Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Síða 14
34
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
Iþróttir
• lan Rush, markaskor-
arinn mikli frá Liverpool.
Spurningin er hvort hann
fær að leika lausum hala
á Ítalíu? Svariö er nei! ít-
alir eru frægir fyrir fastan
varnarleik. Þeir kalla ekki
allt ömmu sína í þeim
efnum.
Hvað segir Johan CruyfF um
nýju sfjömumar á Ítalíu?
„lan Rush fær
yfirfrakka á
á sig í öllum
rimmum
Kristján Bemburg, DV, Belgíu;
Nýlega var Johan Cruyff, þjálfari
Ajax í Hollandi, heimsóttur af nokkr-
um ítölskum blaðamönnum og var
hann beðinn að segja álit sitt á hinum
nýjum stjömum í ítölsku knattspym-
unni. Cruyff var á sínum knattspymu-
ferli talinn einn besti knattspymu-
maður í heimi. Hann þekkir vel til
þeirra leikmanna sem keyptir vora til
ítalskra liða fyrir þetta keppnistíma-
bil. Spumingar, sem lagðar vora fyrir
hann, fara hér á eftir:
- Hver er að þínu áliti besti knatt-
spymumaður í heimi í dag?
„Það er aðeins einn heimsklassaleik-
•íaður sem stendur og það er Mara-
dona. Það munu líða nokkur ár
þangað til breyting varður þar á.“
Um hina nýju leikmenn í ítölsku
knattspymunni sagði Crayff eftirfar-
andi:
Ruud Gullit, AC Milan.
„Margir era í vafa um einbeitingu
hans sem atvinnuknattspymumanns.
En ég get fullvissað ykkur um það að
hann gerir allt fyrir knattspymuna þó
að hann sé með skrítna hárgreiðslu
og hugsi stundum um annað en knatt-
spymu. Það verður erfitt fyrir þjálfara
AC Milan að finna rétta stöðu fyrir
Gullit á leikvellinum því að hann get-
ur leikið vel sem aftasti leikmaður og
.ekki síður sem fremsti leikmaður.
Hann getur komið að gagni alls staðar
á vellinum.“
Van Basten, AC Milan
„Það verða ekki miklir erfiðleikar
að finna rétta stöðuna fyrir Van Bast-
en. Hann er miðjumaður og ekkert
annað. Ef þú vilt líkja honum við ít-
alskan toppknattspymumann mundi
ég segja að Robert Betega sé svipuð
týpa. Þeir hafa sömu tæknina, sömu
lm
Hrubesch reklnn
Horst Hrabesch, fyrrum iands-
liðsmaður V-Þýskalands, sem lék
með Hamburger á árum áður,
hefur verið rekinn sem þjálfari
Essen. Félaginu hefur gengið illa
í 2. deildar keppninni í V-Þýska-
landi að undaufömu. Þess má
geta til gamans að Hrubesch var
hetja í Essen sl. keppnistímabil
þegar hann kom Essen upp úr
áhugamannadeildinni.
Heim til Belgíu
Rene Vandereycken, fyrrum
leikmaður með Anderlecht, er
kominn aftur til Belgíu eftir að
hafa leikið með Blau-Weiss Berl-
in í V-Þýskalandi og Waalwýk í
Hollandi. Þessi fyrrmn landsliðs-
maður Belgíu hefur skrifað undir
samning við AA Gent.
• Johan Cruyff,
knattspyrnukappinn
kunni.
dirfskuna í loftinu og hann er ef til
vill aðeins sneggri. En þó mun það
taka hann eitt ár að falla inn í ítalska
fótboltann."
Enzo Scifo, Inter Milan.
„Hann hefur mikið að bera sem
knattspymumaður. Hann er stjóm-
andi innan vallar, eins og t.d. Rivera
:
1 Eœo Scifo sést hér í leik með Inter Milano gegn Pescara. Hann er hér (t.v.) aö kljást við Brasilíumanninn Junior.
Simamynd Reuter/Lombardi
var á sínum tíma. Þeir era svipaðir
knattspymumenn. Scifo á heima í ít-
ölsku knattspymunni og mun kunna
mun betur við sig á Ítalíu en í belgísku
deildinni."
lan Rush, Juventus
„Ég spái hinum mikla Walesmanni
miklum erfiðleikum á Ítalíu. Leikstíll
ítala er mjög sérstakur. Rush þarf í
hverri viku og í hveijum leik að reikna
með að fá hina sterku og ströngu
manngæslu á sig. Svo er það einnig
staða miðvarðar sem tekur við þegar
hann sleppur úr gæslunni. Hann verð-
ur ekki fyrsti breski leikmaðurinn sem
ekki mun finna sig á Ítalíu."
- Era einhverjir ungir og efhilegir
leikmenn að koma upp í Hollandi sem
koma til með að leika á Ítalíu í fram-
tíðinni?
„Það verður ekki langt að bíða þess
að Rijkaard hjá Ajax verði númer eitt
á Ítalíu. En þó er einn leikmaður sem
er eitt mesta markmannsefhi í heimi
þessa stundina en þar er Stanley
Menzo, markmaður Ajax.
Þess má geta að Stanley Menzo lék
í marki hollenska ólympíuliðsins sem
keppti gegn íslendingum á Laugar-
dalsvelli en leiknum lyktaði með
jafntefli, 2-2. Guðmundur Torfason
skoraði bæði mörk íslenska liðsins úr
vítaspymum.
-JKS
Ferguson undir smásjánni
Alex Ferguson, framkvæmda-
stjóri Man. Utd, er nú undir
smásjánni hjá aganefnd enska
knattspyrnusamhandsins. Hann
hellti sér yfir dómarann John
Martin á dögunum eftir leik Un-
ited og Coventry. Ferguaon hefur
oft sýnt dómurum lítisvirðingu. í
fyrra var hann sektaður um 500
pund eftir að hafe ráðiat að dóm-
ara, Þá var hann frægur dómara-
nöldrari í Skotlandi þegar hann
var með Aberdeen.
• Hansi MUIIer.
Miillergaf einum
lúöurinn
Hansi Miiller. fymim leikmað-
ur Stuttgart og AC Milano, gaf
einum vegfkranda í Tíról i Aust-
urríki vel útilátið kjaftshögg á
dögunum. Múller, sem leikur raeð
Tíról, var á göngu á götu úti þeg*
ar tveir menn hrópuðu að honura
og voru með dólgslæti. Múller
svaraði „að sjómannasið", eina
og Árni Johnsen segir, og gaf
öðrum mannanna á lúðurinn.
Hann kærði aíðan atburðinn til
lögreglunnar. Þegar dæmt var í
málinu var kæru á hendur honum
vegna kjaftshöggsins vísað frá.
Dómarinn sagði að Möller hefði
verið að veria sig.
-SOS