Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1987, Qupperneq 31
FIMMTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1987. 31 Frændur em frændum verstir Þorsteinn Pálsson forsætis- ráöherra þykir heldur þungur á bárunni og Geirs- legur í fasi í fjölmiölaheimin- um. Kveður svo rammt aö þessu aö sumir fréttamenn hafa á orði aö best færi á aö gleyma forsætisráðherran- um þegar leitað er frétta. Það sannast kannski í þessu mál- tækið aö frændur séu frænd- um verstir því Þorsteinn Pálsson er alls ekki forsætis- ráðherra í símaskránni heldur blaðamaöur. Og sann- ur blaðamaður er ekkert að blaðra fréttum í aðra blaða- menn. Enn vantar ritstjóra Þeir hjá Eystra-Homi eru ekki fyrr búnir að fmna nýj- an ritstjóra en þeir hjá Helgarpóstinum eru teknir að leita að nýjum ritstjóra fyrir sig. Halldór Halldórsson er að fara í veikindafrí. Ýmsir hafa verið nefndir til sögunn- ar í hans stað og þar á meðal er Hallur Hallsson sjónvarps- fréttamaður. Annars eru þessar hræringar í 5 ölmiðla- heiminum orðnar það tíðar að þær eru engar fréttir leng- ur. Þar er sá sjóhatturinn fokinn. Fjölskyldu hvað? Eittaf fyrstu verkum stjómarflokkanna var að hóa saman í nefnd til þess að fjalla um fjölskylduna í þjóðfélag- inu. Svo merkilega vildi til að einungis konur voru til- nefndar í þessa merku nefnd og enn merkilegra var að konan í sæti félagsmálaráð- herra skipaði þær allar í nefndina. Körlum í fjölskyldunni þykir valdið hafa stigið kon- unum óhóflega til höfuðs og spyija nú um jafnréttishug- sjónina sem kvenfólkið hefur notað eins og svipu á karlpen- inginnhingaðtil. Annars þýðir ekki að vera að ergja sig yfir þessu heldur skal stofnuð ný nefnd og þar skal enginn kvenmaður vera í fjölskyldunni. Svo geta þess- ar einkynja fjölskyldur hist á jafhréttisgrundvelli og haft þaðhuggulegt. Tyrkinn fær tækin SÍS-verksmiðjumar á Ak- ureyri em að losa sig við löngu úreltar vélar sem em svo hundgamlar að enginn hér á landi getur verið þekkt- ur fyrir að hafa þær undir sínu þaki, hvað þá tengja þær við raforkukerfi lands- manna. Þær em nefnilega frá 1970. Vélarnar fara þó ekki á haugana því feðgar nokkrir i Tyrklandi, sem reka ennþá eldri og úreltari bandrokka og fimm þúsund stúlkur í vefnaði, hafa fest kaup á SÍS- vélunum. Það verður þvi bráðlega kembt og spunnið í miðju Tyrklandi á þessa for- láta fomgripi frá Akureyri. 242 í bíla- braskinu Ríkisskattstjóri er í ham þessar vikumar enda tókst ríkisstjóminni að skella yfir hann næstum 25% fjölgun söluskattsskýrslna, fjölga gjaldflokkum úr tveim í þijá og skila þessu öllu grúandi af vafaatriðum. Skattstjórinn er nú að smala upplýsingum um nýja söluskattsgjaldend- ur og hefur þar á meðal komist að þeirri merkilegu niðurstöðu að seljendur nýrra og notaðra bifreiða og varahluta séu samtals 242. Hins vegar er hann ekki enn- þá kominn til botns í þvi hvað veitingahús og mötuneyti em mörg samtals. Það er líka dagamunuráþvi. Ruglaðar um- ferðarbungur Síðasta plágan í umferð- inni, umferðarbungurnar, er eins og annað í ótrúlégustu afbrigðum eftir þvi hvar maður er staddur. Það em sveitarstjórnarmenn sem taka ákvarðanir um þessar bungur en engar reglur em til um h vernig þær eigi að vera eða hvemig merktar. Alla vega er þá alls ekki farið eftir neinum reglum, enda er það reglan í umferðinni. Nú hefur bæjarfulltrúum í Kefla- vík dottið það snjallræði í hug að setj a bungumar á hj ól eins og bílana og aka þeim fram og til baka. Þær virka þá lík- lega eins og mgluð sjón- varpsdagskrá, nema hvað í sjónvarpinu er það myndin sem leikur á reiðiskjálfi en á bungunum áhorfendumir við stýrið. Söfnuðu nafn- spjöldum Fulltrúar erlendra fiski- hafna á íslensku sjávarút- vegssýningunni kepptust um að kynna þá þjónustu sem þar er boðin af ýmsum toga. Slagurinn á milli þeirra stendur ekki síst um þann þátt því fiskverðið sjálft Sandkom ræðst á markaðnum hveiju sinni. Greinilegt var að full- trúum hafnanna, eins og raunar fjölmörgum fulltrú- um annarra erlendra sýn- enda, var mjög umhugað um að komast yfir sem flest nafn- spjöldsýningargesta. Nú viUtust margir forvitnir en algerlega hagsmunalausir gestir inn á þessa sýningu, sem útlendingamir áttuðu sig ekki alltaf á. Þaö kom þ ví jafnvel fyrir að þeir stóðu í stappi við sárasaklausa land- krabba um að ná af þeim nafnspjaldi tU þess að fara með heim. Það mátti halda að þeir væm í uppmælingu og fengju greitt fyrir ferðina í samræmi við skil á nafn- spjöldum frekar en viðskipta- samböndogsölu. Parkerar í skóginum Jón Helgason landbúnað- arráðherra hreiðraði um sig við Rauðarárstíg á dögunum með allt ráðuneytið og nýtur þar ráðsmennsku fyrrum samráðherra síns, Sverris Hermannssonar, sem byggði yfir Framkvæmdastofnun sálugu með verðbólgubáli úr blikki utandyra, góðri slægju á bílskýhsþaki og vænum skógi umhverfis opnu bíla- stæðin. Landbúnaðarráð- herra flutti því í umhverfi eins og sniðið fyrir hann og nú parkerar hann auðvitað.í skóginum. Hins vegar finnst sumum vafasamt að land- búnaöarráðherra skuli vera settur yfir rofann sem kveik- ir og slekkur á verðbólgubál- inu - kveikir þó aðallega. Umsjón: Herbert Guömundsson __________________Menning Saga af sæháki Guðbergur Bergsson þýddi, MM 1987, 128 bls. Þetta mun vera sannsöguleg bók. Gabríel García Marquez skrifaði hana effir frásögn sjómanns sem, eins og segir í titli bókarinnar, þraukaði tíu daga á fleka, matarlaus og vatnslaus, og naut um tíma mikillar frægðar eft- ir að hafa bjargast úr slíkum nauðum. Þessi bók mun vera hin fyrsta frá hendi Nóbelshöfundarins, sem þá var ókunnur blaðamaður. Hún birtist fyrst sem framhaldssaga í blaði, og kostaði hann útlegð frá Kólumbíu. Ástaeðan virðist nú lítilfjörleg, frásag- an afhjúpaði að herskip flutti svarta- markaðsvörur. Sérstæö lífsreynsla Ýmsir lesendur leggja mikið upp úr því að lesa frásögur af raunverulegum atburöum, og þó sérstaklega ef þeir telja að frásögnin sé ekki mótuð af bókmemitahefð, heldur „sönn“. Ég er nokkuð efins um að hægt sé að kom- ast framhjá hefðinni þegar skrifað er, enda er þetta skrifað af blaðamanni eftir frásögn sjóliða, unnið upp úr mörgum viðtölum. García Marquez hefur þó líklega reynt að láta orðalag sjóliöans halda sér, því hann ber lof á hann fyrir frábæra frásagnarlist, og vissulega er þessi frásögn látlaus, hrein og bein, laus við klisjur, ekki er reynt að höfða til tilfinninga lesenda með útjöskuðum aðferðum. En satt að segja finnst mér hún ganga helsti langt í hina áttina, hlutlaus frásaga af því sem gerðist er í rauninni ekki sérlega merkileg, ef sálarlífslýsingar fylgja lítt eða ekki. Frásögnin verður helst lif- andi þá sjaldan að hún verður bókmenntaleg. Vonir vakna fljótlega um björgun, en verða æ minni. Fyrst kemur flugvél tvívegis svo nærri að flugmaðurinn ætti að sjá skipreika sjó- manninn, síðar sér hann skip, en svo langt í burtu að engin leið er að ná til þess. Tvisvar er sýnd veiði en ekki Gabriel García Marquez gefin. Sjómaðurinn handsamar fyrst máf og síðan fisk, en hvorugt verður honum að mat að nokkru marki. Loks er áhrifamest frásagan af því þegar hann bjargast úr þessari prísund og skreiðist í land með ógurlegum erfiðis- munum. Það er bókmenntalegt sjónar- mið að gera slík þáttaskil sérstaklega lifandi. Bókmenntir örn Ólafsson García Marques segir í lok formála: „í fimmtán ár hafði ég ekki lesið þessa frásögn. Mér þótti hún vera nógu góð til að koma út á prenti, en ég get ekki skilið hvaða gildi slík útgáfa hefur. Það aö hún er núna gefin út í bókarformi stafar af því að ég sagði, já“ án þess að hugleiða það vandlega, en ég tek ekki orð mín aftur." Skýring hans á endurútgáfunni er að nafn hans sjálfs sé frægt, og ég verð að taka undir það. Ég held að þessi bók hefði aldrei verið gefin út á íslensku, ef hún væri eftir óþekktan mann. En sjálfsagt mun ýmsum þykja þetta merkileg lesning. Þýðingin er yfirleitt á eðlilegri íslensku. En hún er ekki nógu vönduð og stundum klúöursleg, svo sem þegar talað er um að „sólin skíni á lungun" í lifandi manni. Ennfremur má nefna (bls. 10): „leynilögreglan myrti unnendur nautaats á sunnudögum þegar þeir gerðu hróp aö dóttur einræðisherrans á áhorfendapöllunum" Þetta orðalag gefur til kynna að það að unna nautaati hafi í sjálfu sér verið dauöasök í augum leynilögreglunnar, enda hafi þessir unnendur haft þann sið á sunnudögum að gera hróp aö dóttur einraaðisherrans. En auðvitað er átt við að sunnudag einn hafi nokkrir áhorfendur nautaats gert hróp að dótturinni, og þá verið drepn- ir. Bls. 20: „ég sá Jaime Martinez Díego flokksforingja á freigátunni, næst æðsta yfirmann við aðgerðir, sem var eini yfirmaðurinn sem fórst við sly- sið.“ Þetta orkar klúðurslega á mig því sem visar venjuiega til næsta orðs á undan, hér væri venjulega sett í stað þess: „en hann var“ o.s.frv., yfirmaður aðgerða þætti mér ótvíraeðara en „yfirmaður viö aðgerðir". „Tenient de fregata" er væntanlega eitthvert til- tekið tignarstig í flotanum, sem vill- andi er að þýða hér „flokksforingja á freigátunni" - hvaða freigátu? Maður- inn er foringi um borö í tundurspilli (destructor). Bls. 81: „Þegar öllu er á botninn hvolft er sultur bærilegur þegar engin von er til að matur finnist. Ég hafði aldrei verið jafri óvæginn og þegar ég sat þama á flekabotninum og reyndi að rífa skínandi og grænan fiskinn með lyklunum." En þama á að standa ekki „Ég, heldur hann, þ.e. sulturinn hafði aldrei verið jafhóvæginn. GRINDAVÍK Blaðbera vantar í Grindavík. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 92-68342. Hárgreiðslustofan Klapparstíg Pantanasími 13010 h A Litakynning. Permanentkynning. Strípukynning. Rakarastofan Klapparstíg Pantanasími 12725 FLUTNINGAR Tilboð óskast í flutninga á um það bil 940 tonnum af áfengi og tóbaki frá Reykjavík til útsölustaða ÁTVR á Akranesi, Akureyri, Sauðárkróki og Ólafsvík. Gert er ráð fyrir vikulegum ferðum. Útboðsgögn eru af- hent á skrifstofu vorri og tilboð verða opnuð á sama stað í viðurvist viðstaddra bjóðenda kl. 11.00 f.h. 7. október. nk. INNKAUPASTQFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 Móttökudeild Auglýsum eftir deildarstjóra og hjúkrunarfræðingum til starfa á móttökudeild. Um er að ræða tvær 100 % stöður og tvær 50 % stöður. Starfið felst meðal ann- ars í móttöku sjúklinga á bráðavöktum. Upplýsingar gefnar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í síma 19600/ 300-220. SKURÐSTOFA/RÆSTING Við ræstingu á skurðstofu eru lausar tvær stöður. Um eina 100% stöðu er að ræða, vinnutími er frá kl. 8-16/9-17, og aðra 50% stöðu, vinnutími frá kl. 13-17. Upplýsingar veitir ræstingastjóri milli kl. 10 og 14 í síma 19600/259. Reykjavík 23. sept. ’87. ÓFR0SIÐ SLÁTUR 5 stk. í kassa kr. 1265.- 3 stk. í kassa kr. 814.- ★ Kindalifur af nýslátruðu aðeins kr. 80 kg. ★ Aukavambir og allt til sláturgerðar. ★ Úrvals aðrar kjötvörur. ★ MATVÖRUVERSLUNIN GRIMSBÆ Efstalandi 26, sími 6867-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.