Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Page 12
32
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
Iþróttir
• Alfreö Gíslason
skoraði átta mörk fyrir Essen.
Siggi fór hamför-
um og gerði helm-
ing marka Lemgo
- skoraði 11 mörk í glæstum sigri Lemgo á Dortmund
Sigurður Bjömsscm, DV, V-Þýskalandi;
íslensku handboltakappamir í V-
Þýskalandi stóðu sig afar vel um
helgina.
Afrek Sigurðar Sveinssonar, Lemgo,
ber þar þó einna hæst. Fór hann ham-
förum með liði sínu, skoraði 11 mörk
eða helming marka þess. Lemgo atti í
þetta sinn kappi við Dortmund og sigr-
aði vandræðalítið, 22-14.
Alfreð skoraði átta mörk
Alfreð Gíslason fór á kostum með
félagi sínu Tusem Essen um helgina.
Liðið vann Göppingen naumlega á
útivelli, 20-23, og skoraði Alfreð 8
mörk. Var hann hreinlega óstöðvandi
þrátt fyrir að vera tekinn úr umferð
allan leiktímann. Þessi sigur var afar.
kærkominn Essen-liðinu en það ver
meistaratitil sinn á þessu keppnistíma-
bili. Félagið náði sér ekki á strik í
fyrstu umferðinni en nú virðist allt
vera að ganga saman. Félagið er nú í
þriðja sæti, samhliða Dusseldorf, með
3 stig eftir tvær umferðir.
Palli Ólafs átti mjög góðan dag
Páll Ólafsson lék mjög vel nú um
helgina með liði sínu, Dusseldorf. Atti
það kappi við Númherg á útivelli og
sigraði, 21-25.
Palli skoraði 5 mörk og barðist sem
ljón í sókn og vöm. Lék hann vinstra
megin fyrir utan í sókninni og einnig
á miðjunni.
„Það var mjög ánægjulegt að vinna
• Páll Ólafsson - skoraði fimm mörk
fyrir Dusseldorf.
Monaco
hreiðrar
um sig á
toppnum í
Frakklandi
• Sigurður Sveinsson - skoraði
ellefu mörk fyrir Lemgo.
sigur á útivelh,“ sagði Páll í spjalli
við DV eftir leikinn.
Ef Dússeldorf leikur áfram með þeim
hætti sem það gerði nú um helgina
getur farið svo að það blandi sér af
alvöm í toppbaráttuna. Diisseldorf er
nú í þriðja sæti eins og óður sagði.
Gummersbach vann stórt
Gummersbach, félag Kristjáns Ara-
sonar, vann Massenheim um helgina,
19-15.
Gummersbach er nú í efsta sæti,
samhliða Grosswallstadt, með fullt hús
stiga eftir tvær umferðir.
JÍÖG
7 'iVi
Monaco, toppliðið í Frakklandi með
Englendingana Glenn Hoddle og
Mark Hateley í fylkingarbrjósti, gerði
markalaust jafntefli um helgina. Fé-
lagið mætti Toulon á útivelli.
Litið bar til tíðinda í leiknum og
átti Monaco frémur undir högg að
sækja en hitt.
Fyrra árs meistarar, Bordeaux,
gerðu einnig jafntefli.
Þeir kepptu hins vegar við Cannes
og gerðu bæði lið þrjú mörk í hörku-
skemmtilegri og opinni viðureign.
Þess má geta að íslenska ólympíulið-
ið etur einmitt kappi við Bordeaux á
miðvikudag óg verður sú viðureign
án efa skemmtileg. Franska liðið spilar
bráðskemmtilega knattspymu og
leggja leikmenn þess jafnan mestan
þunga á sóknina.
Þá tapaði stjömuliðið Marseille, 0-2
úti fyrir Metz og Laval vann Paris St.
Germain, 2-0.
Auxerre og Lens em neðst í fyrstu
deildinni frönsku með 8 stig en næst
toppliðinu, Monaco, sem hefur 16 stig,
koma Niort og Saint-Etienne með 13.
Ellefu umferðir hafa verið leiknar
og er ótrúlega skammt bil á milli
neðstu og efetu lióa. -JÖG
FH-ingar tryggðu sér Reykjanesmeistaratitilinn í handknattleik í
gær þegar þeir lögðu Stjömuna úr Garðabæ að velli, 31-27, í íþrótta-
húsinu í Hafiiarfirði. FH-ingar eru með imgt og skemmtilegt Uð sem
á eftir að gera góða hluti í vetur undir stjóm Viggós Sigurðssonar.
SOS/DV-mynd Gun
Enn tapar Barcelona a heimavelli
Leikmenn Real Madrid héldu upp-
teknum hætti í spánsku 1. deildar
keppninni í gærkvöldi. Þeir unnu
þá ömggan sigur, 3-0, yfir Cadiz í
Madrid og hafa skorað 21 mark
gegn einu. Gonzales, Gordillo og
Hugo Sanches, sem misnotaði víta-
spymu í leiknum, skomðu mörk-
in.
Barcelona mátti þola tap á
heimavelli, 0-1, gegn Valencia og
er félagið nú eitt af neðstu liðunum
í deildinni.
Áhangendur Barcelona hrópuðu
að Nunez, forseta Barcelona, eftir
leikinn. Nunez kallaði á fund með
Terry Venebles þjálfara eftir leik-
inn.
Real Madrid er efet á Spáni með
átta stig eftir fjóra leiki. Valencia
er með sjö stig. Bilbao og Cadiz
sex stig.
-sos