Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987. Spumingin Lesendur Ætlarðu á kvikmynda- hátíðina? Björn Vilhjálmsson: Nei, alls ekki. Ég hef engan áhuga á þeim myndum sem þar eru sýndar. Þær eru of þung- ar og bara fyrir eldra fólk. Ingibjörg Kristjánsdóttir: Ég reikna ekki meö því, ég hugsa að ég hafi ekki tíma. Freyr Guðlaugsson: Nei, ég hef ekki tíma til þess. Mig myndi samt langa því þama er margt aö sjá. Linda Gústafsdóttir: Ég hef ekki ákveðið það ennþá, kemur allt í Ijós. Þessi hátíð er forvitnileg, sérstaklega fyrir fólk sem hefur áhuga á þessu. Helga Kristinsdóttir: Já, mig langar til að fara og sjá spænsku myndina, Nautabanann og rússnesku mynd- ina. Æth ég byrji alla vega ekki á þessu tvennu. Það er gaman að fá tækifæri til að sjá öðruvísi myndir. Ingólfur Matthíasson: Nei, ég er orð- in nógu leiður á aö sjá þessa búta í sjónvarpinu. Annars fer ég voða sjaldan I bíó en læt mér nægja sjón- varpiö. „Það er ekki lengur hægt að lesa blöðin vegna þess að það eina sem er f þeim eru íþróttafréttir." Dagblöðin: Full af íþrótta- fréttum og litlu íþróttahatari skrifar: Nú er nóg komið! Það er ekki lengur hægt að lesa blöðin vegna þess að það eina sem er í þeim eru íþróttafréttir, íþrcttafréttir og aftur íþróttafféttír. Ég flettí einu dagblaðanna síðastlið- inn þriðjudag og ætlaði mér að njóta lesningarinnar enda fannst mér blaðið vel þykkt. En það var ekki margt í blaðinu fyrir utan íþróttír sem mér taldist til að tækju um einn þriöja blaðsins eða 17 síður af 52. Afgangur- inn var að mestu leyti auglýsingar. Þetta tiltekna blað er alls ekki eins- dæmi í þessari íþróttadýrkun sem nú tröllríður samfélaginu. Aflir fjölmiðlar hafa íþróttímar sem eitt af sínum stærstu umfiöllunarefiium auk inn- öðru lendra og erlendra frétta. Þó er hugsanlegt að sleppa við mjög fyrir- ferðarmiklar íþróttafréttir á nýju útvarpsstöðvunum. Mér finnst meira en lítið hæpið að aö eyða einum þriðja hluta dagblaös undir þetta ómerkilega efiú sem ipjög lítm partur þjóðarinnar hefur áhuga á. En þar sem hér er skoðanafrelsi og prentfrelsi tel ég ekki rétt að banna fréttir af greyjunum sem leggja allan sinn metnað í að sparka eða henda tuðru í svokölluö mörk. Hins vegar legg ég til að gefin veröi út sérstök íþróttablöð fyrir sportfrikin en okkur hinum hlíft við að horfa upp á allan fiflaganginn. Kvikniyndahátíð: Leiðinlegar myndir Bíógestur skrifar: Nú fær fámenn menningarklíkan enn eina kvikmyndahátíðina til að smjatta á og að sjálfsögðu er aflt svallið borgað af okkur skattborgur- unum. Að vanda eru sýndar myndir sem enginn nennir að horfa á, þung- ar myndir, fullar af heimspekilegum vangaveltum um lífið og tilveruna. Svona hátíð er ekki fyrir venjulegt fólk. Myndimar eru flestar útlensk- ar og undrast ég að nokkur skuli dirfast að bera svona efni á borð fyr- ir okkur, alþýðu þessa lands. Nei, við sem vinnum myrkranna á milli til að borga svona menningar- sukk hvorki getum né viljum sjá svona myndir. Þær eru flestar „list- rænar“ en það þýðir að ekki er nokkur leið fyrir mann að skilja þær nema maður hafi verið eilífðarstúd- ent á ríkisstyrk í fjarlægum löndum. Og svona til að tryggja það að ekki komi aðrir en menntamenn þá eru myndimar allar textaðar á erlenda tungu, ekki er nú virðingin meiri fyrir móðurmálinu. Þessir menntamenn em nú famir að verða fullfyrirferðarmiklir í þjóð- félaginu. Og ekki er nú þakklætið meira þjóðinni sem ól þá upp og kostaði til mennta að þeir sldrrast ekki við að reka hníf í bak henni og vilja vemda hvali þegar þeir vita vel að undirstaða þess að þeir geti lært við heimsins dýmstu og fínustu skóla er einmitt sjávarútvégur, þar með taldar nytjar á fiskistofhun. Ég legg tíl að þessum blessuðu menntamönnum verði gert kleift að koma sér úr landi sem fyrst svo að þeir geti séð aliar þær dellukvik- myndir sem þeim sýnist og leyft okkur hinum að hafa okkar vinnu og okkar Rambo í friði. Biógesti finnst „að vanda sýndar myndir á kvikmyndahátíð sem eng- inn nennir að horfa á, þungar myndir, fullar af heimspekilegum vangaveltum um lífið og tilveruna." Drífið ykkur bara á sjóinn Hávarður Bergþórsson hringdi: Fimmtudaginn 17. sept. skrifar H. nokkur Ólafsson grein í lesendadálk DV undir fyrirsögninni: „Laun sjó- manna feimnismál?" Þar talar hann t.d. um orðið úthald sem hann reynir að útskýra eftír orða- bók en skilur ekki sjálfur. Orðið úthald er alltaf notað um það þegar bátur fer til vertíðar og kemur inn að haustí. Úthald er að vísu meira en vertíð, það er úthald yfir árið. Hitt er aftur á móti kallað róðrar það sem H. Ólafsson er að tala um, t.d. þegar farið er út að morgni og komið inn að kvöldi. Bátur getur því t.d. verið 126 daga í úthaldi þó að hann fari ekki nema 51 róður. Maður spyr sjálfan sig ósjálfrátt úr hvaða þjóðfélagshópi þeir menn komi, eins og H. Ólafsson, sem þykja það eitthvað miður að vel gangi á sjónum, þessum aðalatvinnuvegi íslendinga. Það vantar eitthvað í nefið á þessum mönnum. Það er furðulegt að menn, sem geta talað og skrifað svona, skuh ekki bara drífa sig á sjóinn. Úr hvaða þjóðfélagshópi eru þeir sem þykja það eilfhvað miður að vel gangi á sjónum? spyr lesandi. Dýr klipping Jón Karlsson, Sauðárkróki, hringdi: án nokkurra aukaefna eða þurrkun- Fyrir stuttu varð ég fyrir þeirri ar, fékk ég að borga 830 kr. reynslu, staddur í Reykjavík, að fara Af því að þetta hótel er mikið not- itm á Hárgreiðslustoftina Hjá Dúdda, að af fólki utan af landi þá finnst Hótel Esju, til að láta klippa mig. mér full ástæða til aö vekja athygli Fyrir það, þ.e.a.s. bara klippinguna á þessu. Kúgun sjónvarpsins Kona hringdi: Mér finnst sjónvarpið svo hundleið- inlegt að full ástæða sé til þess að láta ráðamenn þess heyra það. Það er ekki einu sinni hægt að horfa á þaö. Svona er það búið að vera lengi og um síð- ustu helgi keyrði þó alveg um þverbak. Svo segja þeír okkur bara að loka fyrir sjónvarpið ef við viljum ekki horfa á það. Samt þuríum við að borga afnotagjald því það eru sameiginlegir reikningar fyrir útvarp og sjónvarp. Þetta finnst mér bara hrein og bein kúgun. Frábær nastur- útvarpsmaður 8154-8412 hringdi: Ég hlusta mikið á útvarpsstöðina Bylgjuna og þá sérstaklega á næturút- varpið því ég vinn mikið á nætuma. Ég get ekki á mér setið að hæla ein- um næturútvarpsmanni þar sem fer alveg á kostum og er tvímælalaust einn okkar færustu plötusnúða og fyllilega sambærilegur við það sem gerist annars staðar. Þetta er strákur sem heitir Bjami Ólafur, kallaður Daddi. Ég veit að þessi strákur er 23 ára gamall en hann spilar músík alveg frá ’54 og fram til dagsins í dag. Þaö er fullt af fólki sem ekki trúir því aö þama sé svona ungur maður á ferð- inni. Hann þjónar öllum aldurshóp- um, fólki alveg frá tvítugu og upp í sextugt. Ég vil þakka honum innilega fyrir frábæra næturdagskrá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.