Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Page 1
21
Fjórir ÁSAR ekkl með í Osló!
• Pétur Pétursson, markaskorarinn rnikli, •Ásgeir Sigurvinsson á við meiðsli að •Amór Guðjohnsen á við meiðsii aö • Pétur Ormslev. Verður hann orðinn góð-
er í brúðkaupsferð. striða. stríða. ur fyrir leiklnn i Ostó?
Petur Ormslev varð að
fara í sprautumeðferð
- óvíst hvort hann leikur með gegn Norðmönnum í Osló
1 Heimir Karlsson.
Heimir og|
skotskór
kans eru
eftirsóttir
Knattspymukappinn
Heimir Karlsson, sem skor-
aði 16 mörk fyrir ÍR-inga í
2. deildar keppninni í sumar,
er eftirsóttur starfskraftur á
knattspymuvellinum. Suður-
nesjafélögin Víðir, sem féll I
niður í 2. deild og 3. deildar
liðin Grindavík og Reynir írá
Sandgerði, hafa áhuga á að
fá hann sem leikmann og
þjálfara . fyrir næsta keppnis-
tímabil.
Víkingar em einnig á hött-
unum eftir Heimi og þá hefur I
hann einnig verið orðaður
við Val., Fleiri félög vilja fá
þennan marksækna leik-
mann til sin og þá að hann |
komi með skotskóna vel
pússaða til leiks.
-sos
Pétur Ormslev á enn við meiðsli að
stríða í hæl og getur svo farið að hann
leiki ekki með íslendingum gegn
Norðmönnum í Osló á miðvikudags-
kvöldið. Pétur stóðst þó læknisskoðun
á laugardaginn. Þá fór hann í sprautu-
meðferð og nudd. Hann hélt með
landsliðinu til Noregs í gær. „Það er
ekki ljóst enn hvort Pétur verður til-
búinn í slaginn. Ég tel meiri líkur á
því að hann geti leikið í Osló,“ sagði
Sigurjón Sigurðsson, læknir íslenska
landsliðsins.
Ef svo fer að Pétur geti ekki leikið
er íslenska landsliðið búið að missa
báða leikmennina sem skomðu í sigur-
leiknum gegn Norðmönnum á dögun-
um. Pétur Ormslev og Pétur Pétursson
sem er í brúðkaupsferð. Aður höfðu
tveir „ásar“ verið teknir frá Sigi Held
landsliðsþjálfara; Ásgeir Sigurvinsson
og Amór Guðjohnsen sem em báðir
meiddir.
Um tíma á laugardaginn var óvíst
hvort Pétur Ormslev færi með lands-
liðinu til Noregs. Áður en Pétur fór í
læknisskoðun var KSÍ búið að hafa
samband við Halldór Áskelsson úr Þór
og segja honum að vera klárum að
taka stöðu Pétur í landsliðshópnum.
Til þess kom ekki og fór Halldór með
ólvmpíulandsliðinu til Frakklands í
gær.
• Sjá nánar um slaginn gegn
Norðmönnum á bls. 22 og 23.
-SOS
Tony Knapp
var rekinn
frá Brann
- fékk reisupassann í gær
Ellert ánægður
með Neckar-
leikvanginn
- þar sem úrslrtaleikur EM fer fram
Tony Knapp, fyrrum landsliðsþjálf-
ari Islendinga í knattspymu, var í
gærkvöldi rekinn frá norska fyrstu
deildar liðinu Brann.
Mátti hann taka pokann á bakið
þrátt fyrir að Björgvinjar-liðinu tækist
að komast í úrslit norsku bikarkeppn-
innar á laugardag.
Rót uppsagnarinnar hggur i blaða-
fári sem Knapp kom af stað.
Eins og alþjóð veit leikur Bjami
Sigurðsson, landsliðsmarkvörður með
Brarm. í spjalli við DV í gærkvöldi
kvaðst hann kannast við að Knapp
hefði verið rekinn frá félagi sínu en
að öðm leyti vildi hann ekki tjá sig
um málið.
-sjá nánar um blaðafárið á
blaðsíðu 22.
-JÖG
„Við erum mjög ánægðir æm við
höfum séð hér í Stuttgart það
hafa verið unnan endurbætur á
Neckar-leikvellinum sem við sætt-
um okkur við,“ sagði Ellert B.
Schram, formaður KSÍ og formað-
ur nefndar innan UEFA, sem sér
um Evrópukeppnina í knatt-
spymu. Ellert sagði þetta í viðtali
við fréttamaxm Reuter í Stuttgart
Ellert og aðrir nefndarmenn
skoðuðu leikvöllinn í Stuttgart á
laugardaginn og sáu Stuttgart
leika gegn Karlsruhe.
Úrslitaleikur Evrópukeppni
meistaraliða fer fram á vellinum.
Ellert sagði að hann hafi einnig
verið ánægður með aðstæður á
Meinau-leikvellinum í Strasbourg,
þar sem úrslitaleikur Evrópu-
keppni bikarhafe fer fram.
UEFA hefúr tekið mjög strangt
á að vellir þeir sem úrslitaleiklir
fara fram á séu mjög truastir.
Auknar kröfúr hafa verið gerðar
til leikvalla eftir harmleikinn sem
varð á Heysel-leikvanginum í
Brúsael 1985. Þá létust 39 áhorf-
endur eftir ólæti sem brutust út á
leik Juventus og Liverpool. -SOS