Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Page 15
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987. 35 Iþróttir Fær Bobby Robson leikjum frestað? Bobfcy Robson, landsliðsein- valdur Englands, hefur óskað eftir því við enska knatt- spymusambandið að nokkrum leikjum í ensku 1. deildar keppninni 7. nóvember verði frestað. Englendingar eiga að leika gegn Júgóslövum í Belgrad fjórum dögum seinna í Evrópukeppni landsliða. Robson vill að allir leikmenn sínir verði heilir og óþreyttir þegar haldið verður til Júgó- slavíu. Robson segir að tveir mikilvægir leikir fari fram 7. nóvember þar sem margir en- skir landsliðsmenn verði í eldlínunni. Það eru leikir Ars- enal-Chelsea og Liverpool- Nott. Forest. Þess má geta að Everton situr hjá þennan dag. -sos • Ben Johnson sést hér bera sigurorö af Carli Lewis (t.v.) í 100 m hlaupi á heimsmeistaramótinu i Róm. Símamynd Reuter/Nick Didlick , ,GuHverðlaunahafar í Róm hafa tekið lyf ‘ - segir Carl Lewis. Cari og þjálfari Bens Johnson í hár saman Mikil ólga er nú komin upp í sam- skiptum þeirra Carls Lewis og Bens Jolmson sem að flestum eru taldir fremstu spretthlauparar heims. Yfír- lýsingar hafa gengið á báða bóga undanfama daga en deilumar hófust fyrir alvöru þegar Carl Lewis birtist á skjánum í sjónvarpsviðtali á meðan á heimsmeistaramótinu í Róm stóð. Carl Lewis sagði þar orðrétt: „Ég segi það að það em gullverðlaunahaf- ar á þessu heimsmeistaramóti sem em án efa á lyfjum." Þjálfarinn brjálaður Þegar þetta birtist í ítalska sjón- varpinu spratt þjálfari Bens Johnson, Charlie Francis, upp og varð reiður mjög. Taldi hann spjótunum meðal annars beint gegn Ben Johnson. Francis þessi sagði þá í viðtali í dag- blaði: „Sumt fólk verður alltaf að finna sér til afsakanir ef það tapar. Við vís- um þessum ummælum Carls algerlega á bug. Ben Johnson er mjög andvígur lyfjanotkun. Hann hefur aldrei tekið ólögleg lyf og mun aldrei gera það.“ „Ástandið hefur aldrei verið verra“ Carl Lewis sagði ennfremur í um- ræddu sjónvarpsviðtali: „Ástandið í lyfjamálunum hefur aldrei verið verra. Ándrúmsloftið á heimsmeistaramót- inu hér í Róm er lævi blandið. Fullt af fólki hefur skotið upp kollinum og' hleypur ótrúlega vel. Ég held að þetta fólk nái ekki þessum afrekum með því að neyta engra lyfja." Og enn þyngdist brúnin á þjálfara Johnsons, en báðir em þeir frá Kanada: „Ben Johnson var tveimur metrum á undan Carl Lewis á síðasta ári en núna munaði aðeins einum metra á þeim í 100 metra hlaupinu. Lewis hefúr því bætt sig en það segir enginn neitt um hann. Bandaríkja- mennimir em orðnir snarvitlausir vegna þess að þeir ná ekki góðum árangri." -SK „Égvil leika í Englandi“ - segir Olaf Thon sem V-þýski landsliðsmaðurinn Olaf Thon lét hafa eftir sér í blaðaviðtali nú nýverið að hann hygðist ganga til liðs við knattspymufélag á Bretlands- eyjum í nánustu framtíð. „Ég vil leika í Englandi og stefhi á að láta þann draum rætast,“ sagði Thon í spjalli við blaðamann. Thon vakti mikla athygli í Englandi fyrir skemmstu er hann lagði drög að sigri þjóðar sinnar á Englendingum. Hófst í kjölfarið nokkurt kapphlaup milli stærstu félaganna þar í landi, Liverpool, Tottenham og Man. United, sem öll vilja virkja krafta hans. Thon ku vera falur á 90 milljónir leikur með Schalke króna en hann leikur með Schalke í Bundesligunni v-þýsku. Hann lifir ekki við þröngan kost, á þrjá bíla, Porsche, BMW, og Mercedes Benz. Þar fyrir utan er vikukaupið í hærra lagi - Thon fær 180 þúsund vikulega fyrir sparkið. Hann segist þó reiðubúinn að minnka við sig fái hann fysilegt tilboð frá ensku liði: „Maður ber meira úr býtum hér en í Englandi, það er alveg ljóst. Mér lík- ar hins vegar með hvaða hætti knatt- spyman er leikin í Bretlandi," sagði Thon að lokum í spjallinu. -JÖG • Olaf Thon - leikmaðurinn snjalli. DAGHEIMILIÐ EFRIHLÍÐ V/STIGAHLÍÐ óskar að ráða fóstrur til starfa nú þegar, einnig vantar starfsmann til afleysinga í 50% starf. Upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 83560. AÐALFUNDUR ALMENNS LÍFEYRISSJÓÐS IÐNAÐARMANNA verður haldinn þriðjudaginn 13. október nk. kl. 17.00 í fundarsal Landssambands iðnaðarmanna, Hallveig- arstíg 1, Reykjavík. DAGSKRÁ: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin ^JI FÓSTRUR - STARFSFÓLK Okkur vantar barngott og hresst fólk til starfa sem fyrst. Góð vinnuaðstaða og gott fólk er á staðnum. Upplýsingar gefur forstöðukona Kirkjubóls í síma 656322 og 656436. Félagsmálaráð Garðabæjar. !H REYKJKMIKURBORG Jícuuan, Stödun Dagvist barna auglýsir stöðu forstöðumanns í leikskólanum Árborg við Hlaðbæ. Fóstrur óskast til starfa á dagheimilinu Efri- hlíð við Stigahlíð. Upplýsingargefa umsjónarfóstrurá skrifstofu Dagvist- ar barna í síma 27277. ffl REYKJKMfÍKURBORG 1*1 2 22 2 ----:--------------- 2 22 2 Acuucin Sfödívi MF Droplaugarstaðir, heimili aldraðra, Snorrabraut 58. Starfsfólk óskast í eftirtalin störf: Starfsstúlkur í eld- hús, 100% störf. Á hjúkrunardeild við aðhlynningu í 100% störf og hlutastörf. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 25811 kl. 9-12 f.h. virka daga. RH REYKJMJÍKURBORG m £ JJJJ £j __________________ £ MP JLcuc&vi Sfödun Staða bókavarðar við Borgarbókasafn Reykjavíkur er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 25. september. Upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Borgarbókasafns í síma 27155. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á eyðublöðum sem þar fást. REYKJMJÍKURBORG Acuctevi Sfödun Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar auglýsir: Lausar stöður félagsráðgjafa á hverfaskrifstofum fjöl- skyldudeildar í Vonarstræti 4 og Síðumúla 34. Upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar í síma 25500. Umsóknarfrestur er til 2. október. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð, á eyðublöðum sem þar fást.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.