Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1987, Síða 16
36
MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1987.
Iþróttir
r>v
SJö leikmenn voru bókaðir!
- þegar Everton lagði Man. Utd að velli á Goodison Park, 2-1
Q.P.R. enn efst, þráttfyrir tap.
Þrátt fyrir 2-0 tap fyrir Oxford er
Q.P.R. enn efst með 19 stig, en Tott-
enham sem sigraði West Ham 1-0 ó
útivelli er í öðru sæti með 17 stig.
Manchester United tapaði sínum
fyrsta leik í haust, en Charlton vann
sinn fyrsta leik. I 2. deild er Bradford
efst með 19 stig en Crystal Palace
er með 18 stig. Hull, eina liðið sem
ekki hefur tapað í 2. deild er í þriðja
sæti með 17 stig.
Nýju leikmennirnir skópu sig-
urinn
Loksins eftir sjö leiki án taps lá
Q.P.R. á Manor Ground í Oxford.
Maurice Evans framkvæmdarstjóri
Oxford keypti tvo nýja leikmenn í
vikunni, þá: David Bardsley og Ric-
hard Hill frá Watford og áttu þeir
þátt í mörkunum. Bardsley átti send-
ingu á Hill sem skoraði fyrra mark
Oxford með kollspyrnu á 15. mínútu.
*,Hill spilaði Rav Hougton fríann með
nettu þríhyrningsspili á 40. mínútu
og Houghton skilaði knettinum í
markið hjá Q.P.R. Eina almennilega
tækifæri Q.P.R. átti Dean Coney, er
hann skaut í stöng í síðari hálfleik.
Richard þennann Hill keypti Wat-
ford frá Northampton í sumar og
spilaði hann einn leik með Watford
fyrr í sumar. Nú var hann betri en
enginn og eru kaupin á honum strax
farin að bera arð. Q.P.R. vann fimm
leiki í röð fyrir þennann tapleik, en
^hefur þrátt fyrir tapið, tveggja stiga
forystu á næsta lið Tottenham, sem
Úrslit
1. deild
Arsenal-Wimbledon 3-0
Charlton-Luton 1-0
Chelsea-Norwich 1-0
Coventry-Nott. Forest 0-3
Derby-Sheff. Wed. 2-2
Everton-Man. Utd 2-1
Oxford-QPR 2-0
W atford-Portsmouth 0-0
West Ham-Tottenham 0-1
% 2. deild
Birmingham-Shrewsbury 0-0
Bradford-Blackburn 2-1
Huddersfield-Aston Villa 0-1
Hull-Oldham 1-0
Ipswich-Swindon 3-2
Leicester-Plymouth 4-0
Manc. City-Stoke 3-0
Middlesbrough-Leeds 2-0
Reading-Crystal Palace 2-3
Seff. Utd.-Millwall 1-2
WBA-Boumemouth 3-0
3. deild
Brentford-Blackpool 2-1
JBrighton-Sunderland 3-1
Bristol Rovers-Northampton 0-2
Bury-Aldershot 1-6
Chester-Grimsby 1-0
Gillingham-York 3-1
Mansfield-Southend 1-0
Notts County-Bristol City 0-1
Port Vale-Fulham 1-1
Preston-Rotherham 0-0
Walsall-Wigan 1-2
Doncaster-Chesterfield ' 1-0
4. deild
^Burnley-Cambridge 0-2
Cardiff-Carlisle 4-2
Exeter-Rochdale 1-1
Hartlepool-Colchester 3-1
Hereford-Darlington 1-0
Peterborough-W rexham 1-0
Scarborough-Swansea 2-1
Scunthorpe-Newport 3-1
Stockport-W olverhampton 0-2
Torquay-Bolton 2-1
Crewe-Leyton Orient 3-3
Halifax-Tranmere 2-1.
vann West Ham 1-0 á Upton Park.
Þessi sigur Tottenham er sá fyrsti
í 14 ár á heimavelli West Ham. Það
var miðvörðurinn hávaxni Chris
Fairclough sem skoraði eina mark
leiksins á 39. mínútu. Eftir horn-
spyrnu barst knötturinn út til
Fairclough sem var í 15 metra fjar-
lægð frá markinu. Hann skaut
firnafast og knötturinn hafnaði í
netinu án þess að nokkrum vörnum
væri við komið. Fairclough var
keyptur til Tottenham í sumar og
þetta er hans fyrsta mark fyrir félag-
ið. Mikill ákafi var í leikmönnum
beggja liða og fimm leikmenn voru
bókaðir.
Wayne Clarke á skotskónum
gegn Manchester United
Manchester United tapaði sínum
fyrsta leik á þessu keppnistímabili
er liðið heimsótti Everton á Goodi-
son Park í Liverpool. Manchester
United hefur ekki unnið Everton í
deildarkeppninni síðastliðin sjö ár
og þrátt fyrir að allir bestu menn
United, nema Kevin Moran, væru til
staðar þá var tap staðreynd. Leikur-
inn var geysilega harður og dómar-
inn hafði þegar gefið sex leikmönn-
um gult spjald þegar að Wayne
Clarke skoraði fyrsta mark leiksins
á 36.mínútu. Gary Walsh markvörð-
ur United ótti nokkra sök á markinu.
Honum tókst ekki að handsama fyr-
irgjöf frá Trevor Steven, knötturinn
hafnaði hjá Wayne Clarke sem sendi
hann tilbaka í markið með koll-
spyrnu. Clarke bætti við marki strax
í upphafi síðari hálfleiks, en Norman
Whiteside svaraði mínútu síðar fyrir
United. Ekki var það nóg og þó svo
að Alex Ferguson framkvæmdar-
stjóri United sendi báða varamenn
sína þá : Billy Garton og Peter Da-
venport inná fyrir Gordon Strachan
og Graham Hogg, þá kom það fyrir
ekki.
• Kerry Dixon fagnaði endur-
• Steve Williams, leikmaður Arsenal, sést hér sækja að marki Wimbledon. Brian Gayle er til varnar.
Símamynd Reuter
komu sinni í Chelsealiðið með marki
strax á fimmtu mínútu. Þrótt fyrir
mikið puð eftir það urðu mörkin
ekki fleiri og Chelsea hefur þá unnið
alla fjóra heimaleiki sína á Brúnni.
Undralyf í teinu hjá Sheffield
Wednesday
Derbyliðið rústaði Sheffield Wed-
nesday í fyrri hálfleik í leik liðanna
á Baseball Ground í Derby. Þeir
John Gregory og Mike Fortsythe
skoruðu tvö mörk með kollspyrnum
án þess að gestirnir ættu nokkuð
svar við krafti hrútanna ( The
Rams ). En eftir að hafa sötrað teið
sitt í hólfleik breyttist viðmót hinna
• Eddie Niedzwiecki, markvörður Chelsea, sést hér góma knöttinn örugglega
í leiknum gegn Norwich. Simamynd Reuter
gestrisnu Miðvikudagsmanna og
þeir jöfnuðu leikinn skjótlega. Fyrra
markið skoraði Gary Megson en Mel
Sterland skoraði hið síðara. Dæmd
var vítaspyrau eftir að hafa verið
felldur. Peter Shilton varði víta-
spyrnuna, en knötturinn hrökk til
Sterland sem skoraði. En það sem
eftir lifði leiks var staðan í jórnum
en breyttist ei. Mark Wright var
stórgóður í vörn Derby. Sheffield
Wednesday er neðst í 1. deildinni
þrátt fyrir gott jafntefli og er með
þrjú stig.
• Charlton vann sinn fyrsta sigur
er liðið lagði Luton 1-0. Þetta mikil-
væga mark skoraði Garth Crooks
sem hefur þá skorað tvö mörk í þess-
ari viku því hann skoraði annað
marka Charlton gegn Liverpool á
þriðjudaginn.
• Nottingham Forest sigraði Co-
ventry 3-0 í viðureign miðlandalið-
anna á Highfield Road í Coventry.
Hinn átján óra gamli Terry Wilson
skoraði fyrsta markið á 25. mínútu,
en þetta var jafnframt hans fyrsti
leikur í Barclays deildinni ensku.
Hraðlestin Franz Carr og Stuart
Pearce (úr vítaspyrnu) skoruðu í síð-
ari hálfleik.
• Arsenal átti ekki í erfiðleikum
með að afgreiða W imbledon og sendi
harðjaxlana með tárin í augunum til
baka á tennisvellina í Wimbledon.
Bobby Gould framkvæmdarstjóri
Wimþledon og Don Howe þjálfari
liðsins gengu keikir inn í marmara-
höll barónanna á Highbury en gengu
niðurlútir tilbaka. Þeira hafa báðir
tengst Highbury á annann og
skemmtilegri máta þvi Gould var
mikill markaskorari hjá Arsenal og
Howe var bæði þjálfari og fram-
kvæmdarstjóri liðsins fyrir nokkrum
árum. Mike Thomas skoraði fyrsta
mark leiksins strax á 2. mínútu úr
vítaspyrnu eftir að Dennis Wise
hafði brotið á Perry Groves í vítateig
sínum. Alan Smith skoraði svo á 20.
mínútu og þriðja markið var sjálfs-
mark Andy Thorn. Smith hefur þá
skorað fimm mörk fyrir Arsenal í sex
síðustu leikjum sínum. Arsenal virð-
ist komið á skrið, eftir slæma byrjun.
Hull eitt ósigrað í 2. deild
Barátta liðanna í 2. deild er geysi-
lega hörð. Öll liðin hafa tapað leik
nema Hull sem vann Oldham 1-0 með
marki Peter Skipper, en er þrátt fyr-
ir þennann sigur ekki nema í þriðja
sæti. Bradford og Crystal Palace eru
ofar. Bradford er með 19 stig og vann
Blackburn 2-1 með mörkum Sean
Curry'og Tony Henry. Brian Mitc-
hell tók reyndar forystuna fyrir
Blackburn. Crystal Palace lenti í
basli í Reading. Fyrst skoraði Andy
Gray sjálfsmark, en Ian Wright,
Mark Bright og Gavin Nebbeling
skoruðu mörk Palace. Imre Varadi
skoraði öll þrjú mörk Manchester
City gegn Stoke og Carlton Palmer
og Tony Morley sáu um mörkin fyrir
W.B.A. gegn Boumemouth. Morley
skoraði tvö mörk. Steve Hunt skor-
aði mark Aston Villa gegn Hudders-
field. EJ
Stadan
1. deild
QPR 8 6 1 1 12- 4 19
Tottenham 8 l í í í 1 12-5 17
Liverpool 6 2 1 0 16- 6 16
Chelsea 8 5 0 3 15-11 15
Nott. For. 8 4 2 2 13- 9 14
Man. Utd 8 3 4 1 13- 8 13
Everton 8 3 3 2 9- 5 12
Wimbledon 8 3 3 2 10- 9 12
Arsenal 7 3 2 2 12- 5 11
Coventry 7 3 1 3 8-11 10
Derby 6 2 3 1 6- 5 9
Luton 8 2 2 4 10-12 8
Watford 7 2 2 3 5- 7 8
Oxford 7 2 2 3 10-14 8
Southampton 7 1 4 2 10-11 7
Norwich 8 2 1 5 6- 9 7
Portsmouth 8 1 4 3 7-17 7
West Ham 7 1 3 3 7-10 6
Newcastle 7 1 2 4 7-13 5
Carlton 7 1 1 5 7-14 4
Sheff. Wed. 8 0 3 5 7-17 3
2. deild
Bradford 8 6 1 1 14- 6 19
C. Palace 9 5 3 1 24-12 18
Hull 9 4 5 0 13- 8 17
Barnsley 8 4 2 2 9- 8 14
Birmingham 8 4 2 2 9-10 14
Middlesbrough 8 4 1 3 11- 8 13
Swindon 8 4 1 3 10-10 13
Millwall 8 4 1 3 12-13 13
Man. City 7 3 3 1 12- 5 12
Ipswich 8 3 3 2 8- 6 12
Aston Villa 9 3 3 3 8- 7 12
Plymouth 9 3 2 4 14-15 11
Blackburn 9 3 2 4 12-13 11
Stoke 9 3 2 4 6-11 11
Bournemouth 8 3 1 4 9-11 10
Leeds 9 2 4 3 3- 6 10
Leicester 8 3 0 5 11- 9 9
Shrewsbury 8 1 5 2 3- 4 8
WBA 9 2 2 5 11-16 8
Oldham 9 2 2 5 8-16 8
Reading 7 2 1 4 6- 8 7
Sheff. United 8 1 2 5 7-11 5
Huddersfield 7 0 4 3 7-14 4