Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1987, Qupperneq 20
20
LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987.
Bridge
Lið Flugleiða bikarmeistari
Orslitaleikur í bikarkeppni Bridge-
sambands íslands var spilaður um sl.
helgi. Fjórar sveitir spiluðu í undan-
úrslitum og fóru leikar þannig að
sveit Sigurðar B. Þorsteinssonar
vann sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar
með 109-81 og sveit Flugleiða vann
sveit Arnar Arnþórssonar með
109-61.
Úrslitaleikinn vann svo sveit Flug-
leiða með nokkrum yfirburðum, eða
135-83. Bikarmeistarar 1987 eru því
Jón Baldursson, Sigurður Sverris-
son, Valur Sigurðsson, Ragnar
Magnússon, Ásgeir Ásbjörnsson og
Aðalsteinn Jörgensen.
Hér er góð slemma frá úrslitaleikn-
um sem sigurvegararnir tóku.
V/allir:
74 65 G10976542
DG85 K ÁK10
ÁD1097 G4
- Á83
10987 ÁDG63
9632 K832 KD 543
Bridge
Stefán Guðjohnsen
í lokaða salnum gengu sagnir á
þessa leið:
Vestur Norður Austur Suður
pass pass ÍL pass
1H 3T dobl pass
3S pass 3G pass
pass pass
Þriggja tígla sögnin skapar viss
vandamál í sögnum fyrir austur og
það væri synd að segja að hann hefði
fundið lausnina. Suður fékk fyrstu
tvo slagina á tígulhjón en sagnhafi
tók síðan afganginn. Það voru 660
til a-v.
I opna salnum sátu n-s Haukur
Ingason og Runólfur Pálsson en a-v,
Valur Sigurðsson og Jón Baldursson.
Valur og Jón renndu sér í slemmuna:
Vestur Norður Austur Suður
pass pass 1L pass
ÍH pass 2L pass
4T pass 4S pass
6L pass pass pass
Óvenju sjúskað hjá Jóni að segja
ekki fimm hjörtu því alslemma er
alls ekki útilokuð.
Eins og spilið liggur þá fékk Valur
alla slagina og 12 impa.
Frá úrslitaleiknum. Jón Baldursson (lengst til vinstri) og Valur Sigurðsson
í þungum þönkum eru að spila við Runólf Pálsson (fyrir miðju) og Hauk
Ingason. DV-mynd Sveinn Þormóðsson
Bikarmeistarar BSI 1987. Talið frá vinstri: Aðalsteinn Jörgensen, Ásgeir
Ásbjörnsson, Jón Baldursson, Ragnar Magnússon og Valur Sigurðsson. Á
myndina vantar Sigurð Sverrisson. DV-mynd Sveinn Þormóðsson
VORUÞROUN
• •
ATAK
IÐNTÆKNISTOFNUNAR ISLANDS
Vöruþróunarátaki Iðntæknistofnunar íslands er ætlað að efla
nýsköpun í atvinnulífinu. Unnið verður að afmörkuðu verkefni og er
megináhersla lögð á að þátttakendur markaðsfæri afurð í verkefnislok.
Verkefnið er styrkt af Iðnaðarráðuneytinu og Iðnlánasjóði.
Kynningarfundur um verkefnið verður haldinn 22. september næstkomandi
kl. 15.00 hjá Iðntæknistofnun íslands, Keldnaholti.
Fyrirtækjum og einstaklingum sem óska eftir að gerast þátttakendur
í verkefninu er bent á að hafa samband við stjórnanda þess, Karl Friðriksson,
í síma (91) 687000.
Umsóknareyðublöð fást hjá Iðntæknistofnun íslands og öðrum aðilum
verkefnisins. Einnig munu þau liggja frammi á kynningarfundinum.
Umsóknarfrestur rennur út 15. október 1987.
Í1 Iðntæknistofnun íslands
Keldnaholli, 112 Reykjavík. Sími (91) 687000.
í verkefnisstjórn sitja fulltrúar
Félags íslenskra iðnrekenda,
Landssambands iðnaðarmanna,
Iðnlánasjóðs,
Alþýðusambands íslands og
Iðntæknistofnunar íslands.
Frá Bridsfélagi Hafnarfjarð-
ar
Sl. mánudag hófst vetrarstarfið og
var spilaður eins kvölds tvímenning-
ur í einum sextán para riðli. Orslit
urðu sem hér segir:
sæti stig
1.-2. Ólafur Ingimundarson -
Sverrir Jónsson 246
1.-2. Albert Þorsteinsson -
Óskar Karlsson 246
3. Guðlaugur Ellertsson -
Viktor Björnsson 237
4. Kristófer Magnússon -
Þórarinn Sófusson 229
5.-8. Bjarnar Ingimarsson -
Þröstur Sveinsson 228
5.-8. Dröfn Guðmundsdóttir -
Erla Siguijónsdóttir 228
5.-8. Björn Svavarsson -
Ólafur Torfason 228
Spilaáætlun til áramóta lítur þann-
ig út:
Eins kvölds tvímenningur
Mitchell tvímenningur
Mitchell tvímenningur
Mitchell tvímenningur
Aðaltvimenningur
Aðaltvímenningur
Aðaltvímenningur
Sveitakeppni
21.09.
28.09.
05.10.
12.10.
19.10.
26.10.
02.11.
09.11.
16.11.
23.11.
30.11.
07.12.
14.12. Litlu j ólin
27.12. Jólamót
Nk. mánudag verður sami háttur
hafður á spilamennskunni og síðast
og eru spilarar hvattir til að fjöl-
menna. Sérstök ástæða er til að
benda „heimaspilurum" á að nota
þetta tækifæri til að reyna sig við
reynda keppnisspilara.
Spilað verður í íþróttahúsinu v/
Strandgötu og byrjar spilamennsk-
an að venju kl. 19.30.
Bridsfélag Breiðholts
Þriðjudaginn 15. sept. var spilaður
eins kvölds tvímenningur í tveimur
10 para riðlum. Röð efstu para varð
þessi:
A-riðill.
stig
Guðni Hallgrimsson -
Hallgrímur Hallgrimsson 126
Guðlaugur Sveinsson -
Magnús Sverrisson 125
Tryggvi Tryggvason -
Leifur Kristjánsson 125
Árni Loftsson -
Sveinn Eiriksson 116
B-riðUl.
Valdimar Eliasson -
Halldór Magnússon 133
Anton R. Gunnarsson -
Jörundur Þórðarson 131
Jón I. Ragnarsson -
Sæmundur Árnason 126
Jóhann Stefánsson -
Guðmundur Baldursson 115
Næsta þriðjudag verður spilaður
eins kvölds tvímenningur en þriðju-
daginn 29. sept. hefst þriggja kvölda
hausttvímenningur. Spilað er í
Gerðubergi kl. 19.30 stundvíslega.
Keppnisstjóri er Hermann Lárus-
son.