Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Qupperneq 22
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987. • 22 Dægradvöl Texti: Jóna Björk Guðnadóttir Myndir: Sveinn Þormóðsson Aðsókn að hundasýningunni í Reykjavík var mjög góð. Um 5000 manns komu í Reiö höliina til að fylgjast með henni. Hundarækt Nú hafa tímamót markast í sögu hundaræktar á íslandi. Nýverið var hundasýning haldin í fyrsta skipti innandyra innan borgarmarka Reykjavíkur. Dægradvöl fylgdist með hundasýningu Hundaræktarfé- lags íslands og ræddi einnig við Guörúnu Guðjohnsen, formann fé- lagsins, af þessu tilefni. Timamót Um miðjan september voru tvær hundasýningar haldnar hér á landi. Önnur á Akureyri þann 12. septemb- er síðastliðinn en hin daginn eftir í Reykjavík, nánar tiltekið í nýju Reið- hölhnni í Víðidal. Þar voru hundar af ýmsum tegundum, stærðum og gerðum sýndir og kom það mörgum á óvart hversu margir og fjölbreyti- legir hundar eru til á íslandi. í fyrsta skipti var sýning af þessu tæi haldin innandyra í höfuðborginni og mörk- uðust því tímamót í sögu hundarækt- ar á íslandi. Framan af hindraði bann við hundahaldi sýningarhaldið en eftir aö hundahald var leyft fannst ekki viðunandi húsnæði fyrr en í ár. Flestar fyrri sýninga höfðu verið haldnar undir berum himni. Ahuga- menn um hundarækt eru að vonum mjög ánægðir með þessa þróun mála og allir eru þeir sammála um að Reið- höllin í Víðidal sé tilvalið húsnæði fyrir hundasýningar. „Ræktun erfið á ís)andi“ Hundaræktarfélag íslands var stofnað 1969 en Guðrún Guðjohnsen hefur starfaö í félaginu síöastliðin tíu ár, nú síðast sem formaður félagsins. Hún sagði hundasýningu aUtaf vera haldna a.m.k. einu sinni á ári og helst oftar ef mögulegt væri. Hlutverk Hundaræktarfélags ís- lands er tviþætt. Annars vegar er hlutverk þess að viðhalda tegundum hunda sem til eru í landinu og bæta tegundimar á þann hátt aö einkenni þeirra komi sem best framí Guðrún Guðrún Guðjohnsen, lormaður Hundaræktarfélags íslands. segir litla möguleika til að sinna þessu markmiði félagsins hér á ís- landi þar sem innflutningur á hundum sé stranglega bannaður. í sumum tilfellum verða dýrin allt of skyld og áframhaldandi ræktun verður þá næstum ómöguleg. Þetta hefur nú gerst meö tegundina Cocker Spaniel en af þeirri tegund eru aðeins til 9 hundar á öllu landinu. Nú er svo komið að flestir þeirra eru náskyldir, s.s. systkini, og er því ekki hægt að halda ræktuninni áfram. „Þetta er mjög leiðinlegt fyrir hundaræktará- hugamenn hér á landi. Sérstaklega vegna þess að Öivind Asp, norski dómarinn sem hingað kom til að dæma á hundasýningunum, sagðist hvergi í Evrópu hafa séð jafngeðgóða hunda af Cocker Spaniel tegund eins og hér á íslandi," sagði Guðrún. Hlýðniskóli Seinni þátturinn í starfi Hunda- ræktarfélags íslands er að fræða hundaeigendur um hundana og hvemig skuli meðhöndla þá. Guðrún sagöi það ekki nóg að eiga góðan hund heldur þyrfti eigandinn að vita hvemig hann ætti að umgangast hundinn og kenna honum. Til að sinna þessu hlutverki sínu rekur fé- lagið hlýðniskóla fyrir hunda. Þar eru hundamir þjálfaðir og vandir. Best er að þeir komi strax sem hvolp- ar en einnig era fuilorðnir hundar teknir inn í skólann og þeim kennt. Eigendumir koma með hundunum í skólann og læra um leið til verka. Best er að fólk komi áður en það fær sér hund í fyrsta skipti og síðan strax með hvolpinn eftir að það hefur tekið við honum. Guðrún sagði Evrópu- þjóðir, sem flestar era lengra á veg komnar í hundarækt en íslendingar, allar sammála um að vandamál með hunda væra í 99% tilvika hundeig- andanum sjálfum að kenna því mjög auðvelt er að gera hvolp taugaveikl- aðan með rangri meðferð. Markmiðið með starfrækslu skól- ans er að starfa með hunda á sem breiðustu sviði. Það era því ekki bara áhugamenn um hundahald sem starfa innan skólans heldur er Björg- unarhundasveit íslands nýverið komin inn í skólann. Björgunarsveit- in hefur á sínum snærum leitar- hunda sem eru sérþjálfaðir í leit að fólki í snjó- og aurskriðum og fer þjálfun þeirra fram á vegum skólans. „Afkvæmiö betra en foreldr- arnir“ En hver er tilgangurinn með hundasýningum? Guðrún sagði hundasýningar fara fram til þess að dæma um hversu vel hefði til tekist í ræktuninni. Hvert kyn hefur sitt ræktunarmarkmið og reyna hundaræktendur að ná öllum þeim eiginleikum fram í hundum sínum sem þar era nefndir. Landið, sem hundurinn er upprunnin í, gefur markmiðið út og hafa íslendingar því Myndin sýnir hund af tegundinni Cocker Spaniel. Áframhaldandi ræktun tegundarinnar er óhugsandi á íslandi vegna of miklls skyldleika innan stofnsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.