Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
23
pv_________________________________________________íþróttir
íslendingar leika gegn Norðmönnum í Osló:
„Ég er ekki atvinnumaður‘á
- segir Bjami Sigurðsson, landsliðsmarkvörður í knattspymu, sem er jafnvel á heimleið fa Noregi
„Mér líst þrælvel á leikinn í Osló.
Það verður bara gaman af þessu.
Norðmenn eru vitanlega bjartsýnir og
ég hef það á tilfinningunni að þeir líti
á það sem hreint formsatriði að mæta
okkur. Ef við leikum hins vegar fast
þá brotna þeir undan álaginu. Veik-
leiki norskra knattspymumanna er sá
að þeir brotna niður sé þeim svarað
af hörku.“
Þetta segir Bjami Sigurðsson, lands-
liðsmarkvörður íslands í DV-viðtali.
Hann mun eins og alþjóð veit standa
undir markslá íslenska knattspymu-
landsliðsins á Ulleváll-leikvanginum í
Osló á miðvikudagskvöld.
Bjami Sigurðsson mun gerþekkja
mótherja sína í það sinnið. Hann hefur
nefiiilega leikið í Noregi um nokkurt
skeið og staðið sig með mikilli prýði.
Bjami spilar með Björgvinjarliðinu
Brann en það er um miðja fyrstu deild
þegar fáar umferðir em óleiknar.
Af mörgum talinn einn besti
markvörðurinn í Noregi
Bjami er af mörgum talinn einn
besti markvörðurinn í norsku knatt-
spymunni. Hann hefur því aukið
hróður íslenska boltans með ágætri
framgöngu sinni.
„Blessaður vertu, ég er ekki atvinnu-
maður,“ segir Bjami aðspurður um
stóm fjárhæðimar í knattspymunni.
„Það gæti enginn dregið fram lífið
af þeim aurum sem maður fær fyrir
að spila fótbolta hér í Noregi. Því er
þó ekki að neita að við fáum bónus-
greiðslur og viss hlunnindi fyrir
sparkið."
„íslenskir knattspyrnumenn
eru frjálsari“
- Er norski boltinn betri en sá ís-
lenski að þínum dómi?
„Knattspyman hér í Noregi er miklu
meira bundin í leikkerfi en heima á
Islandi. íslenskir knattspymumenn
em frjálsari og leyfa sér að brydda upp
á einu og öðm sem ekki sést í norska
boltanum. Sjálfur hef ég þá trú að ís-
lenska knattspyman sé skemmtilegri
en sú norska fyrir bragðið.
Það má þó ekki horfa fram hjá því
að það er meiri breidd hér en heima.
Toppliðin þar myndu þó án efa vera á
sama stað hér í Noregi - á toppnum."
„Það er mögulegt að ég leiki
á Islandi næsta sumar“
- Nú hefúr sá kvittur komið upp að
• Bjami Sigurðsson, landsliðsmarkvörður íslands, leikur jafnvel á íslandi
næsta sumar. Hann hefur verið orðaður við Fram sem arftaki Friðriks Friðriks-
sonar sem er á leið til náms í Danmörku.
Norska liðið
■ J| m m
styrkisf
Norska knattspymuiandsliðið, sama hlutverk í norska landslið-
sem mætir því íslenska í Osló á inu.
miðvikudag, verður mun sterkara Run Bradaeth er einnig feikilega
en það sem glímdi hér á Laugar- sterkur og einn lykilmanna í liði
dalsvellinum fyrir skemmstu. Briraarborgara.
I norska hópinn hafa bæst þrír Tom Sundby er fraraaækinn
snjallir menn, þeir Andres Giske, miðjumaður, mjög beittur í sókn
Númberg, Rune Brateeth, Werder og gríðarlega markheppinn. Hann
Bremen, og Tom Sundby, Herak- hefur skorað grimmt í Grikklandi
les. Allir em þesair kappar fHefldir og var þar á meðal markahæatu
atvhmumenn í íþróttinni og leika manna á síðasta leiktímabih.
atór hlutverk í sínum liðum. Það er þvi ljóst að róður okkar
Andres Giske hefur verið fyrir- pilta verður þungxu í Noregi á
liði Númberg um nokkurt skeið miðvikudag enda krefjast heima-
og er hann kjölfestan í vöm þesa menn sigure.
liðs. Þá hefúr hann einnig leikið -JÖ6
þú hyggist jafiivel spila hér heima á
næsta sumri. Er eitthvað hæft í þeirri
hviksögu?
„Það er mögulegt að ég leiki á ís-
landi næsta sumar - því er ekki að
neita. Ef af verður þá getur margt
ráðið endanlegri ákvörðun minni hvað
val á félagsliði varðar. Ég verð vitan-
lega að hugsa um hag fjölskyldunnar
og eitthvað verður maður sjálfur að
hafa fyrir stafni. Allt ræðst þetta af
þvi að koma sér sem best fyrir.“
- Nú sagðist þú eitt sinn ætla að enda
ferilinn á heimaslóðum í Keflavík...
„Ég á að minnsta kosti tíu ár eftir
í knattspymunni."
Maður verður að horfa fram
hjá verðlaginu
- Hvemig kannt þú við þig í Noregi?
„Ég kann ágætlega við mig hér í
Noregi. Maður verður þó að horfa
fram hjá verðlaginu sem slær hrein-
lega allt út. Þá rignir býsnin öll hér í
Bergen en maður hefur svo sem blotn-
að heima á íslandi."
Gunni Gísla er á meðal bestu
manna í Mossliðinu
- Nú leikur Gunnar Gislason með
Moss sem enn er efst í norsku deild-
inni. Hefúr hann verið áberandi með
félaginu í sumar?
„Já, Gunni Gísla hefúr staðið sig vel
með Moss og er þar á meðal bestu
manna. Að mínum dómi er Moss með
sk'emmtilegasta liðið. Þeir eru ekki
jafhbundnir leikkerfum og önnur lið
hér í Noregi. Moss hefur alla burði til
að vinna landsmótið þótt vitanlega sé
ómögulegt að spá fyrir um slíkt. Það
verður ekkert ljóst í þeim efhum fyrr
en upp verður staðið í haust.“
Við gerum okkar besta
- Á ekki að leggja Norðmenn að velli
í Osló á miðvikudagskvöld?
„Við gerum okkar besta. Ef við leik-
um af grimmd og gefum ekkert eftir
þá munu þeir eiga undir högg að
sækja. Það er á hreinu."
-JÖG
Brann í úrslit
í bikamum
Brann, lið Bjama Sigurðssonar í Noregi, komst í úrslit norsku
bikarkeppninnar um helgina. Vann félagið HamKam á heimavelli
sfnum í Björgvin með tveimur mörkum gegn einu.
„Við höfðum það af að komast í úrelitin," sagði Bjarni í spjalli við
DV í gærkvöldi.
„Þetta var mikill baráttuleikur og þá sérstaklega í síðari hálfleik
en við náðum sem betur fer að vinna,“ sagði hann einnig.
Úrelitaleikurinn fer Jfram á Ullevall-leikvanginum í Osló þann 25.
október næstkomandi. Á sama velli og landsleikur Islendinga og
Norðmanna fer fram nú á miðvikudagskvöld
Mótherjar Björgvinjarpilta verða Bryne en þeir lögðu Rosenborg
að vefli í gær með þremur mörkum gegn tveimur. Liðið var 0-2 undir
í hálfleik en kom tvíeflt inn á eftir hléð og náði að knýja fram sigur
með undraverðum hætti.
-JÖG
VOGIN SEM BOGAR SIG SJÁLF
ISHIDA CCW-S-210-WP
samvalsvogin borgar fyrir sig
sjálf:
Hún er nákvæm, skammtar
meö 0,5g nákvæmni.
Hún er fljót, skammtar í allt aö
90 poka á mínútu.
Hún er 100% ryk- og
vatnsheld.
Hún er örugg og auðveld í
notkun.
Hún er svotil viðhaldsfrí.
Ef þú pakkar í 1 kg
pakkningar og yfirvigtin er aö
meðaltali lOg á poka, þá gerir
þaö 10 kg á tonn. Sé pakkað
að meöaltali 5 tonnum á dag 5
daga vikunnar þá er yfirvigtin
1 tonn á mánuði.
Þú ættir að reikna út
hversu mikið þú gætir
sparað með minni yfirvigt,
og svo færðu flýtinn og
hagræðinguna í kaupbæti.
llilSÚM lif*.#
KRÓKHÁLS 6 SÍMI 671900®^