Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987. Neytendur Bryndts telst til launafólksins en ekki til þeirra sem skammta sér laun Bryndís Schram, eiginkona fjár- málaráðherrans, sagði okkur í júlí- mánuöi frá því hvemig henni tekst að halda matarinnkaupum innan skyn- Vikan Litið í Vikuspegil á tímamótum því nú hefur Vikan vistaskipti Vikan 39. tbl. 49. árgangur. 24.-30. september 1987. Veró 150 krónur. Vikan ísrael - til heilsubótar VIÐTÖL: Þórarinn Jón Magnússon Nafn Vikunnar ★ Lífið í Lúx - rætt við íslenskar mæðgur í Lúxemborg Frá Borgarfirði til Buenos Aires - Anna Erla Magnúsdóttir Ross Vélvæddur fugl - Ævintýraferð með Hans Óla Hansen ísrael - til heilsubótar Laila og Saima eru konur sem fórna öllu fyrir föðurlandið HRESST BLAÐ VIKULEGA samlegra marka. Hún hefur fylgst með heimilisbókhaldi DV og því vakti for- vitni okkar að kynnast áliti hennar á því og hvemig henni tekst að halda innkaupum til heimilisins í skefjun. Viðtal þetta vakti mikla athygli, við- brögðin urðu ótrúleg, skæðadrífa af nafnlausum lesendabréfúm hefúr birst í blöðunum. Langsamlega flest vom þau mjög óvinsamleg í garð Bryndísar og annarra sem reyna að láta endana ná saman, eins og það er kallaö. „Það var aðallega tvennt sem kom mér á óvart. í fyrsta lagi að spamaður telst ekki lengur til dyggða og í öðm lagi að hin mikla fiskveiðiþjóð íslend- ingar skuli fúlsa við fiski,“ sagði Bryndís Schram. „Að sumu leyti hafði ég gaman af þessum ástríðufuliu viöbrögðum. Menn komu með hinar fúrðulegustu skýringar á lágum matarreikningi mínum. Einn hélt því fram að ég væri ailtaf úti að borða og þá væntanlega með karlinn og krakkana til að spara innkaupin. Kona nokkur lýsti því yfir að hún hugsaði til þess með hryllingi ef nýja ríkisstjómin ætlaði nú að fara að taka upp sömu spamaðarstefnuna og Bryndis! Og enn ein sagði að ég væri orðin að athlægi um allt land! Þetta var nú allt gott og blessað en þegar einn (reyndar kunningi minn) hélt því ffam að ég væri að ijúga var mér nóg boðið. Ég nenni ekki að sitja undir slíku. Texti svona bréfa skiptir kannski ekki svo miklu máli en það sem angr- ar mig er það hugarfar sem býr að baki, allt það hatur sem er undirrótin. Ég verð að gera þá játningu að svona bréfasendingar hafa mikfl áhrif á mig. Þau lama mig, draga úr mér kjarkinn, lífsþróttinn. Þá er karmski tilgangi þeirra líka náð. Ég veit ekki betur en að lesendabréf í erlendum blöðum, sem er annt um virðingu sína, séu alltaf merkt fúllu nafni bréfritara. Mér finnst að þaö ætti líka að vera regla hér á landi. Einhvemtíma var ég talin í hópi tíu verst klæddu kvenna á íslandi. Er það ekki af sömu rótum sprottið og þetta með matarreikninginn? Maður fæðir sig og klæðir eftir efn- um og ástæðum. Ég tilheyri ekki þeim hópi þjóðfélagsins sem skammtar sér laun. Eg tflheyri hinum, launafólkinu, og launafólk á íslandi lætur það ekki eftir sér aö kaupa dýran fatnað eða kjöt 1 alla mata. Svo einfalt er það nú. Öll þessi umræða um hafla á ríkis- búskap og taumlausar erlendar lán- tökur. Hvað þýðir þetta? Hvað er á bak við þessar tölur? Það er taumlaus eyðsla í hluti sem viö eigum ekki fyrir og gætum kannski alveg verið án. T.d. tvö þús- und bílar, keyptir út á krít hjá draumaleigufyrirtækjum með 70% vöxtum. Allt skrifað á fyrirtækin í von um að geta svikið undan skatti. Og hveijir standa í þessu? Allir sem vettl- ingi geta valdið. Jafiivel stjómendur fyrirtækja sem síðan fárast mest yfir verðbólgunni og setja upp sparisvip þegar talað er um kauphækkanir. Hvað er þjóðfélagið annað en við sjálf? Tekjur heimflanna em tekjur ríkisins í hnotskum. Ef við ætlum ekki að enda sem þjáleiga hjá Chase Manhattan verðum við fyrr eða síðar öll að spara,“ sagði Bryndís Schram. -A.BJ. Telstspam- aður ekki leng- ur til dyggða á íslandi?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.