Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987.
Erlend bósjá
Gilnter
Grass
On Writing
& Politics
Translated by Ralph Manheím, wíth an
introduction by Salinan Rushdie
Greinasafn
Giinter Grass
ON WRITING & POLrTICS.
Höfundur: Giinter Grass.
Penguin Books, 1987.
Þýski rithöfundurinn Gúnter
Grass er ekki síður þekktur fyrir
afdráttarlausar skoðanir sínar en
skáldsögur. Hann hefur ávallt sagt
meiningu sína tæpitungulaust,
hvort heldur hann fjallar um
stjómmál, alþjóðamál eða frelsi
rithöfundarins í samfélaginu.
Hér hefur nokkrum ritgerðum
og ræðum Grass verið safhað sam-
an. Þeim er skipt í tvo flokka eftir
efhi: annars vegar eru ritgerðir um
bókmenntir, hins vegar tun stjóm-
mál. Þó fer auðvitað ekki hjá því
að þegar Grass fjallar um bók-
menntir þá ræðir hann einnig
stjómmálalegar hliðar verkanna.
í ritgerðinni um Kafka, til dæmis,
er samanburður við ástandið í
Tékkóslóvakíu eftir Prag-vorið
honum ofarlega í huga.
Fyrir þá sem hafa rneiri áhuga á
bókmenntum Grass en stjóm-
málaskoðunum er ítarleg grein
hans um Alfred Döblin forvitnileg,
en Grass telur sig hafa lært meira
af þessum samlanda sínum (höf-
undi Berlin Alexanderplatz) en
flestum öðrum og vill setja hann á
bekk með Thomas Mann og Ber-
told Brecht.
HOW
POETRY
WORKS
PHILIP
DAVIES
ROBE RTS
List Ijóðsins
HOW POETRY WORKS.
Leyndardómar
þóglu tvíburanna
THE SILENT TWINS.
Höfundur: Majorie Wallace.
Penguin Books, 1987.
í bresku fangelsissjúkrahúsi dvelja
nú Gibbons-tvíburamir, June og
Jennifer, tuttugu og fjögurra ára að
aldri. Þær vom dæmdar til læknismeð-
ferðar ótímabundið - sem í reynd getur
þýtt ævilangt fangelsi - fyrir skemmd-
arverk og íkveikjur sem þær frömdu
á unglingsárum sínum.
Ástæða þess að þær vom ekki
dæmdar til hefðbundinnar fangelsis-
vistar var sú að frá bamsaldri höfðu
þær ekki talað við nokkum mann,
ekki einu sinni foreldra sína. Það tókst
sem sagt engum að ná sambandi við
þær.
Breski blaðamaðurinn Majorie
Wallace fékk áhuga á máli tvíburanna
og fór að kynna sér feril þeirra og
sérkennilegt samband. Hún fékk þá
meðal annars aðgang að fjölda stíla-
bóka sem stúlkumar höfðu skrifað í
allt frá bamsaldri. Þessar þéttskrifuðu
bækur vom lykillinn að leyndardómi
þöglu tvíburanna: saga sem er í senn
einstæð og óhugnanleg.
í ítarlegum dagbókum, sem June og
Jennifer færðu hvor í sínu lagi, er lýst
ítarlega hvemig það gerðist að þær
drógu sig meira og meira út úr sam-
félagi við foreldra sína, systkini og
aðra vini og kunningja og bjuggu sér
til sína einkaveröld. Þær töluðu sjálfar
saman en á þann hátt að enginn utan-
aðkomandi skildi. Þær gátu einnig
haft samband með örlitlum hreyfing-
um sem aðrir tóku ekki eftir. Þessi
tilbúna veröld varð brátt hinn eini
sanni raunveruleiki í hugum þeirra:
þær lifðu þar og hrærðust með persón-
um sem þær bjuggu til og skrifuðu um
jafnvel langar skáldsögur.
Á þessum árum þóttu tvíburamir
skrítnir en ekki virtust foreldramir
né kennarar átta sig á því að meira
en lítið væri að. Þegar þær komust á
kynþroskaaldurinn tók líf þeirra hins
vegar enn óheillavænlegri stefhu. Þær
kynntust piltum sem leiddu þær inn á
brautir áfengisneyslu, eiturlyfja og
kynlífs. í öllu þessu voru þær þöglir
þátttakendur, en skráðu svo viðbrögð
sín og væntingar í dagbækumar.
Þessi erfiða reynsla tvíburana, og
andsnúið umhverfi í skóla, varð til
þess að þær leiddust út á braut af-
brota sem að lokum endaði með því
að þær vom handteknar fyrir íkveikju
og skemmdarverk. Þögn þeirra varð
til þess að þær hlutu ekki þá meðferð
yfirvalda sem æskilegast hefði verið:
þess í stað vom þær í reynd grafriar
lifandi í fangelsissjúkrahúsi.
Það er ekki aðeins að Majorie
Wallace reki sögu tvíburanna ítarlega,
bæði eftir þeirra eigin dagbókum og
ritverkum og af viðtölum við þá sem
komið hafa við sögu þeirra. Hún kafar
einnig djúpt ofan í tilfinningaþrungið
samband tvíburanna þar sem blandast
saman ofsafengin ást og hatur. Þær
geta ekki búið saman án þess að gera
hvor annarri mein í ofsabræðisköstum
en þær veslast einnig upp ef þær em
aðskildar.
Saga Gibbons-tvíburanna er drama-
tísk, spennandi en umfram allt
harmræn lesning. Það er dapurlegt að
sjá hvemig líf tveggja stúlkna, sem
höfðu ótvíræða hæfileika og gáfur, var
lagt í rúst þegar á unglingsaldri - af
þeim sjálfum og þeim „sérfræðingum"
sem hefðu átt að vita betur.
London morðanna
MURDER GUIDE TO LONDON.
Höfundur: Martin Fido.
Grafton Books, 1987.
Það hafa verið framdir margir
óhugnanlegir glæpir í langri sögu
Lundúnaborgar. Líklega er „Jack The
Ripper" þeirra alræmdastur, en margir
aðrir koma í hugann: kvennamorðin-
gjamir Christie og Haigh og nú
nýverið fjöldamorðinginn Dennis
Nilsen sem gróf tólf fómarlömb í garð-
inum hjá sér á ámnum 1979-1981.
Fyrir þá sem ekki láta sér nægja að
lesa um slíka glæpamenn heldur hafa
i », w nimiwiHturu rm;»
áhuga á að virða fyrir sér þá staði,
þar sem hinir ógurlegu verknaðir vom
framdir, hefur nú verið samin sérstök
leiðsögubók. I þessari „morðhandbók“
er sagt í stuttu máli frá helstu morð-
ingjum í sögu bresku höfúðborgarinn-
ar og þeim stöðum þar sem þeir frömdu
ódæði sín. Bókinni er skipt í kafla efl>
ir borgarhverfum. Þá em helstu
morðstaðir færðir inn á sérstök kort
sem prentuð em aftast í bókinni.
Já, hvað er ekki gert fyrir túrhest-
ana!
Höfundur: Philip Davies Roberts.
Penguin Books, 1986.
Það er ekki hægt að kenna
mönnum að yrkja. Hins vegar er
gerlegt að fræðast af bókum um
þá tækni sem ljóðskáld hafa beitt
með góðum árangri í gegnum tíð-
ina.
Þessi bók hefur einmitt að geyma
lýsingu á aðferðum breskra ljóð-
skálda fyrr og nú. Höfundurinn
fjallar ítarlega um málnotkun, óiík
ljóðform, margbreytdlega notkun
hrynjandi og ríms og fjölbreytilega
framsetningu ljóða.
f síðari hluta bókarinnar em svo
birt ljóð sem em dæmigerð fyrir
þennan fjölbreytileika í enskri
ljóðlist frá tíundu öldinni til þeirr-
ar tuttugustu eða með öðrum
orðum frá Beowulf til skálda á
borð við Berryman, Lowell, Thom-
as og Plath.
Bókin kemur fyrst og ffernst að
gagni við skilning á ljóðum á
enskri tungu, þótt sumt af því sem
hér er fjallað um hafi auðvitað víð-
ari tilvísun og eigi sér þannig
samsvörun í íslenskri ljóðagerð.
Hún er því einkum gagnleg fyrir
þá sem hafa sérstakan áhuga á að
kynna sér form og handbragð en-
skra ljóðskálda.
Metsölubækur
Bretland
1. Jeffrey Archer:
A MATTER OF HONOUR. (1)
2. Jackie Collins:
HOLLYWOOD HUSBANDS.
(3)
3. David Eddings:
GUARDIANS OF THE WEST.
(2)
4. Anita Brookner:
A MISALLIANCE. (6)
5. Danielle Steel:
WANDERLUST. (4)
6. Leslie Thomas:
THE ADVENTURES OF GO-
OD-
NIGHT AND LOVING. (5)
7. Stephen King:
THE BACHMAN BOOKS. (9)
8. Isaac Asimow:
FOUNDATION AND EARTH.
(8)
9. Barbara T. Bradford:
ACT OF WILL. (7)
10. S. Donaldson:
THE MIRROR OF HER
DREAMS. (-)
(Tölur innan sviga tákna röð viðkomandi
bókar vikuna á undan. Byggt á The Sunday
Times.)
Bandaríkin:
1. Stephen King:
IT.
2. Tom Clancy:
RED STORM RISING.
3. Danielle Steel:
WANDERLUST.
4. Jackie Collins:
HOLLYWOOD HUSBANDS.
5. Karleen Koen:
THROUGH A GLASS
DARKLY.
6. W.E.B. Griffin:
CALL TO ARMS.
7. Sally Quinn:
REGRETS ONLY.
8. Tom Clancy:
THE HUNT FOR RED OCTO-
BER.
9. William J. Caunitz:
SUSPECTS.
10. James A. Michener:
TEXAS.
11. Patrick Siiskind:
PERFUME.
12. Dean R. Koontz:
TWILIGHT EYES.
13. Louis L'Amour:
LAST OF THE BREED.
14. John Saul:
THE UNWANTED.
15. M. Weis, T. Hickman:
KENDER, GULLY DWARVES,
AND GNOMES.
Rit almenns eðlis:
1. Kitty Kelley:
HIS WAY.
2. M. Scott Peck:
THE ROAD LESS
TRAVELED.
3. Beryl Markham:
WEST WITH THE NIGHT.
4. Judith Viorst:
NECESSARY LOSSES.
5. Bill Cosby:
FATHERHOOD.
6. M. Wilson, P. Romanowski, A.
Julliard:
DREAMGIRL.
7. Sidney B. Barrows, W. Novak:
MAYFLOWER MADAM.
8. M. Mathabane:
KAFFIR BOY.
9. J. McMahon, B. Verdi:
MCMAHONI.
10. Harold Kushner:
WHEN ALL YOU'VE EVER
WANTED ISN'T ENOUGH.
(Byggt á New York Times Book Review.)
Umsjón Elías Snæland Jónsson
Predikarinn
John Donne
SELECTED PROSE.
Höfundur John Donne.
Penguin Books, 1987.
Einu kynni flestra af John
Donne er tilvitnun sú sem Heming-
way hafði við upphaf skáldsögunn-
ar „For Whom The Bell Tolls“
(Hverjum klukkan glymur) og
hefst með orðunum „No man is an
Iland...“. Úr þeirri tilvitnun fékk
Hemingway reyndar nafrt sögunn-
ar.
Donne, sem var uppi á tímum
Shakespeare (fæddur 1572, dáinn
1631), var afkastamikið ljóðskáld,
heimspekingur og predikari, en
hann var starfandi prestur síðustu
áratugina, lengst af við St. Paul’s
í London.
Þegar á námsárum sínum fór
Donne að rita hugleiðingar um líf-
ið og tilveruna og síðar predikanir.
Þessi verk voru gefin út í mörgum
bókum. Hér er birt úrval grein-
anna.
í þessum ritsmíðum veltir Donne
fyrir sér ólíkustu spumingum um
lífið, dauðann og goðdóminn.
Margt ber þar merki þess tíma sem
hann lifði á, svo sem hugleiðingar
hans um konur. Sérstök grein fjall-
ar til dæmis um það hvers vegna
í ósköpunum nokkrum manni detti
í hug að konan hafi sál!
En mest er hér fjallað um trú-
mál, enda eru predikanir Donne
ríflega helmingur bókarinnar.
VIDA.
Höfundur: Delacorta.
Penguin Books, 1987.
Svissneski rithöfundurinn
Delacorta (öðru nafni Daniel Odi-
er) hefur skrifað óvenjulega og
fyndna reyfara. Spennusögur hans
bera allar nöfii kvenna: Diva,
Nana, Luna og Lola. Og nú er
Vida komin.
Þessi nýjasta spennusaga Delac-
orta er að sumu leyti öðruvísi en
hinar fyrri. Sögusviðið er nú í
fyrsta sinn Ameríka (hinar sögum-
ar gerast í Frakklandi) og veruleg-
ur hluti bókarinnar er kímileg
ádeila á bandarískar venjur sem
koma evrópskum gestum skringi-
lega fyrir sjónir. Söguþráðurinn,
sem er jafiilygilegur og í fyrri sög-
unum, þótt frumleikinn sé ekki sá
sami, verður stundum að aukaat-
riði: svo mikið liggur höfundinum
á að lýsa ýmsum fáránleika í
bandarísku þjóðlífi.
Sem fyrr em það hin fagra ungl-
ingsstúlka Alba og samferðamaður
hennar í ævintýrunum, Gorodish,
sem fara með aðalhlutverkið, en
Vida, sú sem nafn sögunnar höfðar
til, er myndarstúlka sem dundar
við það í frístundum að skjóta
mafíuforingja og spillta stjóm-
málamenn fyrir borgun.