgunni í skefjum, var hlutverk verkalýðshreyfingarinnar veigamik- ið. Alþýðusambandið, undir forystu Ásmundar Stefánssonar, átti mikinn þátt í því að sóknin gegn verðbólg- unni bar árangur um sinn. Hann fékk hins vegar bágt fyrir í eigin röðum og nú er ljóst að stéttarfélög- in koma sundruð til leiks við gerð nýrra samninga. Það dregur enn úr möguleikum á að hringrásin verði stöðvuð. Verkalýðshreyfingin hefur á síð ustu árum veikt sjálfa sig stórlega. Opinberir starfsmenn hafa þar reyndar gengið á undan. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja er vart nema skel miðað við það sem áður var. Fjölmennir' hópar, svo sem kennarar, hafa sagt skilið við sam- tökin. Sum aðildarfélög hafa samið frá sér verkfallsrétt. Og einstök að- ildarfélög eru komin með samnings- réttinn í stað BSRB og geta því samið sér ef þau svo kjósa. Hjá Alþýðusambandinu er líka víðtæk sundrung. Einstök landssam- bönd munu væntanlega sjálf annast sína samninga að þessu sinni en ekki Alþýðusambandið. Klofnings- hljóð er komið í Verkamannasam- bandið. Það gæti leitt til þess að aðildarfélög VMSl komi að samn- ingaborðinu i ólíkum fylkingum eftir því hvort fiskvinnslufólk er í meiri- hluta í félögunum eða ekki. Það alvarlegasta við þessa sundr- ungu í verkalýðshreyfingunni er auðvitað að hún dregur úr mögu- leikunum á heildarsamkomulagi sem geti stýrt þjóðfélaginu af braut nýrrar óðaverðbólgu inn á lygnari sjó skynsamlegrar efnahagsstjóm- unar og aukinnar sanngimi í skipt- ingu þjóðarteknanna. Þegar þessi veikleiki fer saman við veika ríkisstjóm er bráð hætta á ferðum. Gróska í menningunni Þessa dagana er menningarstarf að eflast eftir sumardvalann. Leik- húsin em að hefja f\Tstu sýningar vetrarins. Svonefndir norrænir tón- listardagar hafa fært til landsins listamenn frá hinum Norðurlöndun- um. Rithöfundar viða að. þar á meðal frá Bandaríkjunum, Chile og Frakklandi, hafa tekið þátt í bók- menntahátíð sem nú er nýlokið. Úrval erlendra kvikmvnda er á dag- skrá kvikmyndahátíðar sem hefst í dag. Málverkasýningar em opnaðar um hveija helgi, oft margar í senn. Og útgefendur spá metári í útgáfu bóka. Öll þessi gróska í menningarstarf- semi á sér stað á sama tíma og fjölmiðlasprengingin hefúr stórauk- ið framboð á útvarps- og sjónvarps- efni sem og rituðu máli. Og án þess að nokkuð hafi dregið úr löngum vinnutíma landsmanna. Hvemig er þetta eiginlega hægt? Sumir halda því fram að á þessu sé einföld skýring. Þjóðin sé í vax- andi mæli að skiptast í tvær fylking- ar eftir því hvernig fólk verji frítíma sínum. Stærsti hópurinn sé í faðmi fjölmiðlanna: hlusti á tónlist og mas í útvarpi og horfi á þætti og kvik- myndir sjónvarpsstöðvanna og myndbandaleiganna. Hin fylkingin, sem sé miklu minni, sæki listahátíð- ir og „alvarlega" listviðburði ýmiss konar. Snobbhátíðir? Á það var bent á nýafstaðinni bók- menntahátíð að umræða erlendra rithöfunda um bókmenntaleg efni, og það á erlendu tungumáli, væri ekki fyrir íslenska alþýðu heldur eitthvert snobblið. Þetta kom ýms- um í nokkurt uppnám. sem væntan- lega hefur verið markmiðið. Auðvitað er ljóst að það er tiltölu- lega lítill hóprn- sem sækir umræðu- fundi og upplestra af því tagi sem efnt var til á bókmenntahátíðinni. Önnum kafnir launamenn taka sér ekki frí úr vinnu á miðjum degi til þess að hlusta á rithöfunda ræða á erlendum tungum um „nýju skáld- söguna“. Vafalaust koma líka VTnsir á bók- menntahátíðir til þess eins að full- nægja þörf sinni fyTÍr að líta augum fræga menn. Ekkert af þessu dregur þó úr gildi þess að fá hingað til landsins færa listamenn sem geta miðlað af reynslu sinni og þekkingu til þeirra sem áhuga hafa. Það fer svo eftir mann- valinu. skipulagi og stjóm hvort einhverjir hafa gagn af því sem fram er borið á slíkum samkomum. Eftirtektarvert er að af listvið- burðum af þessu tagi hefur kvik- mvndahátíð gjarnan haft nokkra sérstöðu vegna góðrar aðsóknar sem hefur jafiivel skilað sér í hreinum fjárhagslegum hagnaði. Engu skal spáð um hvort svo fari einnig nú. þar sem framboð á myndefhi hefui- aukist mjög frá síðustu kvikmynda- hátíð. Kveöjurnar koma Á meðan stjómmálamennfrnir þrátta, verkalýðsforingjamir deila, verðbólgan magnast og skattahækk- animar bíða í dyragættinni reyna flestir að hugsa um eitthvað annað: fylgjast með nýjustu sápunum og töffaraþáttunum í sjónvarpinu. fá andlega næringu á aðskiljanlegustu listsýningum eða við lestur góðra bóka, ef þá menn skella sér ekki á næsta afþreyingarstað. Það er sem betur fer úr mörgu að velja þessar vikumar á höfuðborgarsvæðinu. En þótt þannig sé hægt að vikja frá sér áhyggjum af aðgerðum eða aðgerðaleysi stjómmálamanna um stund munu afleiðingamar af verk- um þeirra gera vart við sig fljótlega og þá þar sem mestu máli skiptir í daglega lífinu: í verslununum, á launaseðlinum og hjá innheimtuað- ilum ríkis- og sveitarsjóða. Kveðj- urnar koma, það er engin hætta á öðm. - ESJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.