Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987. Fréttir Steingrímur og Shultz ræddu saman í New York: Akvaðu serstakar viðræður um samskipti landanna Ólafur Amaisan, DV, New York: „Við lýstum báðir ánægju okkar með að hvalamálið væri leyst núna en ég lagði hins vegar áherslu á aö þetta væri í raun og veru tíma- sprengja því að útlitið framundan væri óljóst,“ sagði Steingrímur Her- mannsson utanríkisráðherra um fund sem hann átti í gær með Ge- orge Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. í samtaii við DV eftir fundinn sagði Steingrímur að þeir hefðu rætt al- mennt samskipti íslands og Banda- rikjanna og })ó fyrst og fremst hvalamálið. „Eg gerði honum grein fyrir því að heima væri nokkuð al- mennt litið á afskipti Bandaríkja- manna sem óþolandi afskipti af okkar innanríkismálum. Ég gerði honum líka grein fyrir því að á ís- landi væri mjög minnkandi fylgi við veru vamarliðsins samkvæmt nið- urstöðum skoðanakönnunar og að ég teldi ákaflega mikilvægt að það yrði komið í veg fyrir svona árekstra í framtíðinni. Þvi lagði ég til að á milli utanríkisráðuneyta landanna yrðu viðræður um samskipti ríkj- anna í vetur áður en hvalamálið kemur aftur til umræðu. Þetta sam- þykkti Shultz strax og fól sínum mönnum að leggja drög að slíku. Það verður síðan haft samband við sendiherra okkar 1 Washington," sagði Steingrímur. A fundinum sagði Steingrímur ennfremur að íslendingar stefndu að því að nýta hval og teldu að þaö George Shultz og Steingrímur Hermannsson í upphafi fundar þeirra i New York í gær. DV-símamynd Ólafur Amarson ætti að nýta hann í hófi og undir eftirliti og að þegar væri ljóst að hval fjölgaði mikið. Það þyrftá því bæði að huga að jafnvægi í náttúr- unni og nýtingu hvalsins og að íslendingar myndu undirbúa það í haust á fundum með löndum með svipaðar skoðanir. „Ég gerði Shultz grein fyrir því að okkar stefha væri óbreytt og hann sagðist skilja það og gerði enga athugasemd," sagði Steingrímur. Á fundinum ræddu ráðherramir ennfremur um afvopnunarmál í framhaldi af utanríkisráðherrafundi Natóríkja síðastliðinn mánudag og tjáði Shultz Steingrími að annar slík- ur fundur yrði haldinn í Brussel seint í næsta mánuði eftir ferð Shultz til Moskvu. Steingrímur sagði að á utanríkis- ráðherrafundinum á mánudag hefði Shultz gert ítarlega grein fyrir að- draganda þess afvopnunarsam- komulags sem nú er í sjónmáli og jafhframt hefði hann rætt stöðu ann- arra mála. Shultz sagði að öll þessi máí væru beinn árangur af Reykja- víkurfundinum og að hann hefði efnislega verið langsamlega mikil- vægasti leiðtogafundurinn sem hingað til hefur verið haldinn. Þar hefði verið sáð fræjum þeirrar upp- skeru sem nú er að koma í ljós og þar hefði líka komið fyrst fram í al- vöru hugmyndin um helmings- fækkun langdrægra eldflauga. Shultz sagði að í Reykjavik hefðu orðið kaflaskipti í afvopnunarum- ræðu. Steingrímur býður ísland fram sem griðastað: sett upp á Islandi? - mikill áhugi í Bandaríkjunum og Sovétríkjunum Ólafirr Amarscn, DV, Naw Yoric DV hefur þaö eftír mjög áreiðan- legum heimildum að miidll áhugi sé, bæöi í Bandaríkjunum og Sovétrílq- unum, á því aö stofna á íslandi sérstaka friðarstofnun. Upphafið aö þessu má rekja til hugmyndar sem Steingrímur Hermannsson, utanrík- isráðherra og þá forsætisráöherra, mun hafa sett óformlega í viöræöum við sovéska og bandaríska ráða- menn. Ástæðan fyrir þessum mikla áhuga mun meöal annars vera sú að það er almennt skoðun ráða- manna beggja stórveldanna aö kaflaskil hafi orðiö í samskiptum þeirra á leiðtogafimdinum í Reykja- vík, auk þess sem ísland er álitið nokkuð hlutlaust þegar kemur að afvopnunarmálum og hentar því að mörgu leyti vel undir stadsemi slíkrar stofnunar. Hugmyndin er sú aö stofiiunin veröi aö mestu undir íslenskri stjóm, þaö er að alþingi veþi stjóm- armenn sera gætu verið íslenskir eða erlendir, en aö hún verði fjármögnuð í sameiningu af Bandaríkjunum og Sovétríkjunum. í Bandaríkjunum em margir hátt- settir menn í báðum sljómmála- flokkunum, þó sérstaklega Demókrataflokknum, sem vinna nú að því óformlega að utfæra hug- myndir um þessa stofhun. Sam- kvæmt heimildum DV er talaö um að hún verði nefnd The Reykjavik Foundation sem útleggst Reykjavík- urstofiiunin eða Reykjavikursjóður- inn. í Sovétríkjunum er einnig mikill áhugi á þessari stofiiun og sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum DV heftir Gorbatsjov sjálfur mikinn áhuga á þessu máli. Astæðan mun meðal annars vera sú að Gorbatsjov var mjög ánægður meö Reykjavik- urfundinn og frammistöðu íslend- inga i sambandi við hann. Ef af veröur munu stórveldin í sameiningu fjármagna sjóðinn með umtalsverðu stofnframlagi. Sam- kvæmt heimildum DV hafa Sovét- menn áhuga á aö miða framlagið við kostnað á einni kjamorkueldflaug eöa sprengjuflugvél frá hvoru stór- veldi. Það þýöir aö um er aö ræða hálfan til einn mifljarð Bandaríkja- daia sem hefði i fór með sér að þessi stofiiun yrði sú öflugasta sixrnar teg- undar f heiminum. Málið er enn á undirbúningsstigi og enn þá er eftír aö marka stofnun- inni ákveðið starfesvið. Ennfremur hafa engar formlegar viðræöur farið fram um þetta mál milii stórveld- anna Það er þó talið lfklegt að einhver skriður komist á fyrir ára- mót Ef þessi stofnun verður að veru- leika er ijóst aö ísland getur í framtíðinni oröið griðland þeirra sem viija hittast i friöi og leita lausna á mörgum þeim vandamálum sem hijá mannkyn. Vettvangur viðræðna austurs og vesturs? Óbfur Amarsan, DV, New York: í lok ræðu sinnar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna lýsti Steingrím- ur Hermannsson þeirri ósk sinni að ísland mætti verða griðastaður þeirra sem vildu koma í friði og leita lausna á vandamálum mannkyns. Bauð Steingrímur háa sem lága velkomna til íslands í þeim tilgangi. Samkvæmt upplýsingum DV létu menn vel af ræðu Steingríms og urðu óvenjumarg- ir til að þakka honum vel töluð orð. DV spuröi Steingrím hvort eitthvað sérstakt hefði legið á bak við þessi orð. Sagði Steingrímur að tilgangurinn að baki þessum orðum hefði verið mjög almennur en hins vegar hefðu margir spurt sig hvort nýr leiðtoga- fundur væri framundan á íslandi. „Ég hef ekki heyrt orð um slikt og veit ekki annað en að ákveðið sé fyrir löngu að næsti leiðtogafúndur fari fram í Washington. Bandaríkjamenn leggja á það mikla áherslu. Þaö sem liggur að baki hjá mér er að við íslend- ingar getum tekið virkari þátt í að bæta samskiptin milli austurs og vest- urs og þá ef til vill með því aö verða að einhveiju leytí vettvangur fyrir umræður. Þessa hugmynd hef ég rætt við menn hér í Bandaríkjunum, meðal annars háttsetta menn. Vel hefur ver- ið tekið í þessa hugmynd en að sjálf- sögðu þaif að útfæra hana vandlega. Ég hef áhuga á að fylgja þessu eitthvað eftir og mín orð hjá Sameinuðu þjóð- unum voru að vissu leytí til að minna á þessa hugmynd. Eg tel að það sé í mörgum tilfellum frekar hægt að fá menn til viðræðna á íslandi en til dæmis í Bandaríkjunum eða Sovét- ríkjunum," sagði Steingrímur. „Ég er ekki að mæla með því að ís- land verði neinn alisherjar vettvangur fyrir leiðtogafundi. Því fylgfr mikill kostnaður og umstang sem ekki er víst að sé allt jafnheppilegt. Ég held að jafnmikilvægt sé, eins og að standa í beinum afvopnunarviðræðum, að reyna að byggja upp traust milli þjóða og þá ekki bara stórveldanna. Þessu sjónarmiöi finnst mér hafa unnist fylgi að undanfómu. Ef til vill getur ísland orðið vettvangur slíks starfs,“ sagði Steingrímur ennfremur. Maigeir einn ósigraður Gylfi Kristjánsaan, DV, Akmeyii Margeir Pétursson er nú einn ósigr- aður í landsliðsflokki á Skákþingi íslands sem fram fer á Akureyri, þeg- ar sex umferðum er lokið af þrettán. Margeir sigraði í gær Karl Þorsteins en önnur úrslit urðu þau að Helgi Ólafsson vann Þröst Þórhallsson, Dan Hansson vann Jón G. Viðarsson, Gylfi Þórhallsson vann Ólaf Kristjánsson, Davíð Ólafsson vann Þröst Amason, Hannes Hlífar Stefánsson vann Áskel Kárason en jafntefli gerðu Sævar Bjamason og Gunnar Freyr Rúnars- son. Margeir hefur 5 vinninga en næstir koma Helgi og Davíð með 4 1/2 og þá Karl og Ólafur með 31/2 vinning. Sjö- unda umferö verður tefld í dag og tefla þá meðal annars Helgi og Ólafur, Margeir og Gunnar, Davíð og Hannes Hlífar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.